Tilkynningar um þingmenn

Aðalmaður og varamenn taka sæti

Arna Lára Jónsdóttir tekur sæti á ný á Alþingi mánudaginn 9. nóvember. Varaþingmaður hennar, Jóhanna Ösp Einarsdóttir, víkur þá af þingi. Karl Liljendal Hólmgeirsson tekur sæti sama dag sem varaþingmaður fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Ragnar Jónsson sem setið hefur sem varaþingmaður fyrir Sigmund Davíð víkur þá af þingi. Sverrir Bergmann Magnússon tekur sæti sem varaþingmaður sama dag fyrir Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur. Þá tekur Gunnar Guðjónsson sæti sem varaþingmaður fyrir Jón Gnarr sama dag. 

Allar tilkynningar