Ferill 70. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 70  —  70. mál.



                                  

Tillaga til þingsályktunar


um aðgerðir í efnahagsmálum (stöðugleikaskilyrði).


Flm.: Diljá Mist Einarsdóttir, Rósa Guðbjartsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Hildur Sverrisdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Ingveldur Anna Sigurðardóttir.

    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að grípa til viðeigandi aðgerða til að tryggja að Ísland uppfylli ákveðin stöðugleikaskilyrði, samhljóða hinum svokölluðu Maastricht-skilyrðum, eigi síðar en 1. september 2028. Þau skilyrði eru:
     1.      að verðbólga verði ekki meiri en 1,5% yfir meðaltali verðbólgu hjá þeim þremur ESB-ríkjum sem hafa lægstu verðbólguna,
     2.      að langtímavextir verði ekki meira en 2% hærri að meðaltali en í þeim þremur ríkjum ESB þar sem verðlag er stöðugast,
     3.      að halli á rekstri ríkissjóðs verði ekki meiri en 3% af vergri landsframleiðslu,
     4.      að heildarskuldir hins opinbera verði ekki yfir 60% af vergri landsframleiðslu.
    Ríkisstjórnin skal eigi síðar en 1. febrúar 2027 kynna fyrir almenningi þær aðgerðir sem hún telur þurfa til að uppfylla framangreind skilyrði.

Greinargerð.

    Á árinu 2026 hefur efnahagsástandið á Íslandi versnað til muna. Eftir þrjár vaxtahækkanir á árinu standa meginvextir Seðlabanka Íslands í 8,00%. Auk þess hefur verðbólga mælst yfir 5% það sem af er ári og mældist hún 5,3% í júlí. Í spá Seðlabankans frá því í ágúst sl. er gert ráð fyrir enn frekari aukningu verðbólgu á næstu mánuðum. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankans frá 19. ágúst sl. kemur fram að aukning verðbólgu hafi „fyrst og fremst“ stafað af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Að mati nefndarinnar eru verðbólguvæntingar of háar og undirliggjandi verðbólga of mikil. Þá hefur atvinnuleysi aukist umtalsvert á yfirstandandi kjörtímabili og hefur ekki mælst meira síðan í heimsfaraldri. Að mati flutningsmanna er augljóst að grípa þarf til raunverulegra aðgerða án tafar til þess að ná tökum á efnahagsmálum.
    Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst 2026 lýstu ýmsir þingmenn stjórnarflokka á Alþingi, þ.m.t. ráðherrar, yfir vilja sínum til að taka upp evru. Til þess að ríki geti tekið upp evru er ekki nægjanlegt að vera aðildarríki Evrópusambandsins heldur verða einnig tiltekin efnahagsleg skilyrði að vera uppfyllt, svokölluð Maastricht-skilyrði. Í þjóðaratkvæðagreiðslunni hafnaði þjóðin hins vegar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Engu að síður er ekkert því til fyrirstöðu að stjórnvöld uppfylli Maastricht-skilyrðin af eigin rammleik, og ætti að vera sjálfsagt markmið hennar, enda í þágu hagsmuna þjóðarinnar að lækka vexti og verðbólgu óháð því að stefnt sé að inngöngu Íslands í Evrópusambandið.
    Í ljósi þess að ríkisstjórnin stefndi á aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru verður að ganga út frá því að hún telji sig geta stuðlað að lægri vöxtum og minni verðbólgu, auk annarra efnahagslegra þátta, sem felast í Maastricht-skilyrðunum. Tilgangur tillögu þessarar er að beina því til ríkisstjórnarinnar að gefast ekki upp á því verkefni heldur gera allt sem í valdi hennar stendur til að ná tökum á efnahagsmálum. Því er lagt til að ríkisstjórnin kynni fyrir almenningi þær aðgerðir sem hún telur þurfa til þess að uppfylla skilyrði um stöðugleika, þau hin sömu og felast í Maastricht-skilyrðunum, eigi síðar en 1. febrúar 2027.
    Flutningsmenn beina því til ríkisstjórnarinnar að með aðgerðum hennar verði m.a. haldið aftur af launakostnaði og fjölgun opinberra starfsmanna. Laun á opinbera markaðnum hafa enda hækkað hraðar en á almenna markaðnum undanfarin ár, en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur sérstaklega nefnt launa- og ráðningaraðhald hins opinbera sem leið til að draga úr eftirspurnarþrýstingi og stuðla að lægri verðbólgu.
    Flutningsmenn beina því sömuleiðis til ríkisstjórnarinnar að með aðgerðum hennar verði hækkanir opinberra gjalda takmarkaðar. Seðlabanki Íslands hefur bent á að hækkun opinberra gjalda sé ein helsta orsök verðbólguvandans. Tekjur ríkisins umfram áætlun og tímabundnar tekjur gangi að verulegu leyti til niðurgreiðslu skulda. Þá beina flutningsmenn því til ríkisstjórnarinnar að þak verði sett á raunvöxt frumútgjalda ríkisins á meðan verðbólga er yfir verðbólgumarkmiði. Samkvæmt AGS er svigrúm til frekari hagræðingar og aðhalds á útgjaldahlið hins opinbera. Haldið verði aftur af almennum rekstrarvexti ríkisins en fjárfestingar verði í orku- og samgönguinnviðum sem auka framleiðslugetu. Böndum verði komið á skuldir, lánveitingar og skuldbindingar utan hefðbundinna fjárlaga, enda hefur AGS kallað eftir auknu gagnsæi og eftirliti hvað þetta varðar.