Ferill 299. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 516  —  299. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um flugmálaáætlun árin 2000–2003 .


(Lögð fyrir Alþingi á 125. löggjafarþingi 1999–2000.)





    Alþingi ályktar að framkvæmdum í flugmálum og rekstri flugvalla skuli hagað samkvæmt eftirfarandi flugmálaáætlun fyrir árin 2000–2003.

I. ÁÆTLUN UM FJÁRÖFLUN OG GJÖLD
(Fjárhæðir í millj. kr.)


2000 2001 2002 2003
1.1 Flugmálaáætlun
Tekjur
Flugvallagjald
654 687 721 757
Frestun framkvæmda
-100 100
Lántaka
203 119 331 120
757 906 1.052 877
Gjöld
Til rekstrar
66 69 73 76
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
64 74 74 74
Reykjavík
319 423 545 0
Aðrir flugvellir og fleira
308 340 360 513
Afborganir lána
0 0 0 214
757 906 1.052 877
1.2 Flugmálastjórn
Tekjur
Ríkistekjur
152 152 152 152
Sértekjur
210 210 210 210
Frá flugmálaáætlun
66 69 73 76
Framlag á fjárlögum
681 678 674 671
1.109 1.109 1.109 1.109
Gjöld
Rekstur flugvalla
386 386 386 386
Annar rekstur
648 648 648 648
Hlutdeild Flugmálastjórnar í Alþjóðaflugþjónustu
50 50 50 50
Hlutdeild Landssíma Íslands í Alþjóðaflugþjónustu
19 19 19 19
Hlutdeild Veðurstofu í Alþjóðaflugþjónustu
6 6 6 6
1.109 1.109 1.109 1.109
1.3 Alþjóðaflugþjónustan
Tekjur
Yfirflugsgjöld Flugmálastjórnar
957 957 957 957
957 957 957 957
Gjöld
Rekstur Flugmálastjórnar
1.007 1.007 1.007 1.007
Hlutdeild Flugmálastjórnar
-50 -50 -50 -50
957 957 957 957


II. SKIPTING ÚTGJALDA
(Fjárhæðir í millj. kr.)


2000 2001 2002 2003
2.1 Rekstur
1. Allar deildir
1.109,0 1.109,0 1.109,0 1.109,0
2. Alþjóðaflugþjónustan
957,0 957,0 957,0 957,0
2.066,0 2.066,0 2.066,0 2.066,0
2.2 Flugvellir í flokki I
1. Flugbrautir og hlöð
319,0 423,0 545,0 0,0
2. Byggingar
60,5 53,0 37,0 72,5
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
2,0 25,5 23,5 15,0
381,5 501,5 605,5 87,5
2.3 Flugvellir í flokki II
1. Flugbrautir og hlöð
58,0 6,0 22,0 0,0
2. Byggingar
11,5 0,0 0,0 15,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
14,0 31,0 55,0 58,5
83,5 37,0 77,0 73,5
2.4 Flugvellir í flokki III
1. Flugbrautir og hlöð
4,0 14,0 40,0 10,0
2. Byggingar
3,0 1,0 0,5 1,5
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
2,0 0,0 0,0 0,0
9,0 15,0 40,5 11,5
2.5 Flugvellir í flokki IV
1. Flugbrautir og hlöð
0,0 0,0 0,0 0,0
2. Byggingar
0,0 0,0 0,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
0,0 0,0 0,0 0,0
0,0 0,0 0,0 0,0
2.6 Flugvellir í flokki V
1. Flugbrautir og hlöð
4,0 0,0 0,0 65,0
2. Byggingar
0,0 0,0 0,0 33,5
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
0,0 0,0 0,0 26,0
4,0 0,0 0,0 124,5
2.7 Flugvellir í flokki VI
1. Flugbrautir og hlöð
0,0 0,0 0,0 0,0
2. Byggingar
0,0 0,0 0,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
0,0 0,0 0,0 0,0
0,0 0,0 0,0 0,0
2.8
Flugumferðar- og flugleiðsöguþjónusta
37,0 57,0 51,0 51,0
2.9
Annar kostnaður
112,0 152,5 131,0 165,0
2.10
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
64,0 74,0 74,0 74,0
Samtals
2.757,0 2.903,0 3.045,0 2.653,0


III. FLOKKUN FLUGVALLA


3.1 Flokkur I.
    Eftirfarandi áætlunarflugvellir eru flokkaðir í flokk I: Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvöllur.

3.2 Flokkur II.
    Eftirfarandi áætlunarflugvellir eru flokkaðir í flokk II: Vestmannaeyja-, Ísafjarðar-, Hornafjarðar-, Húsavíkur-, Sauðárkróks-, Bíldudals- og Þórshafnarflugvöllur.

3.2 Flokkur III.
    Eftirfarandi áætlunarflugvellir eru flokkaðir í flokk III: Grímseyjar-, Siglufjarðar-, Vopnafjarðar-, Gjögur-, Þingeyrar-, Patreksfjarðar- og Bakkaflugvöllur.

3.2 Flokkur IV.
    Eftirfarandi þjónustuflugvellir eru flokkaðir í flokk IV: Kópaskers-, Mývatns-, Norðfjarðar-, Raufarhafnar- og Rifsflugvöllur.

3.2 Flokkur V.
    Eftirfarandi kennslu- og æfingaflugvellir eru flokkaðir í flokk V: Blönduós-, Borgarnes-, Dagverðarár-, Flúða-, Hellu-, Húsafells-, Sandskeiðs-, Selfoss-, Stóra-Kropps- og Stykkishólmsflugvöllur.

3.2 Flokkur VI.
    Eftirfarandir flugvellir og lendingarstaðir eru flokkaðir í flokk VI: Arngerðareyri, Álftaver, Bakkafjörður, Breiðdalsvík, Fagurhólsmýri, Fáskrúðsfjörður, Geysir, Grímsstaðir, Borgarfjörður Eystri, Breiðdalsvík, Búðardalur, Bæir, Djúpivogur, Grundarfjörður, Herðubreiðarlindir, Holt, Hólmavík, Hrafnseyri, Hrauneyjafoss, Hrísey, Hvammstangi, Hveravellir, Hvolsvöllur, Ingjaldssandur, Kaldármelar, Kerlingarfjöll, Kirkjubæjarklaustur, Króksfjarðarnes, Melgerðismelar, Múlakot, Narfastaðamelar, Núpur, Nýidalur, Ólafsfjörður, Reykhólar, Reykjahlíð, Reykjanes, Sandármelar, Skálavatn, Skógarsandur, Sprengisandur, Steinasandur, Stóra-Holt, Svínafell, Tálknafjörður, Vík, Þórisós og Þórsmörk.

IV. SUNDURLIÐUN FRAMKVÆMDA


Staður – verkefnaflokkur 2000 2001 2002 2003
4.1 Reykjavíkurflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð
319,0 423,0 545,0 0,0
2. Byggingar
5,0 10,0 0,0 72,5
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
0,0 19,0 18,5 0,0
324,0 452,0 563,5 72,5
4.2 Akureyrarflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð
0,0 0,0 0,0 0,0
2. Byggingar
51,5 43,0 35,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
2,0 5,5 5,0 15,0
53,5 48,5 40,0 15,0
4.3 Vestmannaeyjaflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð
35,0 6,0 22,0 0,0
2. Byggingar
5,5 0,0 0,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
14,0 17,0 13,0 0,0
54,5 23,0 35,0 0,0
4.4 Egilsstaðaflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð
0,0 0,0 0,0 0,0
2. Byggingar
4,0 0,0 2,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
0,0 1,0 0,0 0,0
4,0 1,0 2,0 0,0
4.5 Ísafjarðarflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð
13,0 0,0 0,0 0,0
2. Byggingar
0,0 0,0 0,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
0,0 10,0 38,0 58,5
13,0 10,0 48,0 58,5
4.6 Hornafjarðarflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð
0,0 0,0 0,0 0,0
2. Byggingar
6,0 0,0 0,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
0,0 2,0 4,0 0,0
6,0 2,0 4,0 0,0
4.7 Bíldudalsflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð
10,0 0,0 0,0 0,0
2. Byggingar
0,0 0,0 0,0 15,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
0,0 0,0 0,0 0,0
10,0 0,0 0,0 15,0
4.8 Siglufjarðarflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð
0,0 4,0 0,0 0,0
2. Byggingar
1,0 1,0 0,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
0,0 0,0 0,0 0,0
1,0 5,0 0,0 0,0
4.9 Þórshafnarflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð
0,0 0,0 0,0 0,0
2. Byggingar
0,0 0,0 0,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
0,0 2,0 0,0 0,0
0,0 2,0 0,0 0,0
4.10 Vopnafjarðarflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð
0,0 0,0 10,0 10,0
2. Byggingar
0,0 0,0 0,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
2,0 0,0 0,0 0,0
2,0 0,0 10,0 10,0
4.11 Gjögurflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð
0,0 0,0 0,0 0,0
2. Byggingar
2,0 0,0 0,5 1,5
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
0,0 0,0 0,0 0,0
2,0 0,0 0,5 1,5
4.12 Bakkaflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð
4,0 10,0 30,0 0,0
2. Byggingar
0,0 0,0 0,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
0,0 0,0 0,0 0,0
4,0 10,0 30,0 0,0
4.13 Stóri-Kroppur
1. Flugbrautir og hlöð
3,0 0,0 0,0 0,0
2. Byggingar
1,0 0,0 0,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
0,0 0,0 0,0 0,0
4,0 0,0 0,0 0,0
4.14 Æfingaflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð
0,0 0,0 0,0 45,0
2. Byggingar
0,0 0,0 0,0 33,5
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður
0,0 0,0 0,0 26,0
0,0 0,0 0,0 124,5
4.15
Flugumferðar- og flugleiðsöguþjónusta
37,0 57,0 51,0 51,0
4.16
Annar kostnaður
112,0 152,5 131,0 165,0
4.17
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
64,0 74,0 74,0 74,0
4.18
Til reksturs flugvalla
66,0 69,0 73,0 76,0
Flugmálaáætlun samtals
757,0 906,0 1.052,0 663,0


Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.



