Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Ég lýsi undrun minni á því að ekki eigi að verða við ósk síðasta ræðumanns sem er framsögumaður minni hlutans í þessu máli. Þó að þetta mál hafi verið á dagskrá í dag er ekki farið nákvæmlega eftir röðun dagskrárinnar þannig að hv. þm. sem á að mæla fyrir minnihlutaálitinu fer fram með sanngjarna ósk, þ.e. að óska eftir því að gert sé 10 mínútna hlé.
Miðað við það mál sem á að fara á dagskrá, aðdraganda þessa máls og þær umræður sem hafa orðið, herra forseti, þá finnst mér lágmark að verða við þeirri ósk sem kemur fram hjá fulltrúa minni hlutans, sem vill mjög gjarnan hlýða á mál meiri hlutans eins og hún hefur sagt. Ég tek undir þá ósk og óska eindregið eftir því að forseti verði við þeirri ósk sem kom fram hjá 17. þm. Reykv.