Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 673, 122. löggjafarþing 43. mál: almannatryggingar (slysatrygging sjómanna).
Lög nr. 148 29. desember 1997.
Slysatryggðir samkvæmt þessum kafla eru:
Þingskjal 673, 122. löggjafarþing 43. mál: almannatryggingar (slysatrygging sjómanna).
Lög nr. 148 29. desember 1997.
Lög um breyting á lögum nr. 117/1993, um almannatryggingar, með síðari breytingum.
1. gr.
1. mgr. 24. gr. laganna orðast svo:Slysatryggðir samkvæmt þessum kafla eru:
- Launþegar sem starfa hér á landi að undanskildum erlendum ríkisborgurum sem gegna embætti fyrir erlend ríki og erlendu starfsliði slíkra embættismanna. Starf um borð í íslensku skipi eða íslensku loftfari, eða skipi eða loftfari sem gert er út eða rekið af íslenskum aðilum, jafngildir starfi hér á landi samkvæmt þessum lið, enda séu laun greidd hér á landi.
- Nemendur við iðnnám samkvæmt iðnfræðslulögum.
- Útgerðarmenn sem sjálfir eru skipverjar.
- Þeir sem vinna að björgun manna úr lífsháska eða vörnum gegn yfirvofandi meiri háttar tjóni á verðmætum.
- Íþróttafólk sem tekur þátt í íþróttaiðkunum, hvort heldur er æfingum, sýningum eða keppni og orðið er 16 ára. Með reglugerðarákvæði má ákveða nánar gildissvið þessa ákvæðis.
- Sjúklingar sem eru til meðferðar á sjúkrastofnunum sem starfa samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu og heilsutjónið eða örorkan er vegna læknisaðgerða eða mistaka starfsfólks sem starfar á þessum stofnunum.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 19. desember 1997.