Ferill 346. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 450 — 346. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um útflutning hrossa, nr. 161/1994, sbr. lög nr. 73/1996.
(Lagt fyrir Alþingi á 123. löggjafarþingi 1998–99.)
1. gr.
2. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 161/1994, um útflutning hrossa, með síðari breytingum, er flutt m.a. að tillögu útflutnings- og markaðsnefndar. Um er að ræða að 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. verði breytt með hliðsjón af þeim breytingum á lögum sem orðið hafa annars vegar með búnaðarlögum, nr. 70/1998, og hins vegar með lögum um búnaðargjald, nr. 84/1997, með síðari breytingum. Með búnaðarlögum, nr. 70/1998, voru felld úr gildi lög nr. 84/1989, um búfjárrækt, og því æskilegt að breyta tilvísun 5. gr. laga nr. 161/1994 til þeirra laga. Stofnverndarsjóður starfar eftir sem áður, en nú á grundvelli 15. gr. búnaðarlaga, og er ákvæðinu breytt í samræmi við það. Með lögum um búnaðargjald, nr. 84/1997, með síðari breytingum, er kveðið á um að innheimta skuli sérstakt búnaðargjald af búvöruframleiðendum og skal ráðstafa ákveðnu hlutfalli af því gjaldi til Búnaðarsjóðs. Þykir af þessum sökum eðlilegt að fella niður þann hluta 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. laga um útflutning hrossa sem kveður á um að hluti þess gjalds sem útflytjendum hrossa er gert að greiða á grundvelli þeirra laga skuli renna í Búnaðarmálasjóð.
Útflutningsgjald nemur 1.200 kr. á hvern hest eða samtals 3,3 millj. kr. á ári, miðað við meðaltal útflutnings áranna 1994–96. Tillögurnar fela þannig í sér þá breytingu á þeim verkefnum, sem gjaldið er ætlað til, að ekki er gert ráð fyrir að hluti gjaldsins fari til Búnaðarmálasjóðs (nú Búnaðarsjóður).
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um
útflutning hrossa, nr. 161/1994, sbr. lög nr. 73/1996.