Ferill 183. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1027 — 183. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á skaðabótalögum, nr. 50 19. maí 1993, sbr. lög nr. 42 13. maí 1996.
(Eftir 2. umr., 8. mars.)
1. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Bætur fyrir atvinnutjón skal ákveða fyrir tímann frá því að tjón varð þangað til tjónþoli getur hafið vinnu að nýju eða þar til heilsufar hans er orðið stöðugt.
b. Á eftir orðunum „veikinda- eða slysaforföllum“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 60% af greiðslu frá lífeyrissjóði, greiðslur frá sjúkrasjóði.
2. gr.
3. gr.
Þegar fjárhæð bóta fyrir varanlegan miska er ákveðin skal litið til þess hvers eðlis og hversu miklar afleiðingar tjóns eru frá læknisfræðilegu sjónarmiði, svo og til erfiðleika sem það veldur í lífi tjónþola. Varanlegur miski skal metinn til stiga og skal miða við heilsufar tjónþola eins og það er þegar það er orðið stöðugt.
Bætur fara eftir aldri tjónþola á tjónsdegi og skulu vera þessar fyrir algeran, 100 stiga, miska:
Aldur | Krónur | Aldur | Krónur |
49 ára og yngri | 4.000.000 | 62 ára | 3.480.000 |
50 ára | 3.960.000 | 63 ára | 3.440.000 |
51 árs | 3.920.000 | 64 ára | 3.400.000 |
52 ára | 3.880.000 | 65 ára | 3.360.000 |
53 ára | 3.840.000 | 66 ára | 3.320.000 |
54 ára | 3.800.000 | 67 ára | 3.280.000 |
55 ára | 3.760.000 | 68 ára | 3.240.000 |
56 ára | 3.720.000 | 69 ára | 3.200.000 |
57 ára | 3.680.000 | 70 ára | 3.160.000 |
58 ára | 3.640.000 | 71 árs | 3.120.000 |
59 ára | 3.600.000 | 72 ára | 3.080.000 |
60 ára | 3.560.000 | 73 ára | 3.040.000 |
61 árs | 3.520.000 | 74 ára eða eldri | 3.000.000 |
Um greiðslur frá þriðja manni fer eftir 4. mgr. 5. gr.
4. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Valdi líkamstjón, þegar heilsufar tjónþola er orðið stöðugt, varanlegri skerðingu á getu til að afla vinnutekna á tjónþoli rétt á bótum fyrir varanlega örorku.
b. 4. mgr. orðast svo:
Frá skaðabótakröfu vegna líkamstjóns dragast greiðslur sem tjónþoli fær frá almannatryggingum, bætur frá slysatryggingu ökumanns eftir umferðarlögum og bætur frá sams konar slysatryggingu manns er slasast sem farþegi í eigin ökutæki. Greiðslur frá samnings- eða lögbundinni atvinnuslysatryggingu launþega dragast frá skaðabótakröfu hans á hendur vinnuveitanda þeim sem slysatrygginguna keypti. Jafnframt skal draga frá skaðabótakröfu 40% af reiknuðu eingreiðsluverðmæti örorkulífeyris frá lífeyrissjóði og skal við útreikninginn miðað við 4,5% ársafvöxtun. Aðrar greiðslur sem tjónþoli fær frá þriðja manni vegna líkamstjóns, svo sem lífeyrissjóði eða vátryggingafélagi, dragast ekki frá skaðabótakröfu.
5. gr.
Bætur fyrir varanlega örorku skal meta til fjárhæðar á grundvelli örorkustigs tjónþola skv. 5. gr., árslauna hans skv. 7. gr. og eftirfarandi töflu, þannig að margfölduð séu saman örorkustig, árslaun og stuðull töflunnar í samræmi við aldur tjónþola á þeim tíma sem upphaf varanlegrar örorku miðast við:
Aldur | Stuðull | Aldur | Stuðull | Aldur | Stuðull | ||
0 | 11,438 | 25 | 15,101 | 50 | 7,834 | ||
1 | 11,746 | 26 | 14,567 | 51 | 7,626 | ||
2 | 12,064 | 27 | 14,161 | 52 | 7,370 | ||
3 | 12,389 | 28 | 13,750 | 53 | 7,139 | ||
4 | 12,724 | 29 | 13,474 | 54 | 6,932 | ||
5 | 13,067 | 30 | 12,813 | 55 | 6,678 | ||
6 | 13,420 | 31 | 12,595 | 56 | 6,378 | ||
7 | 13,782 | 32 | 12,367 | 57 | 6,037 | ||
8 | 14,155 | 33 | 12,150 | 58 | 5,687 | ||
9 | 14,537 | 34 | 11,915 | 59 | 5,329 | ||
10 | 14,929 | 35 | 11,678 | 60 | 4,960 | ||
11 | 15,332 | 36 | 11,433 | 61 | 4,581 | ||
12 | 15,746 | 37 | 11,180 | 62 | 4,211 | ||
13 | 16,171 | 38 | 10,988 | 63 | 3,841 | ||
14 | 16,608 | 39 | 10,784 | 64 | 3,451 | ||
15 | 17,057 | 40 | 10,577 | 65 | 3,038 | ||
16 | 17,517 | 41 | 10,358 | 66 | 2,567 | ||
17 | 17,990 | 42 | 10,083 | 67 | 2,067 | ||
18 | 18,476 | 43 | 9,851 | 68 | 1,994 | ||
19 | 18,031 | 44 | 9,565 | 69 | 1,902 | ||
20 | 17,572 | 45 | 9,265 | 70 | 1,783 | ||
21 | 17,106 | 46 | 9,014 | 71 | 1,626 | ||
22 | 16,626 | 47 | 8,750 | 72 | 1,412 | ||
23 | 16,130 | 48 | 8,440 | 73 | 1,109 | ||
24 | 15,619 | 49 | 8,116 | 74 | 0,667 |
Sé tjónþoli orðinn 75 ára á þeim tíma sem upphaf varanlegrar örorku miðast við, en hafi stundað vinnu þegar tjón varð, skal ákvarða honum bætur skv. 1. mgr. og skal þá notaður margfeldisstuðullinn 0,588.
