Ferill 343. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 657  —  343. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta sjávarútvegsnefndar (KHG, ÁRÁ, GHall, StG, HjÁ, VE, EOK).



     1.      Við 1. gr. Við efnismálsgrein bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Á sama fiskveiðiári er þó aðeins heimilt að veita fiskiskipi eina gerð leyfis til veiða í atvinnuskyni, þ.e. veiðileyfi með almennu aflamarki, veiðileyfi með þorskaflahámarki, sbr. ákvæði til bráðabirgða I í lögum þessum, veiðileyfi með aflamarki sem úthlutað er samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögum þessum (krókaaflamarki) eða veiðileyfi með sóknar­dögum.
     2.      Við 2. gr. Greinin orðist svo:
                  6. gr. laganna orðast svo:
                  Bátar sem fá leyfi til handfæraveiða með dagatakmörkunum skulu frá og með 1. sept­ember 2000 stunda veiðar samkvæmt ákvæðum þessarar greinar.
                  Þessum bátum er einungis heimilt að stunda veiðar á tímabilinu 1. apríl til 30. sept­ember ár hvert. Þeim er einungis heimilt að stunda veiðar með handfærum. Þó er sjávar­útvegsráðherra heimilt að veita þeim leyfi til að stunda veiðar á botndýrum og háffiskum með sérhæfðum veiðarfærum og til hrognkelsaveiða í net.
                  Sameiginlegur hámarksþorskafli þeirra báta sem stunda veiðar samkvæmt þessari grein skal á hverju fiskveiðiári vera sama hlutfall af 13,75% af heildarþorskafla hvers fiskveiðiárs og nam samanlagðri hlutdeild þessara báta í 21.000 lestum miðað við reikn­að þorskaflahámark skv. 2. gr. laga nr. 83/1995, auk aflaheimilda sem úthlutað er sam­kvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögum þessum. Fjöldi sóknardaga skal ákveðinn fyrir hvert fiskveiðiár, í fyrsta sinn fyrir fiskveiðiárið sem hefst 1. september 2000, með því að reikna meðalþorskafla á hvern leyfðan sóknardag næstliðins fiskveiðiárs og deila þeirri tölu í hámarksþorskafla þessara báta á fiskveiðiárinu. Sóknardögum skal fækka eða fjölga um heila daga og sleppa broti. Sóknardögum skal þó aldrei fækka um meira en 25% milli fiskveiðiára.
                  Sóknardagur telst vera allt að 24 klst. frá upphafi veiðiferðar. Sóknardegi telst lokið þegar bátur landar afla. Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um fyrirkomulag sóknardaga og eftirlit með þeim. Utan sóknardaga eru allar veiðar bannaðar. Ráðherra getur þó heimilað að veiðar samkvæmt lokamálslið 2. mgr. séu utan sóknardaga.
                  Heimilt er að flytja sóknardaga innan hvers fiskveiðiárs eða varanlega milli báta sem hafa leyfi til handfæraveiða með dagatakmörkunum. Sé sá bátur sem sóknardagar eru fluttir til stærri, í brúttótonnum talið, en sá sem sóknardagar eru fluttir frá skal skerða flutta sóknardaga í hlutfalli við stærðarmun bátanna og sleppa broti. Þá skal með sama hætti fjölga sóknardögum sem fluttir eru til minni báts. Á sama hátt skal skerða sóknar­dagafjölda báts sem er stækkaður. Miða skal við stærð báta 1. janúar 1999. Óheimilt er að flytja hlutfallslega fleiri sóknardaga frá báti, umfram þá daga sem fluttir hafa verið til báts, en nemur hlutfallslegri nýtingu bátsins á úthlutuðum sóknardögum á fisk­veiðiárunum 1996/1997 og 1997/1998. Í því sambandi skal miðað við meðaltal af sókn­ardaganýtingu fiskveiðiáranna. Séu sóknardagar fluttir frá báti skulu þeir sóknardagar sem báturinn hefur eftir flutninginn vera mismunur þess fjölda sóknardaga sem heimilt er að flytja frá bátnum og þeirra sóknardaga sem fluttir hafa verið, að teknu tilliti til sóknardaga sem fluttir hafa verið til bátsins. Tilkynna skal Fiskistofu fyrir fram um flutning sóknardaga milli báta og öðlast flutningurinn ekki gildi fyrr en Fiskistofa hefur staðfest hann.
