19.6.2026

Tölfræði 157. löggjafarþings

Þingfundum 157. löggjafarþings var frestað 19. júní. Þingið var að störfum frá 9. september til 18. desember 2025 og frá 14. janúar til 19. júní 2026. Hér hafa verið teknar saman tölfræðilegar upplýsingar um löggjafarþingið.

  • Þingfundir voru samtals 131 og stóðu í 844 klukkustundir og 21 mínútu. Meðallengd þingfunda var sex klukkustundir og 23 mínútur. Lengsti þingfundurinn stóð í 13 klukkustundir og 27 mínútur.
  • Lengsta umræðan var um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu en hún stóð samtals í 58 klukkustundir og 16 mínútur.
  • Þingfundadagar voru alls 114.
  • Af 188 frumvörpum urðu alls 105 að lögum og 83 voru óútrædd og eitt var ekki samþykkt. Af 95 þingsályktunartillögum voru 22 samþykktar og 73 voru óútræddar.
  • 32 skriflegar skýrslur voru lagðar fram. 16 beiðnir um skýrslur komu fram, þar af 16 til ráðherra. Fjórar munnlegar skýrslur ráðherra voru fluttar.
  • Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 399. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 31 og var 21 svarað en ein kölluð aftur og ein felld niður vegna ráðherraskipta. 368 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 269 þeirra svarað, 15 voru felldar niður vegna ráðherraskipta. 84 biðu svars er þingi var frestað
  • Þingmál til meðferðar í þinginu voru 729 og tala prentaðra þingskjala við þingfrestun var 1460.
  • Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 267.
  • Sérstakar umræður voru 19.
  • Samtals höfðu verið haldnir 500 fundir hjá fastanefndum þegar þingi var frestað.

20250909-thingsetning_EA-90-Copy_1781888350017