[prenta uppsett í dálka] 73. fundur, 125. lþ.
Kristján Pálsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. Drífa Hjartardóttir hefur kannski ekki alveg hlustað á það sem ég sagði. Ég hafði einfaldlega eftir henni það er hún sagði að hún vissi til þess að fjöldi tannlækna væri sammála því að tannsmiðir fengju þau réttindi sem þetta frv. gerir ráð fyrir. Eins og ég sagði í ræðu minni þá er Tannlæknafélag Íslands algerlega mótfallið þessu máli. (Gripið fram í.) Ég hafði það ekki heldur eftir hv. þm. að hún hefði sagt að Tannlæknafélag Íslands væri samþykkt þessu frv.
Tannlæknar eru samþykkir því að tannsmiðir fái full réttindi eins og um er talað í þessu frv. að undangengnu sambærilegu námi og tíðkast í Danmörku. Ég vona að við hv. þm. Drífa Hjartardóttir höfum því náð að skilja fyllilega hvort annað í þessu máli.