Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1209, 121. löggjafarþing 256. mál: varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (heildarlög).
Lög nr. 49 23. maí 1997.

Lög um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.


1. gr.

     Vinna skal að vörnum gegn tjóni og slysum af völdum snjóflóða og skriðufalla svo sem fyrir er mælt í lögum þessum.
     Samheitið ofanflóð er hér eftir notað um snjóflóð og skriðuföll.

2. gr.

     Umhverfisráðherra fer með yfirstjórn þeirra málefna sem lög þessi taka til, nema þau séu sérstaklega falin öðrum ráðherrum.

3. gr.

     Veðurstofa Íslands aflar gagna um snjóflóð og snjóflóðahættu og vinnur úr þeim. Hún annast mælingar á snjóalögum og rannsóknir á þeim með sérstöku tilliti til snjóflóðahættu og gefur út viðvörun um hana, sbr. 6. gr.
     Náttúrufræðistofnun Íslands aflar gagna um skriðuföll og hættu af þeirra völdum í samstarfi við Veðurstofuna.
     Veðurstofan skal ráða sérstaka eftirlitsmenn til að kanna og fylgjast með landfræðilegum og veðurfarslegum aðstæðum með tilliti til hættu af ofanflóðum í þeim sveitarfélögum þar sem þörf er á slíkum athugunum samkvæmt ákvörðun ráðherra.
     Veðurstofan skal hafa samráð við hlutaðeigandi sveitarstjórn um ráðningu eftirlitsmanns. Skal sveitarstjórn leggja honum til nauðsynlega vinnuaðstöðu og almennan búnað, svo og sjá um rekstur á tækjum og búnaði, endurgjaldslaust. Ráðherra getur sett nánari reglur um þessar skyldur sveitarstjórnar.
     Laun eftirlitsmanna skulu greidd úr ríkissjóði.

4. gr.

     Meta skal hættu á ofanflóðum í þeim sveitarfélögum þar sem ofanflóð hafa fallið á byggð eða nærri henni eða hætta er talin á slíku. Skal hættumat fyrst og fremst ná til þéttbýlis og svæða þar sem þétt byggð er fyrirhuguð. Jafnframt fari slíkt mat fram á skipulögðum skíðasvæðum. Hættumat skal fela í sér mat á þeirri hættu sem lífi fólks er búin vegna ofanflóða á byggð svæði eða skipulögð byggingarsvæði. Við matið skal tekið tillit til varnarvirkja sem reist hafa verið.
     Veðurstofa Íslands annast gerð hættumats á grundvelli sérfræðilegrar þekkingar á eðli og afleiðingum ofanflóða samkvæmt beiðni hlutaðeigandi sveitarfélags.
     Hættumat öðlast gildi þegar ráðherra hefur staðfest það. Taka skal fullt tillit til hættumats við alla skipulagsgerð og skal það lagt fram sem fylgiskjal með skipulagstillögu.
     Reglur um gerð og notkun hættumats, flokkun hættusvæða og nýtingu þeirra skulu settar af ráðherra.

5. gr.

     Almannavarnir ríkisins skulu, undir yfirstjórn dómsmálaráðherra, annast gerð neyðaráætlana, svo og sjá um leiðbeiningar og almannafræðslu um hættu af ofanflóðum í samvinnu við Veðurstofu Íslands.
     Almannavarnir skulu skipuleggja og annast björgunar- og hjálparstörf vegna hættu eða tjóns sem skapast hefur vegna ofanflóða eftir því sem fyrir er mælt í lögum um almannavarnir og 6. og 7. gr. laga þessara.

6. gr.

