Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 943, 118. löggjafarþing 427. mál: Hitaveita Suðurnesja (eignaraðilar og eignarhlutföll).
Lög nr. 16 6. mars 1995.
Ríkissjóður Íslands og fimm sveitarfélög á Suðurnesjum, sbr. 2. gr., eiga og reka fyrirtæki er nefnist Hitaveita Suðurnesja.
Fyrirtækið er sjálfstæður réttaraðili og hefur sjálfstæðan fjárhag og reikningshald.
Heimili þess og varnarþing er í Keflavík-Njarðvík-Höfnum.
Hitaveita Suðurnesja er sameignarfyrirtæki ríkisins og eftirtalinna sveitarfélaga sem eiga fyrirtækið í þessum hlutföllum:
Þingskjal 943, 118. löggjafarþing 427. mál: Hitaveita Suðurnesja (eignaraðilar og eignarhlutföll).
Lög nr. 16 6. mars 1995.
Lög um breytingu á lögum um Hitaveitu Suðurnesja, nr. 100/1974, með síðari breytingum.
1. gr.
1. gr. laganna orðast svo:Ríkissjóður Íslands og fimm sveitarfélög á Suðurnesjum, sbr. 2. gr., eiga og reka fyrirtæki er nefnist Hitaveita Suðurnesja.
Fyrirtækið er sjálfstæður réttaraðili og hefur sjálfstæðan fjárhag og reikningshald.
Heimili þess og varnarþing er í Keflavík-Njarðvík-Höfnum.
2. gr.
1. mgr. 2. gr. laganna orðast svo:Hitaveita Suðurnesja er sameignarfyrirtæki ríkisins og eftirtalinna sveitarfélaga sem eiga fyrirtækið í þessum hlutföllum:
Ríkissjóður Íslands | 20,00% |
Keflavík-Njarðvík-Hafnir | 52,20% |
Grindavíkurkaupstaður | 11,17% |
Sandgerðisbær | 6,99% |
Gerðahreppur | 6,07% |
Vatnsleysustrandarhreppur | 3,57% |
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:- 3. málsl. verður að 4. málsl. og orðast svo: Önnur sveitarfélög, sem aðilar eru að fyrirtækinu, skipa hvert einn fulltrúa í stjórnina og einn til vara.
- Við greinina bætist nýr málsliður er verður 3. málsl. og orðast svo: Keflavík-Njarðvík-Hafnir skipa þrjá fulltrúa í stjórnina og þrjá til vara.
4. gr.
Í 11. gr. laganna kemur: fjögurra þeirra, í staðinn fyrir „fimm þeirra“.5. gr.
13. gr. laganna fellur niður.6. gr.
Lög þessi taka þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 25. febrúar 1995.