[prenta uppsett í dálka] 64. fundur
Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Mér finnst hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon tala af nokkru yfirlæti þegar hann segir að nauðsynlegt sé að taka þessa umræðu niður á jörðina en það takist mönnum ekki. Heimssýn manna er auðvitað mismunandi en menn tala þó út frá því sem þeim sýnist réttast. NATO verður aldrei stækkað í friði og sátt. En við þurfum að finna leið --- þeir sem vilja stækka NATO --- finna leið til þess að gera það þannig að sem minnstir úfar rísi meðal þjóða vegna þess.
Af hverju er mér svo umhugað um hagsmuni Eystrasaltsþjóðanna? Við Íslendingar höfum bundist sérstökum vináttuböndum við þessar þjóðir. Þær eru þannig í sveit settar landfræðilega að þær eru auðveld bráð fyrir stórveldi í úfnum ham. Það eru viðsjár í Rússlandi. Það kann að vera að innan skamms, og fyrr en margur hyggur, verði komnir þar við völd miklir herhyggjumenn og hafa mikla reynslu af hernaði. Vilji þeirra í þessu er alveg ljós. Sagan hræðir líka. Við sáum hver urðu örlög þessara ríkja 1940 þegar enginn reis upp þeim til varnar og allur heimurinn er í nokkurri sekt við þessar þjóðir. Við þurfum líka sem smáþjóð að velta því fyrir okkur hvort það sé ekki í þágu okkar að reyna að efla sjálfsákvörðunarrétt smáþjóða. Við eigum að sjálfsögðu að styðja viðleitni þessara þjóða til þess að komast inn í NATO vegna þess að þær telja sjálfar að þar sé hag þeirra og öryggi best borgið. En það er eins og hv. þm. sagði að það eru vaxandi líkur á því að þær verði ekki teknar inn í fyrstu lotu. Hann er ekki einn um þá skoðun heldur lýsti hæstv. forsrh. því yfir í stefnuræðu sinni hér fyrr í vetur. Það er þetta sem ég óttast, sér í lagi þegar maður verður var við afstöðu eins og jafnvel hefur komið fram hér hjá einstökum þingmönnum í dag, að það sé nauðsynlegt að tala við Rússa og fá sátt þeirra við málið. Þá nær þetta auðvitað aldrei fram að ganga. Ég segi það hreinskilnislega, (Forseti hringir.) ég óttast að ef þeir verða ekki teknir inn í fyrstu lotu þá verði þeir aldrei teknir inn. Það kann að vera ómálefnaleg afstaða eins og mér fannst hv. þm. vera að segja áðan en þetta er bara mín hjartans einlægni.