Ferill 138. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 138 — 138. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um strandsvæðisskipulag Austfjarða og leyfisveitingar í Seyðisfirði.
Frá Höllu Hrund Logadóttur.
1. Hefur nýtt svæðisráð fyrir Austfirði verið skipað í samræmi við 5. gr. laga nr. 88/2018, um skipulag haf- og strandsvæða? Ef svo er ekki, hvenær er fyrirhugað að skipa ráðið og hver er ástæða þess að það hefur ekki verið gert?
2. Hvaða ráðstafanir hefur ráðuneytið gert í tilefni af áliti umboðsmanns Alþingis í máli nr. 12804/2024 og hefur verið lagt mat á hvort tilefni sé til frekari endurskoðunar á strandsvæðisskipulagi Austfjarða vegna þeirra annmarka sem þar voru staðreyndir?
3. Hvaða afmörkun netlaga leggur Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) til grundvallar við meðferð umsókna um byggingarleyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði og á hvaða lagaheimild byggist sú afmörkun? Hefur stofnunin kannað hvort fyrirhuguð mannvirki eða starfsemi falli að einhverju leyti innan netlaga samkvæmt lögum nr. 88/2018?
4. Á hvaða grundvelli hefur HMS metið að eigendur sjávarjarða í Seyðisfirði eigi ekki aðild að byggingarleyfismálum vegna fyrirhugaðs sjókvíaeldis þegar mannvirki eða starfsemi kann að vera innan netlaga viðkomandi jarða eða í næsta nágrenni við þau?
5. Hvaða stjórnvald ber ábyrgð á því að tryggja við leyfisveitingar og eftirlit að fyrirhugað sjókvíaeldi í Seyðisfirði stofni sæstrengnum FARICE-1 ekki í hættu? Hvernig hefur verið brugðist við athugasemdum Farice ehf. um óskýrt regluverk og eftirlit á þessu sviði?
6. Hefur ráðherra tekið afstöðu til beiðna um sjálfstæða stjórnsýsluúttekt á málsmeðferð vegna strandsvæðisskipulags og leyfisveitinga fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði? Ef svo er, hver er sú afstaða og telur ráðherra tilefni til að slík úttekt fari fram áður en frekari ákvarðanir um byggingarleyfi verða teknar?
Skriflegt svar óskast.