     Þegar Veðurstofa Íslands, að höfðu samráði við lögreglustjóra og almannavarnanefnd, gefur út viðvörun um staðbundna snjóflóðahættu og lýsir yfir hættuástandi skal fólk flytja eða það flutt á brott úr öllu húsnæði á svæði eða svæðum, sem tilgreind skulu í viðvörun Veðurstofunnar, í samræmi við gildandi neyðaráætlun. Svæði þessi skulu afmörkuð á sérstökum uppdráttum sem Veðurstofan skal sjá um að gera á grundvelli sérfræðilegrar þekkingar á eðli og afleiðingum snjóflóða. Skulu uppdrættirnir staðfestir af umhverfisráðherra og kynntir Almannavörnum ríkisins og hlutaðeigandi almannavarnanefndum.
     Lögreglustjóri og almannavarnanefnd sjá um að rýma húsnæði skv. 1. mgr. og má beita valdi í því skyni ef þörf krefur. Á meðan hættuástand varir er öll umferð bönnuð um það svæði, sem rýmt hefur verið, nema með sérstöku leyfi lögreglustjóra.
     Veðurstofan tekur ákvörðun um það hvenær hættuástandi skuli aflétt að höfðu samráði við lögreglustjóra og almannavarnanefnd.
     Uppdrættir skv. 1. mgr. skulu endurskoðaðir í ljósi bestu þekkingar á eðli og afleiðingum snjóflóða og breyttra aðstæðna, svo sem vegna þess að reist hafa verið varanleg varnarvirki.

7. gr.

     Lögreglustjóri getur hvenær sem er, í samráði við almannavarnanefnd, ákveðið að rýma húsnæði vegna hættu á ofanflóðum, þótt hættuástandi hafi ekki verið lýst yfir skv. 6. gr. Að auki er heimilt að fyrirskipa að húsnæði skuli rýmt á stærra svæði eða svæðum en gert er ráð fyrir á uppdráttum Veðurstofu Íslands, þar á meðal á stöðum sem 6. gr. tekur ekki til. Má beita valdi til þess að rýma þannig húsnæði ef þörf krefur.
     Þá er lögreglustjóra heimilt í samráði við almannavarnanefnd að banna umferð um tilteknar götur og vegi vegna hættu á ofanflóðum utan svæða sem rýmd hafa verið skv. 6. gr. Í sama skyni er heimilt að banna fólki aðgang að skíðasvæðum og öðrum útivistarsvæðum.

8. gr.

     Í hvert sinn sem manntjón verður í byggð af völdum ofanflóðs skal skipa sérstaka nefnd til að rannsaka orsakir ofanflóðsins og afleiðingar þess. Enn fremur er heimilt að skipa slíka nefnd í öðrum tilvikum ef manntjón eða verulegt eignatjón hefur hlotist af ofanflóði.
     Forsætisráðherra skipar hverju sinni þrjá sérfróða menn í nefndina. Formaður nefndarinnar, sem uppfylla skal starfsgengisskilyrði héraðsdómara, skal skipaður án tilnefningar, en aðrir nefndarmenn samkvæmt tilnefningu dómsmálaráðherra og umhverfisráðherra.
     Rannsókn nefndarinnar skal einvörðungu miða að því að draga úr hættu af völdum ofanflóða. Nefndin starfar sjálfstætt og óháð stjórnvöldum og öðrum rannsóknaraðilum. Henni er heimilt að krefjast framlagningar á skjölum og öðrum gögnum er varða ofanflóð og taka skýrslur af hverjum þeim sem ætla má að kunni að geta veitt upplýsingar er að gagni mega koma við rannsóknina.
     Forsætisráðherra getur sett nánari reglur um störf nefndarinnar.
     Um rannsókn á ætlaðri refsiverðri háttsemi í tengslum við ofanflóð fer samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála og er slík rannsókn óháð rannsókn samkvæmt þessari grein.

9. gr.

     Ráðherra skipar þriggja manna nefnd, ofanflóðanefnd, til fjögurra ára í senn til að annast þau verkefni sem greinir í 2. mgr. Formaður nefndarinnar skal skipaður án tilnefningar, en aðrir nefndarmenn samkvæmt tilnefningu félagsmálaráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
     Verkefni ofanflóðanefndar eru:
  1. Að fjalla um og taka afstöðu til tillagna sveitarstjórnar skv. 10. og 11. gr.
  2. Að ráðstafa fé úr ofanflóðasjóði skv. 13. gr.

