Ferill 18. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 18  —  18. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um útvistun heilbrigðiseftirlits.


Flm.: Diljá Mist Einarsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson,
Bryndís Haraldsdóttir, Jón Pétur Zimsen, Ólafur Adolfsson,
Jens Garðar Helgason, Sigurður Örn Hilmarsson.

    Alþingi ályktar að fela atvinnuvegaráðherra, í samráði við umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, að hefja vinnu við gerð frumvarps sem feli einkaaðilum að annast heilbrigðiseftirlit samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, samkvæmt nánari skilyrðum þar um. Frumvarpið verði lagt fram eigi síðar en á haustþingi 2027.

Greinargerð.


    Tillaga þessi var áður lögð fram á 156. og 157. löggjafarþingi ( 42. mál).
    Heilbrigðiseftirlit starfar samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Samkvæmt nýsamþykktum lögum, nr. 82/2026, fer Umhverfis- og orkustofnun með eftirlit á grundvelli laganna.
    Samkvæmt greiningu Samtaka iðnaðarins frá janúar 2024 hefur regluverk og eftirlit með starfsemi fyrirtækja innan þeirra raða aukist mikið á undanförnum árum. Regluverk og rekstrarumhverfi fyrirtækja í landinu er að mörgu leyti allt of flókið, eftirlit mikið og kröfur til aðila með afmarkaðan og einfaldan rekstur óhóflegar. Þá birti Viðskiptaráð Íslands úttekt á opinberu eftirliti á haustdögum 2024 og beindi m.a. sjónum að heilbrigðiseftirliti. Athugasemdir Viðskiptaráðs lúta að því að fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits sé óþarflega flókið og ósamræmi sé í framkvæmd eftirlitsins. Tillögur þess lúta m.a. að því að framkvæmdinni verði útvistað til faggiltra eftirlitsstofa; til einkaaðila.
    Íslenskir atvinnurekendur hafa lengi kvartað undan framkvæmd heilbrigðiseftirlits hér á landi. Samskipti við eftirlitsaðila séu svifasein og tímafrek og skortur sé á samræmingu og fagmennsku í heilbrigðiseftirliti. Gagnrýnin hefur ekki síst verið hávær á landsbyggðinni þar sem kvartanir snúa m.a. að ólíkri framkvæmd milli eftirlitssvæða. Aðrir hafa bent á að eftirlitsaðilar gangi oft hart fram gagnvart atvinnurekendum þegar matskennt svigrúm er til túlkunar. Í kjölfar breytinganna sem mælt var fyrir um í lögum nr. 82/2026 er gerð ákveðin bót þar á, en þó er augljós þörf til að ganga lengra og útvista eftirlitinu til einkaaðila, með tilheyrandi hagræðingu.
    Það er mikilvægt að við höfum skýrt lagaumhverfi fyrir atvinnulífið til að starfa eftir, en gætum að því að reglurnar íþyngi ekki um of. Sá meðalvegur er vandrataður, enda geta íþyngjandi reglur aukið kostnað og veikt samkeppnisstöðu atvinnulífsins verulega. Við viljum hafa öflugt eftirlit með atvinnulífinu, en eftirlitið verður að hvíla á skýrum lagagrundvelli. Framkvæmd eftirlits þarf sömuleiðis að ná þeim markmiðum sem stefnt er að.
    Flutningsmenn telja ljóst að núverandi fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits hér á landi sé ekki gott. Góð raun hafi gefist af útvistun eftirlits til faggiltra skoðunarstofa, m.a. eftirlits með ökutækjum, skipum, rafmagnsvörum, leikvöllum og vinnuvélum. Það fari vel á því að framkvæmd heilbrigðiseftirlits verði í höndum einkaaðila á einu eftirlitssvæði, samkvæmt nánar tilgreindum skilyrðum laga þar um.