                  Óheimilt er að veita bátum 6 brúttótonn eða stærri, sem ekki hafa haft leyfi til hand­færaveiða með dagatakmörkunum, leyfi til að stunda veiðar samkvæmt þessari grein. Þá er óheimilt að stækka bát sem hefur leyfi til handfæraveiða með dagatakmörkunum þannig að hann verði 6 brúttótonn eða stærri.
     3.      Við 3. gr. Greinin orðist svo:
                  Í stað orðanna „eða þorskaflahámarks“ í 2. mgr. 6. gr. a laganna kemur: eða króka­aflamarks.
     4.      Við 4. gr. Greinin orðist svo:
                  1. tölul. 3. mgr. 7. gr. laganna orðast svo: Áætlaðan afla báta sem stunda veiðar með dagatakmörkunum.
     5.      Við 5. gr. Á eftir orðunum „6 brl.“ hvarvetna í greininni komi: eða 6 brúttótonn.
     6.      Við 6. gr. Greinin orðist svo:
                  Eftirtaldar breytingar verða á 12. gr. laganna:
                  a.      2. málsl. 1. mgr. fellur brott.
                  b.      Við 2. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þegar um er að ræða flutning aflamarks milli báta sem eru minni en 6 brl. eða 6 brúttótonn.
                  c.      1. málsl. 5. mgr. orðast svo: Veiði fiskiskip minna en 50% af samanlögðu aflamarki sínu í þorskígildum talið tvö fiskveiðiár í röð fellur aflahlutdeild þess niður og skal aflahlutdeild annarra skipa í viðkomandi tegundum hækka sem því nemur.
                  d.      Orðin „eða veiðileyfis“ í 6. mgr. falla brott.
                  e.      Við 7. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó er heimilt með samþykki Fiskistofu að víkja frá þessari takmörkun á heimild til flutnings aflamarks í þeim tilvikum að um breytingar á skipakosti viðkomandi útgerðar sé að ræða og aflahlutdeildin sé jafnframt flutt milli viðkomandi skipa.
                  f.      Við greinina bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                       Einungis er heimilt að flytja aflamark báts sem er minni en 6 brl. eða 6 brúttótonn til báts eða báta undir þeim stærðarmörkum. Ef bátur sem er minni en 6 brl. eða 6 brúttótonn er stækkaður umfram þau mörk er einungis heimilt að flytja þann hluta aflamarks bátsins sem leiddur er af þeirri aflahlutdeild sem báturinn hafði fyrir stækkun til báta sem eru minni en 6 brl. eða 6 brúttótonn.
     7.      Á eftir 6. gr. komi ný grein er orðist svo:
                  3. mgr. 18. gr. laganna orðast svo:
                  Innheimta skal sérstakt veiðieftirlitsgjald vegna báta sem stunda handfæraveiðar með dagatakmörkunum. Gjald samkvæmt þessari málsgrein skal innheimt árlega. Skal gjald­ið vera jafnhátt gjaldi vegna tilkynningar um aflamark skv. 2. mgr. og gilda ákvæði þeirrar málsgreinar um gjald þetta eftir því sem við getur átt. Gjald samkvæmt þessari málsgrein skal innheimt samhliða gjaldi vegna almenns veiðileyfis skv. 4. mgr. Skal gjaldið miðast við landaðan afla á undanfarandi tímabili frá 1. ágúst til 31. júlí og skráningu landaðs afla í aflaupplýsingakerfi Fiskistofu.
