[prenta uppsett í dálka] 10. fundur, 123. lþ.
Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég vil nú þakka fyrirspyrjanda fyrir þessa fyrirspurn og jafnframt verð ég að viðurkenna að ég hafði ekki hugmynd um að þessi lög væru í gildi. En þegar við fórum að skoða lögin þá kemur í ljós að í héraðsdómum hefur verið vísað til þessara laga. Í Hæstarétti hefur ekki verið vísað til þeirra eða ákvarðað á grundvelli þeirra eftir 1978 a.m.k. Raunar er það þannig að nýrri ákvæði í vinnurétti hafa tekið við af mörgum ákvæðum í þessum lögum og með lögskýringu taka yngri lög af eldri lög.
En það er dálítið fróðlegt að lesa þessi lög og hugleiða þær þjóðfélagsbreytingar sem hafa orðið síðan þá. Þessi lög voru sett til varnar réttindum hjúa á sínum tíma, 1928. Þá voru þau fyrst og fremst til að vernda hjúið. Nú eru breyttir tímar, hjúin eru færri. Þó eru dæmi þess að fólk sé í svipaðri aðstöðu og hjú eða megi jafna til hjúa og þar á ég sérstaklega við au pair stúlkur sem kunna að eiga enn vörn í þessum lögum.
Ég held það væri þarfaverk og eðlilegt verk að að endurskoða þetta og reyna að færa til nútímahorfs og er tilbúinn að láta leggja vinnu í það þegar fram líða stundir. En ég get ekki lofað því að koma með frv. þess efnis á þessu þingi.