Smáfiskaskiljur

Miðvikudaginn 29. janúar 1997, kl. 14:21:42 (2830)

1997-01-29 14:21:42# 121. lþ. 57.4 fundur 207. mál: #A smáfiskaskiljur# fsp. (til munnl.) frá sjútvrh., SF
[prenta uppsett í dálka] 57. fundur

[14:21]

Siv Friðleifsdóttir:

Herra forseti. Hv. fyrirspyrjandi sagði áðan að um það bil 90% af undirmálsfiski mundi skiljast út með notkun smáfiskaskilju. Það má vera rétt. Hins vegar hef ég haft spurnir af rannsóknum þar sem sagt er að mjög hátt hlutfall af þeim undirmálsfiski sem fer í gegn drepist engu að síður og það séu kanadískar rannsóknir sem sýni þetta. Ég hef einungis haft spurnir af þessu. Það er auðvitað mjög alvarlegt mál ef það er rétt að smái fiskurinn síist út en drepist engu að síður. Það yrði því afar varasamt að opna friðuð svæði ef þetta væri rétt. Því langar mig að koma þessari athugasemd á framfæri og spyrja hæstv. ráðherra hvort hann þekkir til þeirra rannsókna sem ég hef haft spurnir af.