19.12.2025

Tölfræði 157. löggjafarþings fram að jólahléi

Þingfundum 157. löggjafarþings var frestað 18. desember. Þingið var að störfum frá 9. september 2025. Hér hafa verið teknar saman tölfræðilegar upplýsingar um tímabilið.

  • Þingfundir voru samtals 53 og stóðu í tæpar 320 klukkustundir. Meðallengd þingfunda var 5 klukkustundir og 55 mínútur. Lengsti þingfundurinn stóð í 13 klukkustundir og 27 mínútur. Lengsta umræðan var um fjárlög 2026 en hún stóð samtals í 44 klukkustundir og 54 mínútur.
  • Þingfundadagar voru alls 48.
  • Af 138 frumvörpum hafa nú alls 37 orðið að lögum og 101 er enn óútrætt.
  • Af 66 þingsályktunartillögum voru fimm samþykktar og 61 er óútrædd.
  • Sex skriflegar skýrslur voru lagðar fram, þar af ein samkvæmt beiðni. Átta beiðnir um skýrslur komu fram, allar til ráðherra. Ein munnleg skýrsla ráðherra var flutt.
  • Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 155. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 14 og hefur sjö þeirra verið svarað en ein var kölluð aftur. 141 skrifleg fyrirspurn var lögð fram og hefur 71 þeirra verið svarað. 70 biðu svars er þingi var frestað.
  • Þingmál til meðferðar í þinginu voru 374 og tala prentaðra þingskjala var 617.
  • Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 107.
  • Sérstakar umræður voru 10.
  • Samtals höfðu verið haldnir 192 fundir í fastanefndum þegar þingfundum var frestað.
  • Haldinn var einn opinn nefndarfundur.