Takmarkanir á notkun nagladekkja

Miðvikudaginn 10. febrúar 1999, kl. 18:23:45 (3470)

1999-02-10 18:23:45# 123. lþ. 63.9 fundur 288. mál: #A takmarkanir á notkun nagladekkja# fsp. (til munnl.) frá dómsmrh., dómsmrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur, 123. lþ.

[18:23]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Vegna þeirra ummæla hv. fyrirspyrjanda að eðlilegt geti verið að fulltrúar bifreiðaeigenda eða félagasamtaka þeirra komi að athugun mála á þessu sviði þá get ég alveg tekið undir þá ágætu ábendingu og mun beita mér fyrir því að þeir komi að þessari vinnu.