Viðskiptabankar og sparisjóðir

Þriðjudaginn 23. apríl 1996, kl. 13:40:15 (5142)

1996-04-23 13:40:15# 120. lþ. 125.1 fundur 232. mál: #A viðskiptabankar og sparisjóðir# (eiginfjárkröfur, innstæðutryggingar o.fl.) frv. 39/1996, Forseti StB
[prenta uppsett í dálka] 125. fundur

[13:40]

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Forseti hugðist næst láta fara fram atkvæðagreiðslu um brtt. frá meiri hluta efh.- og viðskn. á þskj. 705, 4.--12. tölulið. Nú hefur forseta borist ósk um að 10. liður verði borinn upp sérstaklega. Forseti mun því fyrst bera upp 4.--9. tölulið, þá 10. lið og loks 11.--12. lið brtt. Að því loknu fer fram atkvæðagreiðsla um 4.--24. gr. frv., svo breyttar.