Inngangur.
    Þessi greinargerð fjallar um endurskoðun og tillögur til nýframkvæmda á flugmálaáætlun á árunum frá og með 2000 til og með 2003. Sú flugmálaáætlun sem nú er í gildi nær til áranna frá og með 1998 til og með 2001. Því er í þessari greinargerð um endurskoðun að ræða á framkvæmdum á árunum 2000 og 2001, en nýjar framkvæmdir á árunum 2002 og 2003. Þeim framkvæmdum sem hér er fjallað um má skipta í tvo flokka, annars vegar viðhaldsframkvæmdir og hins vegar nýframkvæmdir. Til viðhaldsframkvæmda teljast aðeins meiri háttar framkvæmdir eins og slitlagsyfirlög á flugbrautir og hlöð, málun flugbrauta, endurbygging bygginga, endurnýjun tækjabúnaðar o.þ.h. Allur annar viðhaldskostnaður er færður á rekstur viðkomandi viðfangsefna. Sú nýbreytni er nú tekin upp að viðhaldsverkefni varðandi endurnýjun slitlags og málun flugbrauta eru ekki tilgreind á einstaka flugvelli, heldur er ráðgerð meðalnýting á malbiksslitlagi 18 ár, á klæðingarslitlagi 8 ár og málningu 3–4 ár. Síðan er ráðgert á hverju ári viðhald og endunýjun slitlags og málningar í hlutfalli við þessa nýtingu. Allir flugvellir með slitlagi eru metnir árlega og slitlag og málning endurnýjuð þar sem mest er þörfin. Auk framkvæmda sem eru tengdar einstökum flugvöllum eru einnig áætlaðar framkvæmdir sem tengjast fjarskiptum og flugleiðsögu yfir Íslandi.

Framkvæmdaverkefni flugvalla.
    Til að stuðla að markvissri forgangsröðun verkefna hefur flugvöllum verið skipt í sex flokka. Fyrir hvern flokk eru skilgreindar kröfur sem eftirfarandi þættir verða að uppfylla
     —      Flugbrautir.
     —      Öryggissvæði.
     —      Hlöð.
     —      Bílastæði.
     —      Flugturn.
     —      Flugstöð.
     —      Tækjageymsla.
     —      Sandgeymsla.
     —      Slökkvi- og björgunarbúnaður.
     —      Snjóhreinsibúnaður.
     —      Flugleiðsögubúnaður.
     —      Fjarskiptabúnaður.
     —      Veðurmælibúnaður.
     —      Flugbrautarljós.
     —      Hlaðlýsing.
     —      Raforkudreifikerfi.
    Síðan er einstökum flugvöllum skipað í viðeigandi flokka og færð rök fyrir flokkuninni. Rökin eru m.a. byggð á umferð síðustu ár, umferðarspá næstu ár, byggðarlegri stöðu flugvallarins og landslagi umhverfis flugvöllinn.

Flokkur I.
    Í þessum flokki eru flugvellir sem þjóna innanlandsflugumferð á flugvélum af stærðunum Fokker 50 og ATR42 eða sambærilegum flugvélum. Einnig eiga flugvellir í þessum flokki að geta þjónað a.m.k sem varaflugvellir fyrir þotuflugumferð í stærðarflokkum Boeing 757 eða sambærilegum. Mannvirki eins og flugbrautir, flughlöð, flugstöðvar, bílastæði o.þ.h. eiga að geta þjónað a.m.k. einni fullhlaðinni þotu ofan á hefðbundna umferð. Tækjabúnaður skal þannig samsettur að bilun í einu tæki valdi ekki truflun á rekstri flugvallarins. Þetta á við um raforkukerfi, rafeindakerfi og tækjabúnað. Allur búnaður á flugvellinum, bæði aðflugstæki og ljósabúnaður, skal uppfylla kröfur sem gerðar eru til flugvalla með CAT I nákvæmnisaðflug. Gerð er krafa til þess að hægt sé að opna flugbraut á innan við 30 mínútum miðað við 10 sm jafnfallna snjóþekju. Þá er miðað við að snjór sé ruddur og honum sópað í garða við brautarkanta. Gerð er krafa um að hægt sé að ryðja og blása öllum snjó út fyrir flugbrautarljós á innan við fjórum klukkustundum.

Flokkur II.
    Í þessum flokki eru flugvellir sem þjóna innanlandsflugumferð á flugvélum af stærðunum Fokker 50 og ATR42 eða sambærilegum. Mannvirki eins og flugbrautir, flughlöð, flugstöðvar, bílastæði o.þ.h. eiga að geta annað a.m.k. tveimur flugvélum í þessum stæðarflokki samtímis. Búnaður flugvallarins skal þannig samsettur að allur búnaður sem er í notkun í aðflugi flugvélar skal uppfylla það skilyrði að bilun í einu tæki valdi ekki röskun á aðfluginu. Hins vegar er ekki gerð krafa til þess að allur búnaður sem er nauðsynlegur til að opna flugbraut uppfylli þetta skilyrði. Fyrir flugvelli í þessum flokki er gerð krafa um a.m.k. grunnaðflugsbúnað (Non Precision Approach). Slík aðflug geta byggst á hringvitum (NDB) eða GPS-leiðsögu.

Flokkur III.
    Í þessum flokki eru flugvellir sem þjóna innanlandsflugumferð á 19 farþega flugvélum, t.d. Dornier 228 eða sambærilegum flugvélum. Mannvirki eins og flugbrautir, flughlöð, flugstöðvar, bílastæði o.þ.h. eiga að geta annað a.m.k. einni flugvél í þessum stæðarflokki. Búnaður flugvallarins skal þannig samsettur að allur búnaður sem er í notkun í aðflugi flugvélar skal uppfylla það skilyrði að bilun í einu tæki valdi ekki röskun á aðfluginu. Hins vegar er ekki gerð krafa til þess að allur búnaður sem er nauðsynlegur til að opna flugbraut uppfylli þetta skilyrði. Fyrir flugvelli í þessum flokki er gerð krafa um a.m.k. grunnaðflugsbúnað (Non Precision Approach). Slík aðflug geta byggst á hringvitum (NDB) eða GPS-leiðsögu.

Flokkur IV.
    Í þessum flokki eru þjónustuflugvellir sem þjóna minnstu flugvélunum. Á þessa flugvelli er ekki flogið reglubundið áætlunarflug en þeir eiga að vera með flugvallarstjórn og mannaðir þegar þeir þjóna leigu- eða áætlunarflugi.

Flokkur V.
    Í þessum flokki eru æfinga- og kennsluflugvellir sem þjóna minnstu flugvélunum. Flugvellirnir eru án flugvallarstjórnar en þá á að vera hægt að manna þegar á þarf að halda.

Flokkur VI.
    Í þessum flokki eru sjúkraflugvellir og aðrir lendingarstaðir sem þjóna minnstu flugvélunum. Flugvellirnir eru án flugvallarstjórnar og ekki mannaðir.

Viðhaldsverkefni.
    Stærstu þættir viðhaldsverkefna eru tengdir malbiki, klæðingu og málningu á flugbrautum. Gert er ráð fyrir að meðalendingartími malbiks sé 18 ár ef útlögn hefur tekist vel og undirbygging er góð. Á 18 ára fresti er lagt nýtt 4 sm yfirlag. Milli þess sem yfirlög eru lögð verður að fara fram eftirfarandi viðhald: Á þriggja ára fresti fer fram holufylling og sprunguviðgerð. Á sex ára fresti er yfirsprautað með bindiefni. Heildarmagn malbikaðs yfirborðs í lok árs 1999 er um 470.000 m 2. Gert er ráð fyrir að meðalendingartími klæðingar sé átta ár ef útlögn hefur tekist vel og undirbygging er í lagi. Ekki er gert ráð fyrir viðhaldi milli þess sem yfirlagnir fara fram. Axlir á snúningssvæðum brautarenda skal yfirleggja á fjögurra ára fresti. Í báðum tilvikum skal yfirleggja með einföldu slitlagi. Heildarmagn klæðingar í lok árs 1999 er um 518.000 m 2. Gert er ráð fyrir að mála skuli flugbrautir á þriggja ára fresti. Vegna yfirlagsviðhalds er lagt til að malbikaðar flugbrautir verði málaðar á þriggja ára fresti, en brautir með klæðingu á fjögurra ára fresti. Heildarmagn málaðra flata í lok árs 1999 eru um 71.000 m 2.

Framkvæmdir á einstökum flugvöllum.
Reykjavíkurflugvöllur.
    Í núgildandi flugmálaáætlun er miðað við að framkvæmdir við endurbætur á Reykjavíkurflugvelli hefjist á árinu 1999. Undirbúningur verksins hefur staðið yfir síðustu 5–6 ár og var stór hluti verksins boðinn út vorið 1999. Tilboð voru opnuð 23. júní 1999. Framkvæmdir hófust í október 1999 og miðað er við að þeim ljúki árið 2002. Atriði sem boðin voru út eru: endurbætur á flugbrautum, ný akbraut og endurbætur á eldri akbrautum, endurbætur á flughlaði við skýli 1, endurbætur á öryggissvæðum flugbrauta, nýtt afvötnunarkerfi, endurnýjun á öllum flugbrautar- og aðflugshallaljósum ásamt rörakerfi fyrir alla rafstrengi, ný fjarlægðar- og leiðbeiningaskilti við allar brautir, ný málning á öllum brautum og víðtæk almenn fegrun flugvallarsvæðisins.

