Setning Alþingis 8. september
Alþingi verður sett þriðjudaginn 8. september. Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu.
Séra Oddur Bjarni Þorkelsson, sóknarprestur í Dalvíkurprestakalli, prédikar, séra Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur Dómkirkjunnar, þjónar fyrir altari og Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, lýsir blessun. Matthías Harðarson dómorganisti stjórnar Kammerkór Dómkirkjunnar og leikur á orgel.
Að guðsþjónustu lokinni er gengið aftur til þinghússins og forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, setur Alþingi, 158. löggjafarþing. Sönghópurinn við Tjörnina, undir stjórn Gunnars Gunnarssonar, syngur við þingsetninguna. Bæði lögin eru eftir listamenn sem fengu heiðurslaun frá Alþingi og eru nýlega fallnir frá: Hjá lygnri móðu eftir Jón Ásgeirsson og Þitt fyrsta bros eftir Gunnar Þórðarson.
Hlé verður gert á þingsetningarfundi til kl. 15:30 og þá verður hlutað um sæti þingmanna og fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 útbýtt.
Hljóðútsending verður frá messu og sjónvarpsútsending frá þingsetningarfundi á sjónvarpsrás og vef Alþingis. Sjónvarpsútsending verður einnig frá þingsetningarfundi á RÚV. Útvarpsútsending verður frá messu og þingsetningu á Rás 1.
Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða miðvikudagskvöldið 9. september kl. 19:40.
Fyrsta umræða um fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 fer fram fimmtudaginn 10. september og föstudaginn 11. september.

Frá þingsetningu 9. september 2025.
Ljósmynd / Eyþór Árnason