Stjórn fiskveiða

Mánudaginn 23. febrúar 1998, kl. 17:40:23 (4160)

1998-02-23 17:40:23# 122. lþ. 73.9 fundur 189. mál: #A stjórn fiskveiða# (handfæraveiðar, veiðiskylda, krókaveiðar o.fl.) frv., 236. mál: #A stjórn fiskveiða# (brottfall laga) frv., 252. mál: #A rannsóknir í þágu atvinnuveganna# (Hafrannsóknastofnun o.fl.) frv., 263. mál: #A ráðstafanir í sjávarútvegsmálum# (breyting ýmissa laga) frv., 269. mál: #A áhrif veiðarfæra á vistkerfi hafsbotnsins# þál., 308. mál: #A rannsókn á áhrifum dragnótaveiða# þál., 487. mál: #A stjórn fiskveiða# (frysti- og vinnsluskip) frv., EKG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 73. fundur, 122. lþ.

[17:40]

Einar K. Guðfinnsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Fyrst aðeins út af spurningum hv. þm. þá ætla ég mér kannski ekki þá dul á þessari stundu að svara því nákvæmlega hvaða riðil menn eigi að róa með á netunum í vetur. En það sem ég vil einfaldlega segja er það að ég tel að mjög veigamikil rök hafi verið flutt varðandi þá hættu sem í því felst að beina sókninni svona mikið í eldri árganga þorsksins. Það er ómótmælanlegt og er niðurstaða vísindamanna okkar að hrygning úr stærri þorskinum, eldri þorskinum, sé miklu líklegri til að skila árangri en hrygning úr yngri fiski. Þetta segir okkur að miklu líklegra er að hrygning takist vel og nýliðunin jafnvel í framhaldi ef aðstæðurnar eru sæmilegar í sjónum, að sem mestur hluti af hrygningunni fari fram úr þessari stærð. Og þess vegna held ég að það sé eðlilegt að við reynum að stýra sókninni með þeim hætti að hrygningin takist sem best og nýliðunin í framhaldi af því.

Ég hef ekki miklar áhyggjur af því, þó að við gripum til þess úrræðis nú að heimilda frjálsa sókn varðandi loðnuna það sem eftir væri, og hef ekki miklar áhyggjur af því að það í sjálfu sér kollvarpaði þessu fiskveiðistjórnarkerfi. Við gætum gert eins og hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon sagði áðan, við gætum út af fyrir sig byrjað bara á nýjan leik aftur á næsta ári og úthlutað kvótum, ef menn vilja endilega úthluta þessum kvótum. Það mundi enginn bíða tjón á sálu sinni við það. Og ég sé ekki að það mundi skaða þær útgerðir sem hvort eð er næðu ekki sínum kvóta vegna þess að svo skammt er orðið til stefnu, þó að aðrir fengju að veiða þetta. Ég held að um sé að ræða þjóðarhag sem við verðum að horfa á í þessu sambandi.