Ferill 45. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1044  —  45. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um vegtolla.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið á fundum sínum. Umsagnir bárust frá Samtökum sveitar­félaga í Norðurlandi vestra, Sambandi sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, Vegagerðinni, Speli ehf., Þorvaldi Gylfasyni, prófessor við Háskóla Íslands, Eyþingi – Sambandi sveitar­félaga á Norðurlandi eystra, umhverfisráðuneyti, Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgar­svæðinu og Stefáni Gíslasyni.
    Tillagan gerir ráð fyrir að ríkisstjórninni verði falið að skipa nefnd er kanni hvort hægt sé að beita vegtollum til að draga úr þörf á gerð samgöngumannvirkja, stuðla að minni meng­un og afla fjár til vegagerðar.
    Nefndin áréttar að hún tekur ekki afstöðu til þess hvort vegtollum skuli beitt eða ekki og leggur áherslu á að heildarskattheimta af bifreiðum aukist ekki.
         Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:

    Tillögugreinin orðist svo:
    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd er kanni hvort unnt sé og skyn­samlegt að beita vegtollum til þess að draga úr þörf fyrir gerð samgöngumannvirkja, stuðla að minni mengun og afla fjár til vegagerðar. Miðað verði við að heildarskattheimta af bif­reiðum og umferð aukist ekki.

    Stefán Guðmundsson og Ásta R. Jóhannesdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 3. mars 1999.



Einar K. Guðfinnsson,


form., frsm.


Guðmundur Árni Stefánsson.


Egill Jónsson.



Ragnar Arnalds.


Árni Johnsen.


Magnús Stefánsson.



Kristján Pálsson.