Ferill 29. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 29  —  29. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið, nr. 34/1944 (notkun fána á byggingum).

Flm.: Guðrún Hafsteinsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir.


1. gr.

    Við 7. gr. laganna bætist ný málsgrein, sem verður 1. mgr., svohljóðandi:
    Tjúgufáninn skal dreginn á stöng alla daga ársins á Alþingishúsinu og Stjórnarráðshúsinu kl. 8 að morgni og vera við hún til kl. 21 að kvöldi. Þessa fána skal lýsa upp í skammdeginu.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. desember 2027.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta var áður flutt á 148. löggjafarþingi ( 459. mál), 149. löggjafarþingi (31. mál), 150. löggjafarþingi ( 325. mál), 154. löggjafarþingi ( 89. mál) og 155. löggjafarþingi ( 101. mál) af Birgi Þórarinssyni, og endurflutt á 156. löggjafarþingi ( 27. mál) og 157. löggjafarþingi ( 31. mál).
    Í fyrri útgáfum frumvarpsins var einnig kveðið á um að flaggað skyldi með sama hætti við byggingu Hæstaréttar Íslands, embættisbústað forseta Íslands og skrifstofu hans í Reykjavík en gerðar hafa verið breytingar á frumvarpinu með tilliti til athugasemda sem bárust. Með frumvarpinu er lagt til að flaggað verði alla daga ársins frá kl. 8 að morgni til kl. 21 að kvöldi á Alþingishúsinu og Stjórnarráðshúsinu og að fáninn verði lýstur upp í skammdeginu.