Ferill 55. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 55  —  55. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um eyðingu minks í íslenskri náttúru.


Flm.: Karl Gauti Hjaltason, Bergþór Ólason, Jens Garðar Helgason, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Þorgrímur Sigmundsson, Þórarinn Ingi Pétursson.


    Alþingi ályktar að fela umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að móta í samráði við sveitarfélög og aðra hagaðila stefnu og aðgerðaáætlun með það að markmiði að eyða mink í íslenskri náttúru. Skal ráðherra leggja niðurstöðu þeirrar vinnu fyrir Alþingi eigi síðar en á vorþingi 2027.

Greinargerð.

    Minkur var upphaflega fluttur til Íslands árið 1931 í þeim tilgangi að stunda minkarækt í atvinnuskyni. Fljótlega varð vart við að minkar höfðu sloppið úr haldi og tekið sér bólfestu í íslenskri náttúru. Árið 1937 var fyrst staðfest tilfelli um villtan mink við Elliðaár í Reykjavík. Minkurinn breiddist síðan hratt um landið og hafði á nokkrum áratugum numið nær allt landið.
    Minkur telst framandi og ágeng dýrategund hér á landi og getur haft verulega neikvæð áhrif á íslenskt lífríki. Skaðsemi hans felst meðal annars í afráni á fuglum, eggjum og ungum og jafnframt hafa verið áhyggjur af áhrifum hans á fiskstofna við ár og vötn. Sérstaklega hefur verið bent á möguleg áhrif minks á fuglategundir sem verpa við vatn og á strandsvæðum. Þá hafa verið færð rök fyrir því að minkurinn kunni að hafa átt þátt í útdauða keldusvíns sem varpfugls á Íslandi og fækkun flórgoða. Þá hefur verið talið að minkurinn hafi haft mikil áhrif á varpútbreiðslu og hugsanlega stofnstærð teistu. Framangreint bendir til þess að útbreiðsla minks geti valdið umtalsverðu tjóni á náttúru og líffræðilegum fjölbreytileika.
    Ekki er hægt að fullyrða hversu stór minkastofninn er á Íslandi. Minkaveiðar hafa þó verið stundaðar hér á landi um langt skeið í því skyni að halda stofni minksins í skefjum en með misjöfnum árangri. Á árunum 2020–2024 voru að meðaltali veiddir 5.032 minkar á ári. Gildandi lagaákvæði um veiðar á mink er nú að finna í 13. gr. laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, nr. 64/1994, með síðari breytingum, en þar kemur fram að minkur njóti ekki friðunar samkvæmt lögunum og að ráðherra ákveði, að fengnum tillögum Náttúruverndarstofnunar og Náttúrufræðistofnunar, að minkaveiðar séu nauðsynlegar til þess að koma í veg fyrir tjón af völdum minka og að sveitarstjórnum sé skylt að ráða kunnáttumann til veiða. Enn fremur að ráðherra ákveði árlega viðmiðunartaxta og aðrar greiðslur fyrir unna minka sem veiddir eru og að endurgreiðslur úr ríkissjóði vegna veiðanna geti numið allt að helmingi kostnaðar eftir því sem ákveðið er í fjárlögum.
    Á árunum 2007–2009 var ráðist í sérstakt tilraunaverkefni á Snæfellsnesi og í Eyjafirði með það að markmiði að kanna hvort unnt væri að eyða mink í íslenskri náttúru á afmörkuðum svæðum. Verkefnið sýndi að aukin og markviss veiðisókn getur haft veruleg áhrif á stofnstærð minks. Þrátt fyrir að ekki hafi tekist að eyða mink á svæðunum fækkaði minkum um 56% á Snæfellsnesi og um 81% í Eyjafirði á tímabilinu.
    Mikilvægt er að líta til þess að niðurstaða verkefnisins felur ekki í sér að markvissar aðgerðir gegn mink geti ekki skilað árangri. Þvert á móti sýndi verkefnið fram á verulega minnkun stofnsins þegar veiðisókn var aukin. Helstu takmarkanir verkefnisins fólust í takmörkuðum tíma og fjármunum, auk þess sem framkvæmd og skipulag veiðanna voru ekki með þeim hætti að tryggt væri að unnt væri að fylgja verkefninu eftir þar til eyðingu minks væri náð. Reynslan af verkefninu gefur því tilefni til að ætla að umfangsmeiri og betur skipulagðar aðgerðir geti skilað enn meiri árangri. Nýtt verkefni þyrfti því að byggjast á reynslu fyrra verkefnisins, vera betur fjármagnað og standa yfir nægilega lengi til að unnt sé að fylgja minkastofninum eftir þar til honum hefur verið eytt í íslenskri náttúru. Erlendis eru fordæmi fyrir því að hægt sé að eyða mink með skipulögðum hætti. Til að mynda tókst að útrýma mink úr héruðunum Norfolk og Suffolk í austurhluta Englands í kjölfar sérstaks átaks á árunum 2021–2024.
    Með hliðsjón af framangreindu og þeim framförum sem orðið hafa í aðferðum og þekkingu frá því að verkefnið fór fram er full ástæða til að skoða að nýju hvort unnt sé að ráðast í markvissara og umfangsmeira átak með það að markmiði að eyða mink í íslenskri náttúru á öllu landinu.
    Flutningsmenn benda á að markvissar aðgerðir gegn minkastofninum kunni að hafa verulegan fjárhagslegan ávinning til langs tíma. Viðvarandi minkaveiðar fela í sér árlegan kostnað fyrir ríki og sveitarfélög og sá kostnaður mun halda áfram svo lengi sem minkurinn er til staðar í íslenskri náttúru.
    Jafnframt ber að líta til alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði náttúruverndar. Rétt er að benda á að samningur Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni öðlaðist gildi á Íslandi 11. desember 1994. Samkvæmt samningnum hvílir sú skylda á íslenskum stjórnvöldum að sjá til þess að framandi lífverur í íslenskri náttúru raski ekki búsetu annarra lífvera. Þá er markmið laga nr. 60/2013, um náttúruvernd, að vernda til framtíðar fjölbreytni íslenskrar náttúru, þar á meðal líffræðilega og jarðfræðilega fjölbreytni.
    Af öllu framansögðu telja flutningsmenn núverandi ástand óviðunandi og að rétt sé að ráðherra móti, í samráði við sveitarfélög og aðra hagaðila, stefnu og aðgerðaáætlun um að eyða mink í íslenskri náttúru. Hefja ber þann undirbúning án óþarfa tafa og leggja niðurstöðu þeirrar vinnu fyrir Alþingi eigi síðar en á vorþingi 2027.