[prenta uppsett í dálka] 117. fundur, 125. lþ.
Forseti (Guðjón Guðmundsson):
Forseti vill minna á að hér er verið að taka til umræðu mál sem er löngu komið út úr nefnd. Forseti hefur skilning á því að hv. þm. eru misjafnlega ánægðir með hvaða mál eru afgreidd út úr nefndum. Það snýr hins vegar ekki að forsetum þingsins. Það er okkar að taka á dagskrá þau mál sem eru afgreidd úr nefndunum. Menn getur svo greint á um það hvaða mál á að afgreiða út úr nefndunum en þegar þau eru komin þaðan snýr það að forseta að taka þau á dagskrá.