Ferill 296. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Nr. 1/123

Þskj. 620  —  296. mál.


Þingsályktun

um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 1999.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirtalda samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 1999 sem gerðir voru í Reykjavík 7. október 1998:
     1.      sameiginlega bókun um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 1999;
     2.      bókun um sérstakar verndunarráðstafanir með tilliti til stjórnunar veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 1999;
     3.      samning milli Íslands og Færeyja um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 1999;
     4.      samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands, efnahagslögsögu Noregs og fiskveiðilögsögu Jan Mayen á árinu 1999; og
     5.      samkomulag milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 1999.

Samþykkt á Alþingi 19. desember 1998.