Flugbrautir.
    Flugbrautir Reykjavíkurflugvallar eru þrjár: Braut 02-20 sem er 1.749 m x 45 m, braut 14- 32 sem er 1.453 m x 45 m og braut 07-25 sem er 960 m x 30 m. Flugbrautir 02-20 og 14-32 lenda því í stærðarflokki 3 D. Brautir í þeim stærðarflokki skulu ekki vera mjórri en 45 m. Braut 07-25 lendir í stærðarflokki 2 C og skal brautin ekki vera mjórri en 30 m. Í fyrirhuguðum endurbótum á Reykjavíkurflugvelli felst m.a. endurbygging á tveimur aðalflugbrautum vallarins, þ.e. braut 02-20 og braut 14-32. Þá er ráðgert að aðlaga braut 07-25 að hinum tveimur brautunum þannig að hún verði nothæf áfram fyrir innanlandsflug. Hönnun á undirbyggingu brauta 02-20 og 14-32 er miðuð við að báðar þessar brautir geti þjónað sem varabrautir fyrir flugvélar upp í stærð Boeing 757-300 (123 tonn) eða sambærilegar vélar. Hins vegar er hönnun á slitlögum brautanna miðuð við að slíkar vélar lendi eingöngu á flugbraut 02-20, enda er flugbraut 14-32 ekki nægilega löng fyrir stórar vélar. Hins vegar er ekki útilokað að síðarnefnda brautin verði lengd til vesturs og því er undirbygging miðuð við að þar geti stórar flugvélar lent eftir lengingu og þykkingu slitlags. Engar áætlanir eru þó um að auka þotuumferð um Reykjavíkurflugvöll. Flugbraut 07-25 er hönnuð miðað við þær flugvélar sem nú eru notaðar í innanlandsflugi, þ.e. Fokker F50 og ATR42 eða sambærilegar vélar.

Öryggissvæði.
    Í tengslum við endurbætur á flugbrautum vallarins verða gerðar verulagar lagfæringar á öryggissvæðum brautanna. Lagt verður nýtt afvötnunarkerfi þannig að vatn mun aldrei renna af öryggissvæðum og inn á og jafnvel yfir brautir eins og nú er. Öryggissvæði við suðurenda flugbrautar 02-20 verður breikkað verulega enda uppfyllir það að óbreyttu ekki kröfur. Þá verða öryggissvæði jöfnuð og grædd upp en þess jafnframt gætt í samráði við borgaryfirvöld og að tillögum Náttúrufræðistofnunar Íslands að raska ekki gróðri sem eftirsjá er að.

Hlað.
    Núgildandi áætlanir um endurbætur á flugvellinum miða við að flughlað við skýli 1 verði endurbyggt á árinu 2002. Engar endurbætur eru að svo komnu máli ráðgerðar á flughlaði við skýli 4, enda hefur verið miðað við að fljótlega verði byggð ný flugstöð með tilheyrandi nýju flughlaði á austanverðu flugvallarsvæðinu.

Flugturn.
    Innviðir og tækjabúnaður flugturnsins voru endurnýjaðir árið 1998. Flugturninn uppfyllir nú allar kröfur sem gerðar eru til flugturns í þessum flokki að öðru leyti en því að enn vantar bakhjarl á aðra raffæðilínuna. Ráðgert er að setja hann upp með endurnýjun á stjórnbúnaði flugbrautarljósa á árinu 2002.

Flugstöð.
    Á árunum 2000 og 2001 eru ráðgerðar 15 millj. kr. til undirbúnings að byggingu flugstöðvar.

Tækjageymsla.
    Samfara byggingu akbrautar ALFA verður að rífa nokkrar byggingar. Ein þessara bygginga er gamla slökkvistöðin sem notuð hefur verið til geymslu á snjóhreinsibúnaði. Því er gert ráð fyrir að á árunum 2003 og 2004 verði byggt 1.500 m 2 hús sem er sambyggð tækjageymsla og sandgeymsla. Auk geymslu á tækjum til snjóhreinsunar verður þarna geymsluaðstaða fyrir radíódeild, raftæknideild og trésmíðadeild. Geymslan mun uppfylla allar kröfur sem gerðar eru til tækjageymslu fyrir flugvelli í þessum flokki. Samkvæmt kostnaðaráætlun þarf 105 millj. kr. til þessarar byggingar. Á árinu 2003 er ráðgert að verja 52,5 millj. kr. til fyrri áfanga byggingarinnar.

Sandgeymsla.
    Sandgeymsla fyrir um 900 m 3 af sandi verður sambyggð tækjageymslu.

Flugskýli.
    Rífa verður núverandi flugskýli flugmálastjórnar vegna fyrirhugaðrar vinnu við flugbrautir og gerð akbrautar austan við braut 02-20. Gert er ráð fyrir að á árunum 2003–2004 verði byggt nýtt flugskýli með aðstöðu fyrir flugprófunardeild. Skýlið verður samtals um 456 m 2 að grunnfleti. Kostnaður við bygginguna er áætlaður 35 millj. kr. Á árinu 2003 er ráðgert að ljúka fyrri áfanga með 20 millj. kr. fjárveitingu.

Flugleiðsögubúnaður.
    Reykjavíkurflugvöllur er með aðflugsstefnu- og aðflugshallasendum (ILS) inn á braut 20. Inn á braut 14 er aðflugsstefnusendir (LLZ). Inn á aðrar brautir er aðflug byggt á hringvitum (NDB). Báðir aðflugsstefnusendarnir eru orðnir mjög gamlir. Aðflugsstefnusendirinn fyrir braut 20 er frá árinu 1978 og sendirinn á braut 14 er frá árinu 1981. Ráðgerð er endurnýjun á þessum búnaði. Árið 2002 er ráðgerð endurnýjun á aðflugsstefnusendi á braut 14. Árið 2001 er ráðgerð endurnýjun á aðflugsstefnusendi fyrir braut 20. Árið 1999 verður tekið í notkun GPS-grunnaðflug inn á allar aðrar brautir.

Fjarskiptabúnaður.
    Árið 1998 var fjarskiptastjórnbúnaður flugturnsins endurnýjaður og tengdur inn á sama stjórnkerfi og þjónar úthafsflugsstjórninni. Í ljós hefur komið að óhentugt er að láta eitt fjarskiptastjórnkerfi þjóna báðum þessum stöðum. Á árinu 1999 er ráðgert að setja upp lítið fjarskiptastjórnkerfi fyrir flugturninn, ásamt endurnýjun senda- og móttakara. Nægilegur fjöldi símalína er inn í flugturninn nú.

Veðurmælibúnaður.
    Á Reykjavíkurflugvelli vantar mikið á að veðurmælingar uppfylli skilyrði þessa flokks. Í fyrsta lagi er vindhraði og vindstefna aðeins mæld á einum stað við brautarkross. Nauðsynlegt er að mæla vindhraða og vindstefnu í snertipunkti á öllum flugbrautum. Tækjabúnaður til þessa er að stórum hluta til, en ekki hefur verið hægt að setja upp búnaðinn vegna þess að lagnaleiðir um flugvöllinn vantar. Með endurbyggingu flugvallarins leysast þau mál. Hiti í flugbrautum er ekki mældur, en það atriði verður lagfært með endurbyggingunni. Skýjahæð og brautarskyggni er mælt með nýjum mælum á braut 20. Árið 2001 er ráðgert að ljúka uppsetningu veðurmælitækja á braut 14-32, ásamt loftþýstingsskynjara og rakamæli. Á árinu 2002 verður sams konar búnaður settur upp á brautum 14-32 og 07-25. Í tengslum við þessar uppsetningar verður tekinn í notkun búnaður sem tengist öllum veðurskynjurum og sér um framsetningu, geymslu og sendingu veðurgagna. Í lok endurskoðunartímabilsins mun veðurmælibúnaður flugvallarins uppfylla skilyrði flokks I, nema hvað skýjahæðar- og brautarskyggnismæla vantar á braut 14 sem þá hefur aðflugstefnu- og aðflugshallasenda (ILS).

Flugbrautarljós.
    Öll flugbrautarljós á Reykjavíkurflugvelli þarfnast endurnýjunar. Hluti af endurbyggingu flugvallarins er að endurnýja öll flugbrautarljós. Flugbrautir 02-20 og 14-32 verða byggðar upp samkvæmt CAT-I kröfum. Hliðarljós verða 200 W tengd tveimur fæðilögnum. Þröskuldsljós samanstanda af niðurfelldum ljósum þvert yfir brautir og ljósaleggjum þverstæðum á flugbraut. Þröskuldsljós eru tengd tveimur fæðilögnum. Endaljós verða 100 W og tengd á tvær sjálfstæðar fæðilagnir. Endaljós verða ýmist niðurfelld eða ekki eftir því hvort flugtak er leyft af öryggissvæði eða ekki. Aðflugshallaljós eru af PAPI-tegund og tengd tveimur fæðilögnum.
    Braut 07-25 er byggð samkvæmt grunnaðflugskröfum með 200 W ljósum tengdum tveimur fæðilögnum. Þröskuldsljós og hliðarljós eru á sömu fæðilögn. Aðflugshallaljós eru af PAPI-tegund, tengd einni fæðilögn. Á öllum brautarendum verða leifturljós samkvæmt REIL-uppsetningu. Á öllum brautum verður komið fyrir fjarlægðar- og leiðbeiningarskiltum. Akbrautir og flughlað verða lýst með akbrautarlýsingu.
    Aðflugsljós eru nú inn á braut 20. Þessi ljós eru orðin gömul og þarfnast endurnýjunar. Einnig mun flugbraut 02-20 styttast til norðurs við endurbygginguna. Ekki er svigrúm til endurnýjunar aðflugsljósa á tímabilinu.

