Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1998

Laugardaginn 20. desember 1997, kl. 15:55:33 (2948)

1997-12-20 15:55:33# 122. lþ. 50.11 fundur 323. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum 1998# (breyting ýmissa laga) frv. 130/1997, Frsm. meiri hluta VE
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur

[15:55]

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir brtt. við frv. til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum á árinu 1998, svokölluðum bandormi. Brtt. er við 14. gr. um að 1.164 millj. komi í stað 1.064 millj. Þetta er spurning um hve mikið af mörkuðum tekjustofnum Vegagerðarinnar renna í ríkissjóð. Hér er ekki verið að flytja peninga úr þeim framkvæmdum sem fyrirhugaðar eru á næsta ári. Þær munu allar ganga fram, heldur er verið að endurspegla nýja tekjuspá um það hve tekjustofnarnir gefi mikið. Það liggur líka fyrir ef tekjustofnarnir gefa meira en samsvarar þessum upphæðum þá mun sú viðbót renna til vegagerðar.