Ferill 512. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 824 — 512. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum um eftirlit með útlendingum, nr. 45 12. maí 1965, með síðari breytingum, o.fl.
(Lagt fyrir Alþingi á 123. löggjafarþingi 1998–99.)
1. gr.
Útlendingaeftirlitið er sérstök stofnun. Ráðherra skipar forstjóra Útlendingaeftirlitsins til fimm ára í senn. Forstjóri skal vera lögfræðingur.
2. gr.
3. gr.
Lög um vegabréf, nr. 136 22. desember 1998, breytast sem hér segir:
1. Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 1. mgr. 2. gr. laganna kemur: Útlendingaeftirlitinu.
2. Í stað orðsins „Ríkislögreglustjóra“ í 1. mgr. 7. gr. laganna kemur: Útlendingaeftirlitinu.
3. Í stað orðsins „Ríkislögreglustjóri“ í 8. gr. laganna kemur: Útlendingaeftirlitið.
4. Á eftir orðinu „lögreglu“ í 9. gr. laganna kemur: Útlendingaeftirlitinu.
Á eftir orðunum „skólastjóri Lögregluskóla ríkisins“ í 7. tölul. 22. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70 11. júní 1996, sbr. 9. gr. laga nr. 150/1996, kemur: forstjóri Útlendingaeftirlitsins.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um eftirlit með útlendingum, nr. 45/1965, er Útlendingaeftirlitið sérstök stofnun sem ríkislögreglustjóri veitir forstöðu.
Útlendingaeftirlitið hefur verið til sem sérstök stofnun frá árinu 1937. Samkvæmt 1. gr. fyrirmæla til sýslumanna, bæjarfógeta, lögreglustjóra og annara löggæslumann um framkvæmd eftirlits með útlendingum, nr. 117 16. október 1937, segir að sérstök stofnun, Útlendingaeftirlitið, sem lögreglustjórinn í Reykjavík veiti forstöðu og lúti yfirstjórn dómsmálaráðuneytisins, fari með störf þau sem nefndu ráðuneyti eru falin með lögum nr. 59/1936, um eftirlit með útlendingum. Við endurskoðun á lögunum um eftirlit með útlendingum árið 1965 var efnislega sambærilegt ákvæði sett í 20. gr. laganna. Með lögum nr. 133/1993 voru ýmsar ákvarðanir sem áður voru teknar í ráðuneytinu, svo sem um komu útlendings, synjun um útgáfu eða endurnýjun dvalarleyfis eða brottvísun úr landi, fluttar til Útlendingaeftirlitsins. Með 43. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 var síðan ákveðið að ríkislögreglustjóri veitti Útlendingaeftirlitinu forstöðu í stað lögreglustjórans í Reykjavík.
Þrátt fyrir að Útlendingaeftirlitið hafi frá stofnun þess verið sérstök stofnun var starfsemi þess samofin störfum lögreglunnar í Reykjavík þann tíma sem lögreglustjórinn í Reykjavík var veitti stofnuninni forstöðu. Þegar ríkislögreglustjóri tók yfir forstöðu Útlendingaeftirlitsins flutti stofnunin í húsnæði ríkislögreglustjóra.
Í frumvarpi þessu er lagt til að í stað þess að ríkislögreglustjóri veiti Útlendingaeftirlitinu forstöðu fái stofnunin sérstakan forstjóra og er markmiðið að aðskilja rekstur og starfsemi Útlendingaeftirlitsins frá starfsemi ríkislögreglustjóra. Jafnframt er lagt til að Útlendingaeftirlitinu verði falið að annast útgáfu vegabréfa. Helstu rökin fyrir þessari breytingu eru að þau málefni sem Útlendingaeftirlitið sinnir eru í eðli sínu ekki lögreglustörf og því óeðlilegt að ríkislögreglustjóri sé yfirmaður stofnunarinnar. Þá hafa þau verkefni sem heyra undir stofnunina aukist verulega á undanförnum missirum og fyrirséð að sú þróun mun halda áfram, m.a. með því að flytja til stofnunarinnar verkefni sem nú er sinnt í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Af þessu leiðir að nauðsynlegt er að styrkja starfsemi stofnunarinnar og marka henni sjálfstæðan farveg.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Frumvarp til laga um breyting á lögum um eftirlit með útlendingum,
nr. 45 12. maí 1965, með síðari breytingum, o.fl.