     Ákvarðanir ofanflóðanefndar skv. 2. mgr. öðlast fyrst gildi þegar ráðherra hefur staðfest þær. Ráðherra getur sett nánari reglur um störf nefndarinnar.

10. gr.

     Sveitarstjórn gerir tillögu til ofanflóðanefndar að varnarvirkjum fyrir hættusvæði sem þegar hafa verið byggð samkvæmt aðalskipulagi. Eftir að viðurkennd varnarvirki hafa verið reist er heimilt að meta af bærum aðilum hvort til greina komi að þétta byggð á viðkomandi svæði og þá með hvaða skilyrðum.
     Sveitarstjórn skal annast framkvæmdir við varnarvirki í samræmi við ákvörðun ofanflóðanefndar skv. 2. og 3. mgr. 9. gr. Framkvæmdir skulu unnar á grundvelli útboða þar sem því verður við komið.
     Sveitarstjórn ber ábyrgð á viðhaldi varnarvirkja.

11. gr.

     Ef hagkvæmara er talið, til að tryggja öryggi fólks gagnvart ofanflóðum, er sveitarstjórn heimilt að gera tillögu til ofanflóðanefndar um kaup eða flutning á húseignum í stað þess að reisa varnarvirki eða beita öðrum varnaraðgerðum. Auk húseigna getur sveitarstjórn í sama skyni gert tillögu um kaup á lóðum eða öðrum fasteignum.
     Sveitarstjórn skal sjá um að kaupa eignir eða flytja þær í samræmi við ákvörðun ofanflóðanefndar skv. 2. og 3. mgr. 9. gr.
     Sveitarfélag verður eigandi eigna sem keyptar eru samkvæmt þessari grein, en nýting þeirra er háð samþykki ráðherra.
     Náist ekki samkomulag um kaup á húseign er sveitarstjórn heimilt að taka eignina eignarnámi. Um eignarnám fer samkvæmt lögum um framkvæmd eignarnáms.

12. gr.

     Sérstakur sjóður ríkisins, ofanflóðasjóður, er í vörslu umhverfisráðuneytisins.
     Tekjur sjóðsins eru:
  1. Árlegt gjald sem lagt er á allar brunatryggðar húseignir og nemur 0,3‰ af vátryggingarverðmæti. Gjaldið skal innheimt ásamt iðgjaldi til Viðlagatryggingar Íslands og fer um innheimtu þess samkvæmt lögum um viðlagatryggingu, þar á meðal skal gjaldið njóta lögtaksréttar og lögveðréttar í vátryggðri eign. Álagning gjalds þessa skal ekki hafa áhrif til hækkunar á innheimtuþóknun til vátryggingafélaga samkvæmt lögum um viðlagatryggingu.
  2. Árlegt framlag á fjárlögum í samræmi við framkvæmdaáætlun sem lögð skal fram við gerð fjárlaga hverju sinni.
  3. Vaxtatekjur, sbr. 13. gr.
  4. Aðrar tekjur.

     Lán til starfsemi sjóðsins, sem eru með ábyrgð ríkissjóðs, skulu háð samþykki fjármálaráðherra.

13. gr.

     Fé ofanflóðasjóðs, sbr. 12. gr., skal notað til að greiða kostnað við rekstur sjóðsins og ofanflóðanefndar, svo og kostnað við varnir gegn ofanflóðum sem hér segir:
  1. Greiða skal allan kostnað við gerð hættumats skv. 4. gr. og uppdrátta skv. 6. gr.
  2. Greiða skal allan kostnað við kaup og uppsetningu á tækjum og búnaði sem sérstaklega er aflað til rannsókna og eftirlits með ofanflóðahættu. Sama gildir um kostnað við rannsóknir sem miða að því að bæta hættumat og hönnun varnarvirkja.
  3. Greiða má allt að 90% af kostnaði við undirbúning og framkvæmdir við varnarvirki skv. 1. og 2. mgr. 10. gr.
  4. Greiða má allt að 60% af kostnaði við viðhald varnarvirkja skv. 3. mgr. 10. gr.
  5. Greiða má allt að 90% af kostnaði við kaup eða eignarnám á húseignum, lóðum eða öðrum fasteignum, svo og af kostnaði við flutning húseigna, skv. 1., 2. og 4. mgr. 11. gr., eftir því sem nánar er fyrir mælt í 14. gr.

