Búnaðargjald

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 16:24:27 (6649)

1997-05-15 16:24:27# 121. lþ. 127.5 fundur 478. mál: #A búnaðargjald# (heildarlög) frv., GÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[16:24]

Guðni Ágústsson:

Hæstv. forseti. Það er heiðarlegt í viðskiptum að þeir sem greiða njóti þess en þeir sem greiða ekki þeir græði ekki á því. Þess vegna er það nauðsynlegt í þessu að menn viti af því að ef þeir ekki greiða þá fellur á þá refsigjald. Hér er um það að ræða að það fellur 20% í eitt skipti. Það eru ekki dráttarvextir eða önnur viðurlög. Síðar kemur þessi greiðsla til skipta á fimm mánuðum löngu, löngu síðar þannig að gagnvart þeim heiðarlegu og mörgu sem greiða á gjalddaga legg ég til að menn hafi þetta ákvæði hér til að menn hafi ekki ávinning af því að svíkja keisarann um það sem keisarans er.

(Forseti (ÓE): Hvað segir þingmaðurinn?)

Þingmaðurinn segir eðlilega já við þessari tillögu.