Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1198, 117. löggjafarþing 294. mál: skattskylda innlánsstofnana (afskriftareikningur útlána).
Lög nr. 56 13. maí 1994.
Heimildir til niðurfærslu viðskiptaskulda í 2. málsl. 3. tölul. 1. mgr. 31. gr. og 2. og 3. málsl. 5. tölul. 74. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt gilda ekki um skattskylda aðila samkvæmt lögum þessum.
Frá tekjum aðila sem skattskyldir eru samkvæmt lögum þessum má draga þau almennu og sérstöku framlög í afskriftareikning útlána sem gjaldfærð eru í rekstrarreikningi í samræmi við gildandi reglur um ársreikning þessara aðila. Staða afskriftareiknings útlána í árslok dregst frá við uppgjör á eignarskattsstofni.
Færsla á tillögum í afskriftareikning innan eigin fjár er ekki heimilt að draga frá tekjum. Þessi eiginfjárreikningur skal ekki dreginn frá við uppgjör á eignarskattsstofni.
Lánastofnanir skulu undanþegnar stimpilgjaldi af fjárskuldbindingum sem þær kunna að taka á sig.
Ákvæði til bráðabirgða.
Á því ári þegar lög þessi öðlast gildi skulu viðskiptabankar og sparisjóðir samkvæmt þeim leysa upp og færa til skattskyldra tekna þá upphæð sem stendur á afskriftareikningi útlána sem byggist á ákvæði
3. gr. laga nr. 65/1982, sbr.
2. gr. laga nr. 51/1984. Miða skal tekjufærslu við stöðu reikningsins 31. desember 1993. Ákvæði 1. gr. laga þessara skulu síðan gilda um skattaleg reikningsskil viðkomandi skattaðila frá því tímamarki.
Þingskjal 1198, 117. löggjafarþing 294. mál: skattskylda innlánsstofnana (afskriftareikningur útlána).
Lög nr. 56 13. maí 1994.
Lög um breyting á lögum nr. 65/1982, um skattskyldu innlánsstofnana, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:- Í stað orðanna „Viðskiptabankar, sparisjóðir, veðdeildir við innlánsstofnanir og opinberir fjárfestingarlánasjóðir“ í 1. mgr. kemur: Lánastofnanir aðrar en eignarleigufyrirtæki.
- 2. mgr. fellur brott.
2. gr.
3. gr. laganna orðast svo:Heimildir til niðurfærslu viðskiptaskulda í 2. málsl. 3. tölul. 1. mgr. 31. gr. og 2. og 3. málsl. 5. tölul. 74. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt gilda ekki um skattskylda aðila samkvæmt lögum þessum.
Frá tekjum aðila sem skattskyldir eru samkvæmt lögum þessum má draga þau almennu og sérstöku framlög í afskriftareikning útlána sem gjaldfærð eru í rekstrarreikningi í samræmi við gildandi reglur um ársreikning þessara aðila. Staða afskriftareiknings útlána í árslok dregst frá við uppgjör á eignarskattsstofni.
Færsla á tillögum í afskriftareikning innan eigin fjár er ekki heimilt að draga frá tekjum. Þessi eiginfjárreikningur skal ekki dreginn frá við uppgjör á eignarskattsstofni.
3. gr.
6. gr. laganna orðast svo:Lánastofnanir skulu undanþegnar stimpilgjaldi af fjárskuldbindingum sem þær kunna að taka á sig.
4. gr.
Heiti laganna verður: Lög um skattskyldu lánastofnana.5. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1995 og koma til framkvæmda við álagningu tekjuskatts og eignarskatts á árinu 1996 vegna tekjuársins 1995.Samþykkt á Alþingi 4. maí 1994.