10.2.2025

Stefnuræða forsætisráðherra 10. febrúar

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað mánudagskvöldið 10. febrúar kl. 19:40.

Strax að loknum umræðum verður bein útsending úr Alþingishúsinu á RÚV þar sem sérfræðingar fjalla um það sem fram kemur í umræðunum.

Umræðurnar skiptast í tvær umferðir. Forsætisráðherra hefur 12 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa sex mínútur í fyrri umferð. Í seinni umferð hafa þingflokkarnir sex mínútur hver.

Röð flokkanna í umræðunum og ræðumenn þeirra eru eftirfarandi:

Samfylkingin

  • Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, í fyrri umferð
  • Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í seinni umferð

Sjálfstæðisflokkur

  • Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, 1. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í fyrri umferð
  • Hildur Sverrisdóttir, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í seinni umferð

Viðreisn

  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, í fyrri umferð
  • Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, í seinni umferð

Miðflokkurinn

  • Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 2. þingmaður Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð
  • Bergþór Ólason, 4. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í seinni umferð

Flokkur fólksins

  • Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, í fyrri umferð
  • Ragnar Þór Ingólfsson, 5. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í seinni umferð

Framsóknarflokkur

  • Sigurður Ingi Jóhannsson, 10. þingmaður Suðurkjördæmis, í fyrri umferð
  • Stefán Vagn Stefánsson, 5. þingmaður Norðvesturkjördæmis, í seinni umferð

Stefnuraeda-2025-1-