Gjöld af bifreiðum

Fimmtudaginn 04. júní 1998, kl. 09:52:40 (7410)

1998-06-04 09:52:40# 122. lþ. 144.21 fundur 715. mál: #A gjöld af bifreiðum# frv. 83/1998, Frsm. meiri hluta VE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 144. fundur, 122. lþ.

[09:52]

Frsm. meiri hluta (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta mál fékk algjörlega eðlilega meðferð í efh.- og viðskn. og var fjallað óvenjulega mikið um það. Það var afgreitt á eðlilegum tíma miðað við þann tíma sem ætlaður er til nefndarstarfa.

Ég hygg að fjallað hafi verið um þetta í þingflokkum --- a.m.k. þingflokkum stjórnarflokkanna nokkrum sinnum --- ég skal ekki svara fyrir um það hvort fjallað var um það í þingflokki jafnaðarmanna. En það kemur mér verulega á óvart að þingmaðurinn skuli ekki hafa vitað af þessu máli, jafnmikill áhugamaður um það og hann virðist vera.