[prenta uppsett í dálka] 122. fundur
Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Ég get verið sammála hv. síðasta ræðumanni um það að mér finnst það koma mjög til athugunar að hafa ekki sveigju í útsvari og hafa sama útsvar um land allt. Það er ekki eðlilegt fyrirkomulag að vera að endurgreiða útsvar eða hluta af útsvari í sumum sveitarfélögum en ekki öðrum. Ég bý í sveitarfélagi þar sem útsvarsprósentan er ekki fullnýtt en þrátt fyrir það er þetta mín skoðun.
Ég vil taka það fram að ég þekki til í sveitarfélögum sem hafa lagt á fullt útsvar um langt árabil eða um árabil a.m.k. og eru þó ekki búin að einsetja þannig að það er ekkert einhlítt að einsetningin sé eftir vegna þess að menn hafi ekki fullnýtt tekjustofna.