[prenta uppsett í dálka] 125. fundur
Hjörleifur Guttormsson (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að fara frekar út í efnislega umræðu við hæstv. utanrrh. Við höfum þegar átt samræður í ýmsu formi undir þessari umræðu. Ég vildi aðeins þakka honum undirtektir við þá aðfinnslu eða ábendingu sem ég kom fram með í upphafi máls míns í dag að æskilegt væri að hafa form þessarar umræðu betur undirbyggt í framtíðinni, annaðhvort að hverfa að því sem áður var tíðkað að ein gild skýrsla kæmi fram sem fylgdi aðalstefnuræðu ráðherrans á þinginu á hverjum vetri eða hitt sem hafði verið talað um þegar þessi breyting var gerð, að efna til tveggja umræðna um utanríkismál á vetri eða á hverju þingi og þá fylgdu að auki þemaskýrslur sem væru tilefni fyrir umræðu þess á milli. Um þetta finnst mér skynsamlegt að hæstv. ráðherra fjalli við forsn. þingsins eftir atvikum til þess að við gætum gengið betur nestaðir inn í svona umræðu á komandi þingi. Það eru mín ráð í þessu sambandi.