     Heimilt er að veita sveitarfélagi lán úr ofanflóðasjóði sem nemur kostnaðarhlut þess skv. 3. og 5. tölul. 1. mgr., enda sé því fjárhagslega ofviða að leggja fram sinn kostnaðarhlut. Lán skal veitt til 15 ára með sambærilegum kjörum og ofanflóðasjóði standa til boða. Þó skal endurgreiðsla af láninu, þar með taldir vextir og verðbætur, aldrei nema hærri fjárhæð á ári hverju en nemur 1% af höfuðstól lánsins, ásamt vöxtum og verðbótum, að viðbættum 0,15‰ af álagningarstofni fasteignaskatts af íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu og 50% af hreinum tekjum sveitarfélags vegna sölu eða leigu á eignum sem það hefur eignast skv. 3. mgr. 11. gr. Það sem eftir kann að standa af láninu að liðnum lánstíma skal falla niður.

14. gr.

     Ef ákveðið er að ofanflóðasjóður taki þátt í hluta af kostnaði við kaup eða eignarnám á eignum eða flutning á húseignum skv. 5. tölul. 13. gr. skal greiðsla úr sjóðnum miðast að hámarki við staðgreiðslumarkaðsverð sambærilegra húseigna í sveitarfélaginu utan hættusvæða. Við ákvörðun þess skal ekki tekið tillit til hækkunar á markaðsverði sem rekja má til ákvörðunar um kaup á húseignum á hættusvæði.
     Heimilt er að miða greiðslu úr sjóðnum við framreiknað kaupverð húseignar sem keypt hefur verið á síðustu árum, ásamt mati á kostnaði núverandi eiganda af endurbótum hennar, ef fyrir liggur að staðsetning húseignar á hættusvæði eða í námunda við það hefur haft áhrif til lækkunar markaðsverðs.
     Sjóðurinn greiðir ekki fyrir kaup á húseign sem unnt er að flytja, nema heildarkostnaður við flutning sé hærri en viðmiðunarverð skv. 1. og 2. mgr.

15. gr.

     Fella skal niður eða endurgreiða aðflutningsgjöld og virðisaukaskatt af efni og tækjum sem flutt eru hingað til lands eða framleidd eru hér á landi til varna gegn ofanflóðum.

16. gr.

     Umhverfisráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.

17. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla brott lög um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 28/1985, ásamt síðari breytingum.
     Ef hættumat hefur verið staðfest fyrir 1. janúar 1996 fellur það sjálfkrafa úr gildi við gildistöku laganna.

Ákvæði til bráðabirgða.
I.
     Sveitarstjórn leggur fram tillögu um skipulag nýrrar byggðar og nýbygginga í sveitarfélögum sem búa við snjóflóðahættu. Skipulagstillagan skal unnin í samræmi við reglur sem umhverfisráðherra setur. Ráðherra skal fá tillögur frá Skipulagi ríkisins, Veðurstofu Íslands og Sambandi íslenskra sveitarfélaga og skal liggja fyrir bráðabirgðahættumat. Skal styðjast við þær reglur þar til hættumat hefur verið staðfest fyrir hlutaðeigandi sveitarfélag.

II.
     Ofanflóðasjóður skal á árinu 1997 greiða laun eftirlitsmanna skv. 3. gr.

Samþykkt á Alþingi 12. maí 1997.