Bótafjárhæðin skal greidd í einu lagi.
6. gr.
Árslaun til ákvörðunar bóta skv. 6. gr. skulu teljast vera meðalatvinnutekjur tjónþola að meðtöldu framlagi vinnuveitanda til lífeyrissjóðs þrjú síðustu almanaksárin fyrir þann dag er tjón varð, leiðrétt samkvæmt launavísitölu til þess tíma sem upphaf varanlegrar örorku miðast við.
Árslaun skulu þó metin sérstaklega þegar óvenjulegar aðstæður eru fyrir hendi og ætla má að annar mælikvarði sé réttari á líklegar framtíðartekjur tjónþola.
Þrátt fyrir ákvæði 1.–2. mgr. skal ekki miða við lægri árslaun en tilgreint er í þessari töflu:
Aldur | Kr. |
66 ára og yngri | 1.200.000 |
67 ára | 1.100.000 |
68 ára | 1.000.000 |
69 ára | 900.000 |
70 ára | 800.000 |
71 árs | 700.000 |
72 ára | 600.000 |
73 ára | 500.000 |
74 ára | 400.000 |
Ekki skal miða við hærri árslaun en 4.500.000 kr.
7. gr.
Bætur til barna og tjónþola, sem að verulegu leyti nýta vinnugetu sína þannig að þeir hafa engar eða takmarkaðar vinnutekjur, skal ákvarða á grundvelli örorkustigs skv. 5. gr. Bætur skulu ákveðnar eftir reglum 5.–7. gr.
8. gr.
Í 4. og 6. gr. eru töflugildin miðuð við upphaf aldursárs. Við útreikning bóta skal reiknað með að margfeldisstuðull breytist hlutfallslega jafnt milli töflugilda.
9. gr.
Mat á örorku. Örorkunefnd.
Í örorkunefnd eiga sæti þrír menn sem skipaðir eru af dómsmálaráðherra til sex ára í senn. Skulu tveir nefndarmanna vera læknar, en einn lögfræðingur og er hann formaður nefndarinnar. Formaður skal fullnægja skilyrðum laga til að hljóta skipun í embætti hæstaréttardómara. Ráðherra skipar varamenn eftir sömu reglum og aðalmenn. Ráðherra er heimilt, að ósk nefndarinnar, að fjölga nefndarmönnum tímabundið, í því skyni að tryggja að afgreiðsla mála dragist ekki. Um hæfi nefndarmanna til þess að fara með mál skal fara eftir reglum laga um sérstakt hæfi dómara.
Örorkunefnd skal semja töflur um miskastig.
Ráðherra setur reglugerð um starfsháttu örorkunefndar. Í reglugerðinni skal m.a. vera heimild fyrir nefndina til þess að kveðja lækna og aðra sérfróða menn til starfa í þágu nefndarinnar og jafnframt ákveðið hvernig staðið skuli að birtingu helstu álitsgerða hennar. Í reglugerð skal og kveða á um gjald fyrir álitsgerðir nefndarinnar.
10. gr.
11. gr.
12. gr.
Bætur fyrir þjáningar, varanlegan miska, tímabundið atvinnutjón og missi framfæranda bera vexti frá því að tjón varð. Bætur fyrir varanlega örorku bera vexti frá upphafsdegi metinnar örorku skv. 5. gr. Vextirnir skulu nema 4,5% á ári.
13. gr.
Heimilt er að láta þann sem:
a. af ásetningi eða stórfelldu gáleysi veldur líkamstjóni eða
b. ábyrgð ber á ólögmætri meingerð gegn frelsi, friði, æru eða persónu annars manns greiða miskabætur til þess sem misgert var við.
Þeim sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi veldur dauða annars manns má gera að greiða maka, börnum eða foreldrum miskabætur.
14. gr.
Fjárhæðir samkvæmt lögum þessum eru miðaðar við lánskjaravísitölu eins og hún var 1. júlí 1993 (3282) og taka þær sömu breytingum og mælt er fyrir um í 15. gr., sbr. einnig lög nr. 12/1995, um vísitölu neysluverðs.
15. gr.
Ákvæði til bráðabirgða, sbr. lög nr. 42/1996 og nr. 149/1997, fellur brott.