Raforkudreifikerfi.
    Það dreifikerfi sem nú er á Reykjavíkurflugvelli uppfyllir á engan hátt kröfur þessa flokks. Við endurbyggingu vallarins fara allar lagnir í rör. Sérstök rörakerfi verða fyrir flugbrautarljós, fyrir 240/415 Vac-dreifingu og fyrir merkjaflutning. Þetta kerfi mun uppfylla kröfur flokks I. Nú eru tvær 300 kVA rafstöðvar fyrir flugvöllinn og flugstjórnarbygginguna og nægir önnur rafstöðin til rekstrar miðað við núverandi álag. Hið nýja brautarljósakerfi verður tengt eftir tveimur fæðilögnum. Nú er ein fæðilögn í flugturninn en tvær fæðilagnir innan flugturnsins. Aðeins önnur fæðilögnin er varin með rafbakhjarli (UPS). Í tengslum við stjórnbúnað brautarljósa í flugturni verða þessar lagnir tvöfaldaðar. Í lok endurbyggingarinnar mun flugvöllurinn uppfylla allar kröfur sem gerðar eru til raforkudreifingar í flokki I.

Akureyrarflugvöllur.
Flugbrautir.
    Flugbraut Akureyrarflugvallar er 1.940 m x 45 m og lendir brautin í stærðarflokki 4D. Skal hún ekki vera mjórri en 45 m. Flugbrautin uppfyllir þau skilyrði.
    Flugbrautin á Akureyri var endurbætt árið 1996 en þá var bundna slitlagið breikkað úr 30 m í 45 m og lagt nýtt 4 sm þykkt yfirlag á eldra slitlag. Malbikið er nú um 15 sm þykkt í 30 m breidd en næst brautarjöðrunum eru 7,5 m breiðar ræmur með 5 sm þykku malbiki. Undir gamla malbikinu er 10–20 sm þykkur mulningur sem er fremur lélegur sem efra burðarlag en önnur undirbygging brautarinnar er nokkuð góð.
    Við endurbætur brautarinnar 1996 var miðað við lendingu um 50 flugvéla á ári af gerðinni Boeing B737-400 (66 tonn) og var þá talið að yfirlagsmalbik þyrfti að vera 5 sm og lagþykkt í brautarjaðri 7,5 sm. Vegna fjárskorts var þó ákveðið að yfirlagið yrði 4 sm og malbiksþykkt á brautarjöðrum 5 sm. Búast má við að líftími malbiksins verði minni en ella vegna þessa að óbreyttri flugumferð.
    Fyrirhugað er að yfirsprautun á malbiki fari fram árið 2000. Engar frekari framkvæmdir eru fyrirhugaðar við brautir Akureyrarflugvallar í þessar áætlun.

Flugturn.
    Árið 1999 fór fram úttekt á vinnuaðstöðu og tækjum í flugstjórnarrými í flugturni. Fyrir liggja tillögur að breytingum á innviðum, tækjaborðum og tækjabúnaði. Ráðgert er að setja upp tölvugólf og niðurtekið loft til að auðvelda lagnaleiðir, tvær vinnustöður fyrir sjónflugsstjórnun og ratsjárþjónustu, setja upp fjarskiptastjórnkerfi og bæta raforkufæðilagnir. Vegna þess hversu brýnar þessar endurbætur eru er ráðgert að framkvæma þær árið 2000. Áætlaður heildarkostnaður er 13,5 millj. kr. Að þessum breytingum loknum uppfyllir flugturninn kröfur sem gerðar eru til flugturna í flokki I, nema þær að staðsetning turnsins er ákaflega óhentug. Flughlaðið er milli flugturns og flugbrautar. Uppljómað flughlaðið veldur því að erfitt er að greina flugvél í aðflugi og úti á flugbraut.

Flugstöð.
    Flugstöðvarbyggingin hefur verið byggð í þremur áföngum. Fyrsti áfangi, 894 m 2, var byggður 1961, annar áfangi, 400 m 2, var byggður árið 1970 og þriðji áfangi, 415 m 2, var tekinn í notkun í maí 1996. Samtals er því flugstöðin ásamt flugturni um 1.709 m 2. Á árinu 1999 hefur verið unnið við ýmsan frágang og viðbætur á þessum síðasta byggingaráfanga og mun þeim lagfæringum ljúka árið 2000. Um er að ræða lagfæringar á brottfararsal og endurnýjun á kaffiteríu. Byggð verður 21 m 2 glerbygging út úr austurhlið brottfararsalar og aðkomugangur úr gleri að komusal. Einnig verða breytingar gerðar á norðurhluta flugstöðvarinnar. Þá verður líka sett upp nýtt færiband og skjáupplýsingakerfi fyrir farþega auk annara lagfæringa á eldri áföngum. Áætlaður kostnaður er um 60 millj. kr. Frá árinu 1999 eru 30 millj. kr. til ráðstöfunar og því til viðbótar er gert ráð fyrir 30 millj. kr. á árinu 2000.

Tækjageymsla.
    Á Akureyrarflugvelli er engin formleg tækjageymsla. Á flugvellinum er 306 m 2 verkstæði sem þjónar tækjum á flugvöllum frá Sauðárkróki austur á Þórshöfn. Mjög brýnt er að koma upp tækjageymslu á flugvellinum. Lagt er til að byggð verði 1.000 m 2 sambyggð tækja- og sandgeymsla í sömu útfærslu og gert er ráð fyrir á Reykjavíkurflugvelli. Í ljósi þess að nú stendur yfir endurnýjun snjóhreinsitækja og ný eða nýleg tæki liggja undir skemmdum vegna þess að þau standa úti er ráðgert að byggja tækjageymslu í áföngum á árunum 2001–2002. Áætlaður kostnaður er 70 millj. kr. og dreifist hann jafnt, 35 millj. kr. á hvort ár. Með þeirri byggingu uppfyllir flugvöllurinn kröfur til tækjageymslna í flokki I.

Sandgeymsla.
    Núverandi sandgeymsla á Akureyrarflugvelli er orðin mjög léleg. Þak og hurðir eru nánast ónýt og er líklegt að einhverjar endurbætur verði að fara fram til að tryggja að geymslan verði nothæf næsta vetur. Lagt er til að sandgeymsla sem rúmi um 900 m 2 af sandi verði reist sambyggð við tækjageymslu.

Slökkvistöð.
    Núverandi slökkvistöð er sambyggð tækjageymslu og er um 221 m 2 að grunnfleti auk 77 m 2 á efri hæð. Vegna fyrirhugaðrar fjölgunar starfsmanna í slökkviliði úr fjórum í sjö þarf að gera viðeigandi breytingar á aðstöðu starfsmanna. Stækka þarf vaktherbergi, kaffistofu og hvíldarherbergi. Gistiaðstaða sem verið hefur á efri hæð verður lögð niður. Ráðgert er að hefja framkvæmdir árið 2000 og ljúka þeim árið 2001. Kostnaðaráætlun þessa verks er 16 millj. kr., sem skiptist jafnt, 8 millj. kr. á hvort ár.

Flugleiðsögubúnaður.
    Grunnaðflug að braut 19 byggist á hringvitum (NDB), en síðan tekur við nákvæmnisaðflug byggt á aðflugsstefnusendi (LLZ) og fjarlægðarmæli (DME). Einnig er veitt ratsjáraðflugsþjónusta inn á braut 01. Inn á braut 01 er aðeins grunnaðflug sem byggist á hringvitum (NDB). Ekki er talið að hringvitarnir þarfnist endurnýjunar á árunum 2000–2003. Hins vegar þarfnast aðflugsstefnusendirinn og fjarlægðarmælirinn endurnýjunar. Ekki er ráðrúm til endurnýjunar þessara tækja innan þessarar áætlunar.
    Aðflugsratsjáin er staðsett á flugvellinum. Ratsjáin er orðin 27 ára gömul, en árið 1988 var úrvinnslubúnaður hennar endurnýjaður með breyttri skiparatsjá. Nokkur vandi er á að tryggja fullan rekstur ratsjárinnar, sérstaklega í mikilli úrkomu. Við slíkar aðstæður er erfitt að greina í sundur endurkast frá flugvél og endurkast frá úrkomuskýjum. Á undanförnum tveimur árum hafa verið kannaðir möguleikar á að endurnýja ratsjána með nýrri eða notaðri aðflugsratsjá. Kostnaður við slíka framkvæmd er 100–250 millj. kr. Auk þessa ykist rekstrarkostnaður verulega. Í ljósi þessa hafa verið athugaðir möguleikar á að koma upp staðbundnu GPS-leiðréttingarkerfi (LAAS) kringum Akureyrarflugvöll. Ljóst er að til þess að nýta slíkt kerfi verða flugvélar að vera með sérstakan búnað. Hins vegar mundi slíkur búnaður í fimm til sex flugvélum leysa yfir 95% af þeim tilvikum þegar óskað er eftir ratsjáraðflugi. Staðbundin GPS-leiðréttingarkerfi eru enn í þróun, en framleiðendur hafa staðfest að hægt er að kaupa kerfi fyrir ákveðna upphæð sem framleiðandi ábyrgist síðan að uppfæra að kostnaðarlausu í staðlað kerfi. Áætlaður kostnaður Flugmálastjórnar við slíkt kerfi er um 45 millj. kr. Lagt er til að á árunum 2000–2002 verði rannsakaðir möguleikar á notkun GPS-leiðréttingarkerfis á Akureyrarflugvelli með það markmið að koma upp CAT-I nákvæmnisaðflugi. Á árunum 2003 og 2004 er síðan gert ráð fyrir að ráðist verði í uppsetningu búnaðar, að því gefnu að niðurstöður rannsókna verði jákvæðar. Til fyrsta áfanga þessa verkefnis er gert ráð fyrir 15 millj. kr. árið 2003.

Fjarskiptabúnaður.
    Samhliða endurbótum í flugturni á árinu 2000 er ráðgert að endurnýja fjarskiptastjórnbúnaðinn í flugturninum. Sendar og móttakar uppfylla ekki það ákvæði að hafa varaeiningar. Ekki er ráðgert að lagfæra það á árunum 2000–2003. Í flugturninum er neyðarfjarskiptabúnaður. Á árinu 1999 var símstöð flugvallarins endurnýjuð með símstöð sem verður beintengd símstöð Flugmálastjórnar í Reykjavík. Nýr upptökubúnaður verður tekinn í notkun í flugturninum árið 2000. Áætlaður kostnaður er 2 millj. kr.

