Hjörleifur Guttormsson (um fundarstjórn):
Virðulegur forseti. Hér var hafin 3. umr. máls og hv. 3. þm. Norðurl. e., Valgerður Sverrisdóttir, mælti fyrir tillögu frá allshn. um málið og tók þar með að sér forræði málsins af hálfu þingnefndarinnar í fjarveru hv. 5. þm. Reykv., Sólveigar Pétursdóttur. Nú er hv. þm. ekki við í þingsal og ég vil vekja athygli hæstv. forseta á því um leið og ég óska að sjálfsögðu eftir því að tryggt sé að sá sem er í forsvari fyrir allshn. sé viðstaddur umræðuna. Það er algert lágmark og þarf ekki að hafa mörg orð um það efni, virðulegur forseti, og ég treysti því að úr verði bætt áður en umræðan heldur áfram.