Setning Alþingis 10. september
Alþingi verður sett þriðjudaginn 10. september. Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu.
Biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Elínborgu Sturludóttur dómkirkjupresti. Guðmundur Sigurðsson dómorganisti stjórnar Kammerkór Dómkirkjunnar og leikur á orgel. Sigurður Flosason saxófónleikari leikur með í forspili og eftirspili.
Að guðsþjónustu lokinni er gengið aftur til þinghússins og forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, setur Alþingi, 155. löggjafarþing. Schola Cantorum syngur við þingsetninguna.
Hlé verður gert á þingsetningarfundi til kl. 16:00. Þá verður hlutað um sæti þingmanna og fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2025 útbýtt.
Hljóðútsending verður frá messu og sjónvarpsútsending frá þingsetningarfundi á sjónvarpsrás og vef Alþingis. Sjónvarpsútsending verður einnig frá þingsetningarfundi á RÚV. Útvarpsútsending verður frá messu og þingsetningu á Rás 1.
Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða miðvikudagskvöldið 11. september kl. 19:40.
Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2024 fimmtudaginn 12. september.

Frá þingsetningu 12. september 2023.
Ljósmynd / Eyþór Árnason