     8.      Við ákvæði til bráðabirgða I.
                  a.      1. mgr. orðist svo:
                       Bátar sem stundað hafa veiðar með línu og handfærum með dagatakmörkunum eða þorskaflahámarki, krókabátar, skulu á fiskveiðiárunum 1998/1999 og 1999/2000 stunda veiðar samkvæmt þessu ákvæði.
                  b.      Við 4. mgr. bætist nýr málsliður er verði 3. málsl., svohljóðandi: Heimilt er að flytja allt að 20% af þorskaflahámarki frá fiskveiðiárinu 1998/1999 yfir á fiskveiðiárið 1999/2000.
                  c.      Í stað orðanna „26 á fiskveiðiárinu 1998/1999“ í 1. málsl. 6. mgr. komi: 32 á hvoru fiskveiðiári 1998/1999 og 1999/2000.
                  d.      Í stað orðsins „fiskveiðiárinu“ í lokamálslið 6. mgr. komi: hvoru fiskveiðiári.
                  e.      Í stað tölunnar „32“ í fyrri málslið 8. mgr. komi: 40 á hvoru fiskveiðiári 1998/1999 og 1999/2000.
                  f.      Í stað orðsins „fiskveiðiárinu“ í síðari málslið 8. mgr. komi: hvoru fiskveiðiári.
                  g.      11. mgr. orðist svo:
                       Ráðherra getur ákveðið að afli teljist ekki til þorskaflahámarks og veiðidagar ekki til sóknardaga á tilteknum fjölda opinberra sjóstangaveiðimóta á fiskveiðiárun­um 1998/1999 og 1999/2000.
                  h.      Við bætist tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
                       Innheimta skal sérstakt veiðieftirlitsgjald vegna báta sem stunda veiðar samkvæmt þessu bráðabirgðaákvæði. Skal gjaldið vera jafnhátt gjaldi vegna tilkynningar um aflamark skv. 2. mgr. 18. gr. laganna og gilda ákvæði þeirrar málsgreinar um gjald þetta eftir því sem við getur átt. Gjald samkvæmt þessari málsgrein skal innheimt samhliða gjaldi vegna almenns veiðileyfis skv. 4. mgr. 18. gr. Skal gjaldið miðast við landaðan afla á undanfarandi tímabili frá 1. ágúst til 31. júlí og skráningu landaðs afla í aflaupplýsingakerfi Fiskistofu.
                       Þrátt fyrir ákvæði þessa bráðabirgðaákvæðis skal þeim bátum sem stundað hafa veiðar með línu og handfærum eða handfærum eingöngu með dagatakmörkunum gef­ast kostur á að velja að stunda veiðar samkvæmt ákvæðum 6. gr. laganna, enda hafi þeir tilkynnt Fiskistofu um val sitt fyrir 1. mars 1999. Á fiskveiðiárunum 1998/1999 og 1999/2000 skal þessum bátum heimilt að stunda veiðar í 23 sóknardaga án tak­markana á heildarafla. Að öðru leyti gildir bráðabirgðaákvæði þetta um veiðar þess­ara báta.
     9.      Við ákvæði til bráðabirgða II.
                  a.      3. og 4. mgr. orðist svo:
                       Þeirri 0,18% hlutdeild í hámarksþorskafla sem komið hefur í hlut báta sem stunda veiðar með línu og handfærum með dagatakmörkunum, auk aflahlutdeildar í þorski sem nemur 95 lestum miðað við óslægðan fisk, skal skipt milli báta á grundvelli afla­reynslu þannig að 80% séu miðuð við aflareynslu fiskveiðiárin 1996/1997 og 1997/1998 og 20% séu miðuð við reiknað þorskaflahámark skv. 2. gr. laga nr. 83/1995. Þó skal enginn bátur fá minni aflaheimild en 500 kg, miðað við óslægðan fisk.
