Uppsögn starfs af hálfu atvinnurekanda

Þriðjudaginn 18. mars 1997, kl. 15:27:28 (4589)

1997-03-18 15:27:28# 121. lþ. 92.8 fundur 200. mál: #A uppsögn starfs af hálfu atvinnurekanda# þál., Flm. BH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 92. fundur

[15:27]

Flm. (Bryndís Hlöðversdóttir) (andsvar):

Herra forseti. Hæstv. félmrh. hefur áhyggjur af að ég sé ekki nógu bjartsýn manneskja. Ég er bjartsýn að eðlisfari en ég er líka raunsæ, herra forseti. Það er kannski fyrst og fremst raunsæi sem við erum að tala um í þessum málum. Ég er sannfærð um það líka að reynsluheimur minn og hæstv. félmrh. er mjög ólíkur. Það efast ég ekki um. En að ég hafi fullyrt eða gefið í skyn að allir atvinnurekendur væru skúrkar er bara ekki rétt, herra forseti, það er alls ekki rétt. Ég sagði það aldrei. Við teljum ástæðu til að setja umferðarreglur ekki satt, herra forseti? Það er ekki þar með sagt að við teljum að allir menn séu þannig að eðlisfari að þeir muni brjóta reglurnar ef ekki væru til lög um þær. Þetta snýst einfaldlega um að búa til ákveðið regluverk, ákveðinn ramma, einmitt vegna þess að það eru til einhverjir skúrkar. Það er ekki þar með sagt að allir séu skúrkar. En það er bara þannig að launafólk verður í stórum stíl fyrir því að vera beitt órétti og það er það sem við erum fyrst og fremst að tryggja að gerist ekki, herra forseti. En að snúa þessu upp í það að málstaður minn beri það með sér að ég telji alla atvinnurekendur skúrka, það er fjarstæða. Ég er einungis að reyna að vekja athygli á þeim órétti og á því regluleysi sem ríkir þegar kemur að málefnum launafólks hvað varðar starfsöryggi. Það er algjörlega óviðunandi og á því verður að taka.