Veðurmælibúnaður.
    Vindhraði og vindstefna eru mæld við snertipunkta beggja brautarenda. Á braut 01 er nýr brautarskyggnismælir og í fráflugspunkti þeirrar brautar er nýr skýjahæðarmælir. Á árinu 1999 var ráðgert að setja upp loftþrýstimæli með stafrænum útgangi og rakamæli á flugvöllinn ásamt miðlægum búnaði sem tengist öllum skynjurum og sér um birtingu upplýsinga og söfnun og dreifingu gagna. Í lok árs 1999 mun veðurmælibúnaður á Akureyrarflugvelli uppfylla allar kröfur sem gerðar eru til þessa búnaðar á flugvöllum í flokki I. Samhliða endurbótum í flugturni árið 2000 verður skjábúnaður vindmæla endurnýjaður.

Flugbrautarljós.
    Á undanförnum árum hefur verið unnið að uppbyggingu og endurbyggingu flugbrautarljósa á Akureyrarflugvelli. Uppsetningu aðflugsljósa inn á braut 19 lauk á árinu 1998. Ljósin eru byggð samkvæmt staðli fyrir brautir með grunnaðflugi. Því verður nauðsynlegt að breyta aðflugsljósunum fyrir nákvæmnisaðflug þegar staðbundna GPS-leiðréttingarkerfið hefur verið tekið í notkun. Breytingin felst í því að stytta bil milli ljósa úr 60 m í 30 m og lengja ljósalínuna úr 420 m í 900 m. Ekki er ráðgert að ráðast í þessar framkvæmdir á þessu endurskoðunartímabili.
    Á árinu 1998 var lokið við akbrautarlýsingu og stjórnbúnaður flugbrautarljósa var endurnýjaður. Á árinu 1999 var ráðgert að endurnýja ljósin á flugbrautinni, þ.e. kantljós, þröskuldsljós, endaljós og aðflugshallaljós. Ekki verður hægt að koma fyrir niðurfelldum þröskulds- og endaljósum í þessum áfanga vegna þess að engar lagnir eru fyrir hendi. Lagt er til að þeim ljósum verði komið fyrir samhliða nýrri yfirlögn á brautina. Einnig er ráðgert að koma fyrir GARD-ljósum við stöðvunarlínu akbrautar. Árið 2001 er ráðgert að koma upp leiðbeiningaskiltum og fjarlægðarmerkjum. Áætlaður kostnaður er 5,5 millj. kr. Flugbrautarljós á Akureyrarflugvelli munu því í lok árs 2001 uppfylla kröfur flokks I að undanskildum frávikum vegna þröskulds- og endaljósa.

Egilsstaðaflugvöllur.
Flugbrautir.
    Flugbraut Egilsstaðaflugvallar er nú 2.000 m x 45 m og lendir í stærðarflokki 4 D. Skal brautin ekki vera mjórri en 45 m. Flugbrautin uppfyllir þau skilyrði.
    Framkvæmdum við flugbrautina sjálfa lauk árið 1992. Undirbygging og burðarlög flugbrautarinnar eru miðuð við að flugvél af gerðinni Boeing B747-400 (360 tonn) geti notað brautina. Hins vegar var lengd brautarinnar og þykkt slitlags miðuð við Boeing B757. Malbikið er 10 sm þykkt og undir því er 30 sm þykkt efra burðarlag úr sprengdu og möluðu bergi. Þar undir er malarfylling.
    Á hlutum flugbrautar og flughlaðs hafa komið fram smávægilegar frostlyftingar sem virðist mega rekja til frostþenslu í sjálfu malbikinu. Brýnt er að gerðar verði ráðstafanir sem fyrst til að koma í veg fyrir að þessar þenslur skemmi út frá sér. Um er að ræða aðgerðir sem miðað er við að framkvæma þurfi á sex ára millibili á malbiksslitlögum. Gert er ráð fyrir að fyrsta viðgerð fari fram árið 2000. Nauðsynlegt er að bæta girðingar umhverfis flugbrautina. Á árinu 2002 eru 2 millj. kr. ætlaðar til þessa verkefnis. Engar frekari framkvæmdir við flugbrautir á Egilsstaðaflugvelli eru ráðgerðar.

Tækjageymsla.
    Heildarstærð tækjageymslu er 681 m 2 sem skiptist þannig:
    Eldri hluti geymslu, 397 m 2, er frá 1980. Spennistöð, 36m 2, er frá 1989. Vaktherbergi, 20m 2, er frá 1996. Yngri hluti tækjageymslunnar, 228 m 2, er frá 1997. Í þann hluta vantar gólf, veggklæðningu og lýsingu. Ráðgert er að ljúka þessum áfanga árið 2000. Kostnaðaráætlun gerir ráð fyrir 4 millj. kr. Vinnuaðstaða tækjageymslu uppfyllir ekki kröfu Vinnueftirlitsins.
    Til þess að tækjageymslan uppfylli skilyrði um lágmarks geymslu- og viðgerðarrými og gegnumakstur tækja þyrfti að byggja a.m.k. tvö bil til viðbótar sem væru hvort um sig um 10 x 28 m. Staðsetning slíkrar geymslu er ekki möguleg við núverandi geymslu vegna þrengsla. Ekki er fyrirhugðuð stækkun á tækjageymslu á þessu tímabili.

Veðurmælibúnaður.
    Vindhraði og vindstefna eru mæld við snertipunkta beggja brautarenda. Á braut 04 er nýr brautarskyggnismælir og á aðflugslínu brautar 04 er nýr skýjahæðarmælir. Á árinu 2001 er ráðgert að setja upp loftþrýstimæli með stafrænum útgangi og rakamæli á flugvöllinn ásamt miðlægum búnaði sem tengist öllum skynjurum. Sá búnaður sér um birtingu upplýsinga og söfnun og dreifingu gagna. Í lok árs 2001 mun veðurmælibúnaður á Egilsstaðaflugvelli uppfylla allar kröfur sem gerðar eru til þessa búnaðar á flugvöllum í flokki I. Áætlaður kostnaður við þennan búnað er 5 millj. kr. sem er fjármagnaður af liðnum veðurmælibúnaður.

Flugbrautarljós.
    Við þau flugbrautarljós sem nú eru á Egilsstaðaflugvelli þarf að bæta nokkuð til að þau uppfylli kröfur flokks I. Kantljós og akbrautarljós uppfylla kröfur, en bæta þarf við niðurfelldum ljósum í þröskuld og gera birtuval þröskulds- og endaljósa óháð öðrum kerfum. Þá vantar að setja upp REIL-leifturljós á braut 22 og endurnýja REIL-búnað á braut 04. Einnig vantar aðflugsljós inn á braut 04. Ekki er ráðgert að hefja framkvæmdir á áætlunartímabilinu.

Raforkudreifikerfi.
    Samhliða endurbyggingu vallarins var gengið frá rörakerfi um flugvöllinn. Lokið verður við tækjageymslu á árinu 2000 og í henni er aðstaða fyrir vararafstöð, en núverandi rafstöð er of lítil og staðsett í gámi við tækjageymslu. Árið 2002 er ráðgert að endurnýja rafstöðina með stærri rafstöð og endurbæta dreifikerfið þannig að tvær fæðilagnir verð í spennahús brautarljósa og í flugturn. Áætlaður kostnaður er 5 millj. kr. Að þeim breytingum loknum mun raforkudreifikerfið uppfylla kröfur flokks I.

Vestmannaeyjaflugvöllur.
Flugbrautir.
    Flugbrautir Vestmannaeyjaflugvallar eru tvær: 13-31 sem er 1.205 m x 45 m og 04-22 sem er 1.160 m x 45 m. Lenda þær í tveimur stærðarflokkum. Braut 13-31 lendir í stærðarflokki 3 C og braut 04-22 í stærðarflokki 2 C. Brautirnar skulu ekki vera mjórri en 30 m. Flugbrautirnar uppfylla þau skilyrði. Flugbrautirnar eru hannaðar fyrir flugvélar af gerðinni Fokker F50 og ATR42 eða sambærilegar flugvélar (um 25 tonn). Brautirnar eru með 45 m breiðu bundnu slitlagi, þar af er 30 m breið tvöföld klæðing og beggja vegna hennar er 7,5 m ræma með einfaldri klæðingu. Klæðingin var lögð árið 1990 og þá var jafnframt sett nýtt efra burðarlag á brautirnar. Klæðingin er orðin slitin og farið að marka fyrir hjólförum í henni. Einnig varð önnur brautin fyrir töluverðum skemmdum á síðasta sumri við flutning á Keiko, en þær skemmdir voru að mestu lagaðar þá. Brýnt er að lagt verði einfalt yfirlag á brautina. Fyrirhugað er að endurnýja slitlag á báðum brautum á árinu 2000. Áætlaður kostnaður er 35 millj. kr.

Hlað.
    Flughlaðið sem er um 6.000 m 2 er orðið of lítið fyrir þá miklu flugumferð sem fer um flugvöllinn. Flughlaðið og akstursbraut inn á það eru með 7 sm þykku malbiksslitlagi. Í hlaðinu eru niðurföll og er afvötnun þess nokkuð góð. Í hluta af tengibraut hefur verið malbikað án þess að skipta um jarðveg undir og er malbikið þar sprungið og illa farið vegna frostlyftinga í undirlagi að vetri. Ráðgert er að stækka flughlaðið um tæpa 3.000 m 2 og endurbæta og breikka tengibraut árið 2002. Áætlaður kostnaður er 22 millj. kr.

