2000-03-13 15:08:55# 125. lþ. 77.92 fundur 370#B ummæli forsætisráðherra í umræðu um starfsemi og fjárreiður stjórnmálasamtaka# (aths. um störf þingsins), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 77. fundur, 125. lþ.

[15:08]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Þegar ég horfði yfir þennan sal úr þessum ræðustól þá var enginn formaður stjórnmálaflokks eða varaformaður svo ég muni í salnum. Að vísu kann að vera að hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir sé enn þá formaður stjórnmálaflokks. Ég man ekki hvernig háttar um hennar flokk. Er hún enn þá formaður flokks? Hún veit það ekki sennilega, svarar því a.m.k. ekki.

En þannig er nú þetta. Maður veit ekki nákvæmlega hvernig þetta er. En það var enginn formaður og ekki einu sinni tilvonandi formaður stjórnmálaflokks í salnum þegar þetta var. Þetta voru þó fjármál stjórnmálaflokka sem þarna voru rædd.