Ferill 21. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 21  —  21. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, nr. 64/2020 (samningaviðræður við erlend ríkjasambönd).

Flm.: Diljá Mist Einarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Rósa Guðbjartsdóttir, Ólafur Adolfsson, Jens Garðar Helgason, Jón Pétur Zimsen, Jón Gunnarsson.


1. gr.

    Við 5. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Þegar æðstu stjórnendur og aðstoðarmenn ráðherra, sem sinna hagsmunagæslu fyrir hönd Íslands í samningaviðræðum við erlend ríki, bandalög þeirra eða alþjóðastofnanir, láta af störfum í Stjórnarráði Íslands er þeim óheimilt að þiggja embætti á þeirra vegum á næstu 18 mánuðum eftir að störfum þeirra í Stjórnarráði Íslands lýkur, komi til inngöngu í þau.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta var áður lagt fram á 157. löggjafarþingi ( 253. mál) en náði ekki fram að ganga. Frumvarpið er því lagt fram að nýju óbreytt.
    Fyrir liggur að ýmsir stjórnmálaflokkar hafa á stefnuskrá sinni að ganga í erlend ríkjasambönd, jafnvel þótt það fæli í sér veigamikið framsal á ríkisvaldi til umræddra sambanda. Sem dæmi um slík ríkjasambönd má nefna Evrópusambandið sem stjórnarflokkar í núverandi ríkisstjórn hafa lýst yfir vilja sínum til að ganga inn í. Aðild Íslands að slíkum samböndum er ekki á dagskrá sem stendur, sér í lagi eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst 2026. Ekki er þó útilokað að íslensk stjórnvöld sæki um aðild að Evrópusambandinu eða öðru alþjóðlegu ríkjasambandi í framtíðinni sem býður upp á ákveðinn freistnivanda eins og nánar verður reifað hér. Aðildarríki Evrópusambandsins eiga til að mynda tilkall til ýmissa embætta á vegum þess og æðstu embætti þess eru gjarnan skipuð fyrrum ráðherrum og háttsettum embættismönnum aðildarríkja þess.
    Í lögum nr. 64/2020 er þegar að finna ákvæði um starfsval að loknum opinberum störfum. Í siðareglum ráðherra og starfsfólks ríkisins eru sömuleiðis ákvæði um eiginhagsmuni og fagleg vinnubrögð. Slík ákvæði eru til þess fallin að auka traust og trú á íslenskt stjórnkerfi og stjórnsýslu.
    Vísa má til þess að margar okkar nágranna- og vinaþjóðir hafa strangari lagaramma varðandi starfsval og hagsmunaárekstra en Ísland, bæði norrænar og aðrar evrópskar þjóðir sömuleiðis. Þar er markmiðið að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra, tryggja óhlutdrægni og traust á stjórnsýslu og ráðamenn, og forðast að tengsl og trúnaðarupplýsingar séu nýttar í þágu erlendra aðila.
    Frumvarpið er sett fram í samhengi við alþjóðlega umræðu um siðferði og hagsmunaárekstra í stjórnmálum. Svokölluð snúningshurðarregla (e. revolving door) er þekkt í stjórnsýslurétti og siðareglum stjórnvalda víða um heim, en hugtakið vísar til þess að einstaklingar fari beint úr háum opinberum embættum eða pólitískum stöðum yfir í störf eða embætti hjá aðilum sem þeir höfðu áður eftirlit með eða samið við (eða öfugt).
    Um tilurð frumvarpsins vísa flutningsmenn m.a. til nýlegra dæma þar sem fyrrum ráðamenn vestrænna ríkja hafa sætt gagnrýni vegna persónulegra ákvarðana eftir að hafa látið af embætti. Mikilvægt sé að embættisfærslur í tengslum við viðræður við erlenda aðila séu hafnar yfir allan vafa og hugsanlegar stöðuveitingar geti til að mynda ekki varpað skugga á þær.
    Með hliðsjón af meðalhófsreglu og stjórnarskrárvörðu atvinnufrelsi er lagt til að bann þetta gildi í 18 mánuði eftir að viðkomandi lætur af störfum.
    Lög um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands gilda um æðstu stjórnendur og aðstoðarmenn ráðherra, eins og fram kemur í 1. gr. laganna. Með hliðsjón af meðalhófsreglu er í frumvarpi þessu lagt til að bannið snúi auk þess einvörðungu að þeim sem sinna hagsmunagæslu fyrir hönd Íslands í samningaviðræðum.
    Þar sem mikilvægir hagsmunir, m.a. grundvallaratvinnuvegir, og möguleg eftirgjöf þeirra eru andlag viðræðna um inngöngu til að mynda í ESB þykir flutningsmönnum eðlilegt að skerpt sé á reglum þessum um starfsval að loknum opinberum störfum. Það sé til þess fallið að auka traust, hlutleysi og greinarmun á eiginhagsmunum og hagsmunum þjóðarinnar.