4.9.2025

Setning Alþingis 9. september

Alþingi verður sett þriðjudaginn 9. september. Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu.

Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, prédikar og séra Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur Dómkirkjunnar, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, Guðrúnu Karls Helgudóttur, sem lýsir blessun. Matthías Harðarson dómorganisti stjórnar Kammerkór Dómkirkjunnar og leikur á orgel.

Að guðsþjónustu lokinni er gengið aftur til þinghússins og forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, setur Alþingi, 157. löggjafarþing. Kammerkórinn Huldur, undir stjórn Hreiðars Inga Þorsteinssonar, syngur við þingsetninguna.

Hlé verður gert á þingsetningarfundi til kl. 15:30 og þá verður hlutað um sæti þingmanna og fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2026 útbýtt.

Hljóðútsending verður frá messu og sjónvarpsútsending frá þingsetningarfundi á sjónvarpsrás og vef Alþingis. Sjónvarpsútsending verður einnig frá þingsetningarfundi á RÚV. Útvarpsútsending verður frá messu og þingsetningu á Rás 1.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða miðvikudagskvöldið 10. september kl. 19:40.

Fyrsta umræða um fjárlagafrumvarp fyrir árið 2026 fer fram fimmtudaginn 11. september og föstudaginn 12. september.