                       Þeirri 0,93% hlutdeild í hámarksþorskafla sem komið hefur í hlut báta sem stunda veiðar með handfærum eingöngu með dagatakmörkunum, auk aflahlutdeildar í þorski sem nemur 506 lestum miðað við óslægðan fisk, skal skipt milli báta á grundvelli aflareynslu þannig að 80% séu miðuð við aflareynslu fiskveiðiárin 1996/1997 og 1997/1998 og 20% séu miðuð við reiknað þorskaflahámark skv. 2. gr. laga nr. 83/1995. Þó skal enginn bátur fá minni aflaheimild en 500 kg, miðað við óslægðan fisk.
                  b.      Í stað orðanna „framangreindum þremur árum“ í 2. málsl. 5. mgr. komi: árunum 1997, 1998 og 1999.
                  c.      Við ákvæðið bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                       Það aflamark sem úthlutað er á grundvelli aflahlutdeildar samkvæmt þessu ákvæði (krókaaflamark) er óheimilt að nýta á annan hátt en við línu- og handfæra­veiðar. Aflahlutdeild og aflamark samkvæmt þessu ákvæði verður ekki flutt til báts sem hefur aðra gerð veiðileyfis.
     10.      Í stað ákvæða til bráðabirgða III og IV komi þrjú ný ákvæði, svohljóðandi:
                  a.      (III.)
                       Á fiskveiðiárunum 1999/2000 til og með 2005/2006 skal úthluta árlega 4.000 lestum af þorski, að frádregnum 601 lest sem úthlutað er skv. 3. og 4. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II og úthlutun skv. 2. mgr. þessa bráðabirgðaákvæðis. Þessum afla­heimildum skal úthlutað til báta sem höfðu aflahlutdeild 1. desember 1998 og eru minni en 200 brúttótonn, enda hafi þeir landað þorskafla á fiskveiðiárinu 1996/1997 eða 1997/1998. Aflaheimildir þessar miðast við óslægðan fisk og skulu þær dregnar frá leyfðum heildarafla þorsks áður en honum er skipt á grundvelli aflahlutdeildar. Úthlutun til einstakra báta skal miðast við heildaraflamark þeirra í þorskígildum tal­ið. Við útreikning þennan skal miða við aflahlutdeildarstöðu þeirra 1. desember 1998, úthlutað heildaraflamark fiskveiðiársins 1998/1999 og verðmætastuðla á því fiskveiðiári, þó þannig að enginn bátur fái meira en 100% aukningu á þorskafla­marki og enginn hærri úthlutun en 10 lestir miðað við óslægðan fisk. Aldrei skal þó úthlutun samkvæmt þessari málsgrein leiða til þess að heildaraflaheimildir einstakra skipa verði meiri en 450 þorskígildislestir samtals.
                       Þá skal úthluta aflahlutdeild í þorski til aflamarksbáta sem eru minni en 6 brl. eða 6 brúttótonn, enda hafi þeir sömu eða meiri aflahlutdeild í þorski 1. september 1999 en 1. desember 1998 og hafi landað þorskafla á fiskveiðiárinu 1996/1997 eða 1997/1998. Þorskaflahlutdeild þessara báta skal aukin um 15% miðað við aflahlutdeildar­stöðu þeirra 1. desember 1998.
                       Við upphaf fiskveiðiársins 1999/2000 skal endurreikna aflahlutdeildir einstakra fiskiskipa að teknu tilliti til þeirra breytinga sem leiðir af ákvæðum til bráðabirgða II og III.
                  b.      (IV.)
                       Á fiskveiðiárunum 1999/2000 til og með fiskveiðiársins 2005/2006 hefur Byggðastofnun árlega til ráðstöfunar aflaheimildir sem nema 1.500 þorskígildislest­um, miðað við óslægðan fisk, til að styðja byggðarlög sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Skal þeim úthlutað í samráði við viðkomandi sveitar­stjórnir. Aflaheimildir skulu vera í þorski, ýsu, steinbít og ufsa í hlutfalli við leyfðan heildarafla af þessum tegundum. Aflaheimildir þessar miðast við óslægðan fisk og skulu þær dregnar frá leyfðum heildarafla þessara tegunda áður en honum er skipt á grundvelli aflahlutdeildar.
                  c.      (V.)
                       Sjávarútvegsráðherra skal skipa nefnd til að endurskoða lög um stjórn fiskveiða. Skal þeirri endurskoðun lokið fyrir lok fiskveiðiársins 2000/2001.