Bílastæði.
    Bílastæði með slitlagi eru nú fyrir 24 bíla og þrjár hópflutningabifreiðar. Anna þau engan veginn hefðbundinni umferð um völlinn og þarf að stækka þau hið fyrsta. Gert er ráð fyrir að malbika svæði við báða enda flugstöðvarbyggingarinnar árið 2001 og gera þar bílastæði fyrir um 32 bíla. Áætlaður kostnaður er 6 millj. kr.

Flugturn.
    Flugturninn þarfnast endurnýjunar. Töluverður leki er á eftstu hæðinni og inn með gluggum á neðri hæðum. Efsta hæðin hefur burðargrind úr stáli sem er orðin mjög ryðguð og þarf að endurnýja hana. Turninn sjálfur er einangraður að innan í trégrind og klætt innan á með plötum. Fúkkalykt gefur til kynna að ástand grindar og einangrunar sé ekki sem best. Fyrirhugað er að byggja nýjan glerturn á húsið og endurnýja glugga og ytra byrði á árinu 1999. Endurnýjun á einangrun og innra byrði turns er ráðgerð árið 2000. Áætlaður kostnaður er 2 millj. kr.

Flugbrautarljós.
    Árið 1999 voru flugbrautarljós á báðum flugbrautum flugvallarins endurnýjuð með 200 W lýsingu sem uppfyllir öll skilyrði brautarljósa í þessum flokki. Á árinu 2000 er ráðgert að endurnýja aðflugshallaljós og koma upp leifturljósum á báðum flugbrautum. Áætlaður kostnaður er 14 millj. kr. Árið 2001 verður komið fyrir akbrautarljósum á akbraut og flughlaði. Einnig verður komið upp leiðbeiningar- og fjarlægðarmerkjum meðfram flugbrautum. Áætlaður kostnaður er 10 millj. kr. Á árinu 2001 er ráðgert að hefja endurnýjun aðflugsljósa inn á flugbraut 13. Lagt er til að setja upp aðflugskross sem verður 420 m langur og frá honum um 300 m eltiljósalína. Þessi búnaður mun ná frá þröskuldi niður í flæðarmál. Markmiðið er að reyna að veita flugmanni upplýsingar um staðsetningu og stefnu allt út að fráflugspunkti sem er 2,5 Nm frá þröskuldi. Árið 2002 er ráðgert að ljúka þessu verkefni. Áætlaður heildarkostnaður er 20 millj. kr.

Hlaðlýsing.
    Árið 2000 er ráðgert að endurnýja hlaðlýsingu í kjölfarið á stækkun flughlaðsins.

Raforkudreifikerfi.
    Á árinu 1999 er unnið við að leggja stofnlagnakerfi um flugvöllinn. Því verki lýkur árið 2000. Í ár lýkur uppsetningu á vararafstöð fyrir flugvöllinn. Þessi rafstöð uppfyllir ekki allar kröfur sem gerðar eru til rafstöðva á flugvöllum í flokki II. Frávikin liggja í stærð rafstöðvarinnar sem getur aðeins sinnt brýnni álagsþörf, eins og flugbrautarljósum, flugturni og sendi- og mótttökuhúsum. Rafstöðin getur ekki sinnt hitatúpum og flugstöð. Þar sem Bæjarveitur Vestmannaeyja reka vararafstöðvar er þessi lausn talin ásættanleg út tímabilið 2000–2003.

Hornafjarðarflugvöllur.
Flugstöð.
    Flugstöðin sem er um 390 m 2 var tekin í notkun árið 1983. Brýnt er að gera við lekaskemmdir í flugstöðinni. Áætlaður kostnaður er 6 millj. kr. Ráðgert er að hefja framkvæmdir árið 2000.

Raforkudreifikerfi.
    Á Hornafjarðarflugvelli er lokið við lagningu stofnrörakerfis fyrir raforkudreifikerfi. Búið er að undirbúa uppsetningu vararafstöðvar sem ráðgert er að setja upp árin 2001–2002. Vararafstöðin verður staðsett í vélageymslu. Spennistöð flugvallarins hefur þegar verið sett upp í flugstöð og er flutningur hennar ekki ráðgerður. Áætlaður kostnaður er 6 millj. kr. sem skiptist í 2 millj. kr. árið 2001 og 4 millj. kr. árið 2002. Að uppsetningu vararafstöðvarinnar lokinni mun raforkudreifikerfið uppfylla allar kröfur sem gerðar eru til slíks kerfis í flokki II, nema hvað staðsetning spennistöðvar er ekki rétt.

Þórshafnarflugvöllur (Syðralón).
Flugbrautarljós.
    Flugbrautarljós á Þórshafnarflugvelli uppfylla skilyrði flokks II. Á flugvellinum eru ný 200 W brautarljós, aðflugshallaljós og leifturljós á þröskuldum, en gamlir reglar fyrir brautarljósin. Árið 2001 er ráðgert að endurnýja regla flugbrautarljósanna. Áætlaður kostnaður er 2 millj. kr.

Vopnafjarðarflugvöllur.
Flugbrautarljós.
    Gert er ráð fyrir að endurnýja ljósastæðin í flugbrautarljósum á Vopnafjarðarflugvelli á árinu 2000, enda eru þau komin til ára sinna. Áætlaður kostnaður við þessa framkvæmd er 2 millj. kr.

Flugbraut.
    Sett var bundið slitlag á flugbrautina á Vopnafirði fyrir tveimur árum og er það í góðu ástandi. Gert er ráð fyrir að endurbætur á flugbrautinni geti hafist árið 2002 og eru 10 millj. kr. ætlaðar til þessa verkefnis á því ári og aftur 10 millj. kr. árið 2003.

Ísafjarðarflugvöllur.
Flugbrautir.
    Flugbraut Ísafjarðarflugvallar er 1.400 m x 45 m og lendir í stærðarflokki 3 C. Árið 1990 fóru fram umfangsmiklar endurbætur á brautinni og var þá skipt um jarðveg á öllu því svæði sem ekki var búið að malbika áður, þ.e. frá flughlaði að norðurenda brautarinnar. Tvöföld klæðing var lögð á 30 m breitt svæði en einföld klæðing á axlirnar um 6 m hvoru megin. Axlirnar eru orðnar ónýtar og brýn þörf er á að leggja nýtt yfirlag á brautina hið fyrsta áður en að hún eyðileggst líka. Hefla þarf upp axlirnar og leggja á þær tvöfalt lag af klæðingu. Leggja þarf einfalt lag af klæðingu á miðhluta brautarinnar. Þessi atriði voru framkvæmd árið 1999. Gert er ráð fyrir 6 millj. kr. til að ganga frá eftirstöðvum þessara framkvæmda og framkvæmda á Þingeyrarflugvelli.

Hlað og tengibraut .
    Flughlaðið er of lítið og æskilegt er að ljúka við tengibraut að suðurenda brautar. Malbikið á núverandi hlaði er orðið yfir 20 ára gamalt og þarfnast yfirlagnar. Ráðgert er að þessi atriði verði framkvæmd árið 2000. Áætlaður kostnaður er 7 millj. kr.

Flugleiðsögubúnaður.
    Flugleiðsaga inn til Ísafjarðarflugvallar er byggð á hringvita (NDB) í Reykjanesi, aðflugsstefnusendi (LLZ) og fjarlægðarmæli í Ögri og hringvita í Arnarnesi. Frá Arnarnesi byggist aðflugið á sjónflugi inn á Ísafjarðarflugvöll. Aðflugstefnusendinn og fjarlægðarmælinn er orðið nauðsynlegt að endurnýja og er endurnýjun ráðgerð árið 2003.

Flugbrautarljós.
    Kant- og þröskuldsljós á flugbrautinni eru 45 W. Engin aðflugshallaljós eru til staðar. Vegna hindrana í umhverfinu eru lendingar aðeins leyfðar við sjónflugsskilyrði og því hefur ekki verið talin ástæða til uppsetningar á aðflugshallaljósum. Flugtak af flugbraut 09 er leyft í myrkri. Vegna þessa eru hindranaljós í Kirkjubólshlíð og leifturljós í Arnarnesi og í Hnífsdal. Á árunum 2000–2001 eru ráðgerðar athuganir á möguleikum til næturaðflugs til Ísafjarðar í samvinnu við flugrekendur. Ef þessar athuganir gefa jákvæða niðurstöðu er ráðgert að ráðast í framkvæmdir á árunum 2001, 2002 og 2003. Áætlaður kostnaður er 75 millj. kr. sem skiptist í 10 millj. kr. árið 2001, 38 millj. kr. árið 2002 og 27 millj. kr. árið 2003.

Bíldudalsflugvöllur.
Öryggissvæði.
    Öryggissvæði Bíldudalsflugvallar er 35 m mælt frá miðlínu brautar eða að heildarbreidd 70 m og 60 m langt við hvorn enda. Samkvæmt staðli Alþjóðaflugmálastofnunarinnar skal öryggissvæði brautar í þessum stærðarflokki vera að heildarbreidd 80 m. Fyrir blindaðflug, hvort heldur er hefðbundið grunnaðflug eða CAT I, yrði öryggissvæðið að vera að heildarbreidd 150 m. Flugbrautin uppfyllir því ekki þessi skilyrði. Öryggissvæði við suðurenda nær ekki 60 m. Stækkun þess í 60 m er ráðgerð á árinu 2000. Áætlaður kostnaður er 10 millj. kr.

Tækjageymsla.
    Á staðnum er nú 53 m 2 bifreiðageymsla fyrir slökkvibifreið. Lagt er til að byggð verði ný tækjageymsla um 240 m 2 að flatarmáli. Ráðgert er að fara í framkvæmdir árið 2003. Áætlaður kostnaður er 15 millj. kr.

Sandgeymsla.
    Engin sandgeymsla er á staðnum en ætlunin er að hún verði í tækjageymslunni sem fyrirhugað er að byggja árið 2003.

Bakkaflugvöllur.
Flugbrautir.
    Flugbrautir eru með grasyfirborði. Sandur og mold er í undirlagi. Brautin þolir aðeins léttar flugvélar. Brautin er mjög sporuð og skemmd eftir flugvélahjól. Á tímabilinu 2000–2002 er ráðgert að koma upp flugbrautum með malarslitlagi. Áætlaður kostnaður er 66 millj. kr. Áætlunin gerir ráð fyrir að burðarlagsefni sé sótt í námu í um 3 km fjarlægð. Nú er unnið að athugun á því að nota efni af staðnum sem mundi lækka kostnað verulega. Í þennan málaflokk og byggingu flugturns/flugstöðvar er gert ráð fyrir 44 millj. kr. Ljóst er að flugbrautirnar verða látnar hafa forgang.

Öryggissvæði og hindranafletir.
    Öryggissvæði uppfylla ekki kröfur. Engar framkvæmdir eru fyrirhugaðar aðrar en hugsanlega gætu tengst uppbyggingu flugbrautanna.

Flugstöð og flugturn.
    Flugstöð og flugstjórnarherbergi eru sambyggð í einu húsi sem samtals er um 50 m 2. Húsið var sett upp á Bakka árið 1990 en er töluvert eldra og stóð áður á Hólmavík. Gluggar flugstjórnarherbergisins eru þannig staðsettir að ekki sést yfir nema hluta af flugbrautunum. Flugvélar í aðflugi og lendingu inn á braut 21 og 12 sjást ekki úr stjórnherbergi. Mikið er af gæs á brautunum en fugl á brautum sést ekki úr flugstjórnarherbergi vegna þess hve lágt það situr. Vegna þessa uppfyllir flugturn ekki skilyrði flokks III. Ráðgerðar eru framkvæmdir á árunum 2000–2003, en uppbygging flugbrauta hefur forgang.

Siglufjarðarflugvöllur.
Flugbraut.
    Flugbrautin sem stendur í fjöruborði er með klæðingu. Varnargarður sem er meðfram brautinni er farinn að gisna og er hætta á að fínefni skolist úr brautinni. Ráðgert er að laga varnargarðinn árið 2001. Áætlaður kostnaður er 4 millj. kr. Engar frekari framkvæmdir eru ráðgerðar á tímabilinu.

Flugturn.
    Flugturn og flugstöð á Siglufjarðarflugvelli eru sambyggð. Flugturninn er orðinn gamall og þarfnast viðhalds. Helsti ókostur turnsins er að gluggum hefur ekki verið hallað út þannig að veruleg speglun er í öllum gluggum. Ráðgert er minni háttar viðhald á árunum 2000 og 2001. Kostnaðaráætlun við flugturn, flugstöð og tækjaeymslu er 2 millj. kr., sem skiptast jafnt á árin 2000 og 2001.

Flugstöð.
    Flugstöðin á Siglufjarðarflugvelli er nægilega stór og uppfyllir kröfur flokks III. Á árunum 2000 og 2001 eru ráðgerðar viðhaldsframkvæmdir á byggingunni.

Tækjageymsla.
    Tækjageymslan á Siglufjarðarflugvelli uppfyllir skilyrði flokks III. Hins vegar er brýnt að sinna viðhaldsverkefnum á byggingunni. Slíkar framkvæmdir eru áætlaðar á árunum 2000 og 2001.

Gjögurflugvöllur.
Flugstöð.
    Gert er ráð fyrir að klæða núverandi flugstöð að utan með nýrri klæðingu og einnig að byggð verði ný óupphituð vagnageymsla við suðurhlið hússins. Ráðgert er að framkvæmdir eigi sér stað árið 2000. Áætlaður kostnaður er 2 millj. kr.

Sandgeymsla.
    Byggð verður ný 150 m 3 sandgeymsla úr ræsishólkum, gröfnum í jörðu. Ráðgert er að framkvæmdir eigi sér stað árin 2002 og 2003. Áætlaður kostnaður er 2 millj. kr. sem skiptist í 0,5 millj. kr. árið 2002 og 1,5 millj. kr. 2003.

Stóri-Kroppur.
Flugbraut.
    Flugbrautin á Stóra-Kroppi er með malarslitlagi. Á nokkrum stöðum er malarstlitlagið of þunnt og þar kemur gróft burðarlagið upp úr. Árið 2000 er ráðgert að laga malarslitlag brautarinnar og koma henni upp í staðal góðrar malarbautar. Til framkvæmda á Stóra-Kroppi eru ráðgerðar 4 millj. kr. árið 2000.

Hlað.
    Flughlað á Stóra-Kroppi er mjög lítið og akbrautin að flugbrautinni er nánast slóði. Ráðgert er að laga akbrautina árið 2000.

Flugturn.
    Enginn flugturn er á flugvellinum, en árið 2000 er ráðgert að koma upp aðstöðu með síma fyrir flugmenn.

Æfingaflugvöllur.
    Árið 2004 er ráðgert að ljúka fyrri áfanga við byggingu æfingaflugvallar í nágrenni Reykjavíkur. Flugvöllurinn verður með tveimur flugbrautum, flugturni og nauðsynlegum flugleiðsögubúnaði. Heildarkostnaður er áætlaður 220 millj. kr. Árið 2003 er ráðgert að verja 124,5 millj. kr. til þessa verkefnis.

Flugumferðar- og flugleiðsögukerfi.
    Flugleiðsögukerfi að einstökum flugvöllum eru nú flokkuð með viðeigandi flugvelli, en leiðarflugsaga sem og þau kerfi sem eru sameiginleg öllum flugvöllum eru flokkuð hér. Þessi verkefni eru tengd gervihnattaleiðasögu, flugprófanabúnaði og veðurupplýsingakerfum. Einnig eru hér rannsóknarverkefni, kostnaður vegna hlutdeildar Íslands í verkefnum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar auk liðar til að koma til móts við aðkallandi verkefni sem upp geta komið. Heildarfjárhæð í þennan lið fyrir árin 2000–2003 er 206 millj. kr.

Leiðarflug.
    Til leiðarflugs telst allur búnaður sem er nauðsynlegur til leiðsögu milli einstakra flugvalla. Þessi búnaður skiptist í vita (NDB, VOR, DME) og fjarskiptabúnað. Árið 2000 er ráðgert að endurnýja fjarskiptabúnað í Bláfjöllum og á Vaðlaheiði. Núverandi fjarskiptabúnaður er frá því um 1970 og varahlutir eru ófáanlegir. Heildarkostnaður er áætlaður 4 millj. kr. Á árinu 2001 er ráðgert að endurnýja fjarskiptabúnað á Þverfjalli og á Fjarðarheiði. Einnig er ráðgert að endurnýja fjarlægðarsendi (DME) á Vaðlaheiði. Heildarkostnaður við þennan búnað með uppsetningu er áætlaður 17 millj. kr.

Flugstjórnarmiðstöð.
    Af þessum lið er greiddur hlutur Íslands í framkvæmdum Alþjóðaflugþjónustunnar. Samkvæmt þeim áætlunum sem nú liggja fyrir er gert ráð fyrir að hlutur Íslands verði 5 millj. kr. árin 2000 og 2001, 15 millj. kr. árið 2002 og 19 millj. kr. árið 2003.

Veðurupplýsingakerfi.
    Á tímabilinu 2000–2003 er ráðgert að vinna að því að koma upp stöðluðum búnaði sem safnar saman veðurupplýsingum frá flugvöllum. Þetta er ákaflega mikilvægt til að tryggja auðvelda dreifingu þessara upplýsinga og einnig til að tryggja að þær séu geymdar til úrvinnslu síðar. Ráðgerðar eru 5 millj. kr. á ári til þessa. Áætlunin gerir ráð fyrir að slíkum búnaði verði komið fyrir á einum flugvelli á ári.

Flugprófanabúnaður.
    Í Beechcraft King Air flugvél Flugmálastjórnar er komið fyrir flugprófanabúnaði sem notaður er til að prófa aðflugsbúnað á öllum flugvöllum á Íslandi. Þessi búnaður er nú kominn mjög til ára sinna. Móttakarar og úrvinnslubúnaður er orðinn úr sér genginn og ekki af nýjustu gerð. Áætlað er að endurnýjun búnaðarins muni kosta um 70 millj. kr. Ráðgert er að velja búnað á árinu 2000. Árið 2001 yrði búnaðurinn síðan keyptur með afborgunum sem greiddar yrðu af þessari og komandi flugmálaáætlunum. Heildarkostnaður á þessari flugmálaáætlun er 21 millj. kr.

GPS/WAAS/NAAN/ADS/LAAS.
    Þessi liður greiðir kostnað Flugmálastjórnar við þátttöku í gervihnattaleiðsögu. Hönnun, flugprófanir og útgáfa GPS-aðflugs er rekin af þessum lið. Einnig er þáttur Íslands í samstarfsverkefni Bandarísku flugmálastjórnarinnar (FAA), Alþjóðaflugmálastofnunarinnar og Íslands við víðáttustoðkerfið (WAAS) greiddur af þessum lið. Þá verður á árinu 2000 unnið að meistaraprófsverkefni við Háskóla Íslands um staðbundið leiðréttingakerfi fyrir nákvæmnisaðflug inn til Akureyrar. Hlutur Flugmálastjórnar í því verkefni er greiddur af þessum lið.

Rannsóknarverkefni.
    Af þessum lið eru ýmis rannsóknarverkefni greidd. Þau verkefni sem þegar eru þekkt og unnið verður að á árunun 2000 og 2001 eru hávaðamælingar umhverfis Reykjavíkurflugvöll, veðurfarsmælingar vegna staðavals á nýjum æfingaflugvelli við Reykjavík og athuganir, m.a. í flughermi, vegna næturaðflugs inn til Ísafjarðarflugvallar. Heildarkostnaður við rannsóknir er metinn 10 millj. kr. á ári, öll árin 2000–2003.

Ýmis verkefni.
    Undir þennan lið falla ýmis ófyrirséð verkefni sem upp koma á áætlanatímabilinu. Algengt er að búnaður sem ekki var ráðgert að endurnýja á tímabilinu bili þannig að viðgerð verði ekki komið við og endurnýjun sé nauðsynleg. Á undanförnum árum hefur reynslan sýnt að ekki er ráðlegt að áætla þennan lið undir 10 millj. kr. á ári.

Annar kostnaður.
    Undir þennan lið falla ýmis framkvæmda- og viðhaldsverkefni sem ekki er hægt að tengja einstökum flugvöllum. Hér eru sjóðir sem safnað er í til að standa straum af viðhaldi malbiks, klæðingar og málningu flugbrauta, sameiginlegur sjóður til að viðhalda flugbrautum í flokkum IV, V og VI, listskreytingar flugstöðva, sjóður til leiðréttinga og stjórnunarkostnaður. Hér er einnig færður tækjasjóður allra flugvalla. Alls er ráðgert að veita 572,5 millj. kr. til þessa liðar á árunum 2000–2003.

Listskeytingar.
    Þessi liður er nýr á flugmálaáætlun og er ætlaður til að gera flugstöðvar vistlegri. Á árunum 2001–2003 er áætluð 1 millj. kr. í þennan lið á hverju ári.

Leiðréttingar.
    Allar kostnaðaráætlanir í flugmálaáætlun eru gerðar með +/-30% skekkjumörkum. Reynsla undanfarinna ára hefur sýnt að ekki er ráðlegt að hafa undir 20 millj. kr. til leiðréttingar á ári. Þessi upphæð er aðeins 2–3% af ráðstöfunarfé til framkvæmda.

Stjórnunarkostnaður.
    Undir stjórnunarkostnað fellur allur kostnaður við umsýslu verkefna, þ.m.t. áætlanagerð, bókhald og eftirlit. Reynsla undanfarinna ára sýnir að hæfilegt er að gera ráð fyrir 15 millj. kr. á ári til þessa verkliðar.

Tækjasjóður.
    Þetta er í annað sinn sem flugmálaáætlun hefur tækjasjóð sem fjármagnar tæki til snjóruðnings og slökkvibúnað á flugvelli. Áætlað matsverð þess búnaðar sem nú er á flugvöllum er um 700 millj. kr. Eðlilegt er talið að gera ráð fyrir um 10% endurnýjun. Í ljósi þess hefur verið stefnt að því að hafa 70 millj. kr. á ári í tækjasjóði. Á árunum 2000–2003 er gert ráð fyrir 268,5 millj. kr. til þessa liðar.

Tekjur.
    Flugmálastjórn hefur yfir að ráða spálíkani til að spá fyrir um tekjur flugmálaáætlunar, byggt á farþegatölum síðustu ára. Á árinu 2000 er lagt til að notað verði 95% af gildi spálíkansins, eða 654 millj. kr. Þessi tala er 6,7% hærri en tekjur flugmálaáætlunar árið 1999. Milli ára er síðan gert ráð fyrir 5% hækkun. Þess má geta að NAT-SPG spáir 6–7% aukningu flugumferðar á næstu árum. Auk tekna flugmálaáætlunar er ráðgerð lántaka á árunum 2000–2002 til Reykjavíkurflugvallar og árið 2003 til æfingaflugvallar í nágrenni Reykjavíkur. Eftirfarandi tafla sýnir heildarráðstöfunartekjur.

Tekjur 2000 2001 2002 2003
Tekjur flugmálaáætlunar
654 687 721 757
Gjöld vegna frestunar framkvæmda
100 0 0 0
Tekjur vegna frestunar framkvæmda
0 100 0 0
Lántaka
203 119 331 120
Afborganir lána
0 0 0 214
Samtals
757 906 1.052 663

    Gjaldalið flugmálaáætlunar hefur verið skipt í fjóra flokka. Þessir flokkar eru til rekstrar, til Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, til Reykjavíkurflugvallar og til annarra flugvalla. Eftirfarandi tafla sýnir dreifinguna.


Gjöld 2000 2001 2002 2003
Til reksturs
66 69 73 76
Til Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
64 74 74 74
Til Reykjavíkurflugvallar
319 423 545 0
Til annarra flugvalla
308 340 360 513
Samtals
757 906 1.052 663

    Í tveimur næstu töflum er sýnt hvernig kostnaður skiptis milli nýrra framkvæmda og viðhalds framkvæmda. Seinni taflan sýnir sambærilega sundurliðun fyrir tækjasjóðinn.

Framkvæmdir 2000 2001 2002 2003
Nýframkvæmdir
92,5 164,5 211,5 330,5
Viðhaldsverkefni
465,5 528,0 624,5 112,5
Samtals
558,0 692,5 836,0 443,0

Tækjasjóður 2000 2001 2002 2003
Nýr búnaður
56,0 57,5 33,0 40,0
Endurnýjun eldri búnaðar
13,0 13,0 36,0 30,0
Samtals
69,0 70,5 69,0 70,0


Fylgiskjal.

Flugmálaáætlun árin 2000–2003.
Sundurliðun verkefna.

Flugleiðsögu- og fjarskiptabúnaður Samtals 2000 2001 2002 2003
Reykjavíkurflugvöllur
LLZ RWY-20, endurn. 19.000.000 19.000.000
LLZ RWY-14, endurn. 18.500.000 18.500.000
Samtals 37.500.000 0 19.000.000 18.500.000 0
Akureyrarflugvöllur
TAPE Endurnýjun 2.000.000 2.000.000
LAAS Nýtt 15.000.000 15.000.000
Samtals 17.000.000 2.000.000 0 0 15.000.000
Ísafjarðarflugvöllur
DME Ögur, endurn. 13.000.000 13.000.000
LLZ Ögur, endurn. 18.500.000 18.500.000
Samtals 31.500.000 0 0 0 31.500.000
Leiðarflug
DME Vaðlaheiði, endurn. 13.000.000 13.000.000
VHF Bláfjöll, endurn. 2.000.000 2.000.000
VHF Þverfjall, endurn. 2.000.000 2.000.000
VHF Vaðlaheiði, endurn. 2.000.000 2.000.000
VHF Fjarðarheiði, endurn. 2.000.000 2.000.000
Samtals 21.000.000 4.000.000 17.000.000 0 0
Samtals 107.000.000 6.000.000 36.000.000 18.500.000 46.500.000


Mannvirki Samtals 2000 2001 2002 2003
Reykjavíkurflugvöllur
Flugbraut Endurbætur 1.287.000.000 319.000.000 423.000.000 545.000.000
Flugstöð Nýtt 15.000.000 5.000.000 10.000.000
Tækja-/sandgeymsla Nýtt 52.500.000 52.500.000
Flugskýli Nýtt 20.000.000 20.000.000
Samtals 1.374.500.000 324.000.000 433.000.000 545.000.000 72.500.000
Akureyrarflugvöllur
Turn Endurbætur 13.500.000 13.500.000
Tækja-/sandgeymsla Stækkun 70.000.000 35.000.000 35.000.000
Flugstöð Endurbætur 30.000.000 30.000.000
Slökkvistöð Endurbætur 16.000.000 8.000.000 8.000.000
Samtals 129.500.000 51.500.000 43.000.000 35.000.000 0
Siglufjarðarflugvöllur
Flugstöð/tækjageymsla Endurbætur 2.000.000 1.000.000 1.000.000
Flugbraut Varnargarður 4.000.000 4.000.000
Samtals 6.000.000 1.000.000 5.000.000 0 0
Egilsstaðaflugvöllur
Tækjageymsla Lokafrágangur 4.000.000 4.000.000
Girðing Viðbót 2.000.000 2.000.000
Samtals 6.000.000 4.000.000 0 2.000.000 0
Ísafjarðarflugvöllur
Turn Nýbygging 0 0
Braut Slitlag/eftirstöðvar 6.000.000 6.000.000
Flughlað Yfirlag 7.000.000 7.000.000
Samtals 13.000.000 13.000.000 0 0 0
Vestmannaeyjaflugvöllur
Flugstöð Innanstokksmunir 3.500.000 3.500.000
Turn Endurbætur 2.000.000 2.000.000
Braut Slitlag 35.000.000 35.000.000
Bílastæði Viðbót 6.000.000 6.000.000
Flughlöð/akbrautir Lagfæring/stækkun 22.000.000 22.000.000
Samtals 68.500.000 40.500.000 6.000.000 22.000.000 0


Mannvirki Samtals 2000 2001 2002 2003
Hornafjarðarflugvöllur
Flugstöð Endurbætur 6.000.000 6.000.000
Samtals 6.000.000 6.000.000 0 0 0
Bíldudalsflugvöllur
Öryggissvæði Nýtt 10.000.000 10.000.000
Tækjageymsla Nýtt 15.000.000 15.000.000
Samtals 25.000.000 10.000.000 0 0 15.000.000
Gjögurflugvöllur
Sandgeymsla Nýtt 2.000.000 500.000 1.500.000
Flugstöð Lagfæring 2.000.000 2.000.000
Samtals 4.000.000 2.000.000 0 500.000 1.500.000
Bakkaflugvöllur
Flugbraut/flugstöð Endurbætur 44.000.000 4.000.000 10.000.000 30.000.000
Samtals 44.000.000 4.000.000 10.000.000 30.000.000 0
Stóri-Kroppur
Flugbraut/aðstaða Endurbætur 4.000.000 4.000.000
Samtals 4.000.000 4.000.000 0 0 0
Æfingaflugvöllur
Flugbrautir 58.700.000 58.700.000
Vatnsveita 7.500.000 7.500.000
Rafmagn 10.000.000 10.000.000
Vegur, fyrsti áfangi 6.300.000 6.300.000
Flugstöð 16.000.000 16.000.000
Brautarljós, fyrsti áfangi 10.000.000 10.000.000
Veðurmælitæki 4.000.000 4.000.000
Annað, fyrsti áfangi 12.000.000 12.000.000
Samtals 124.500.000 0 0 0 124.500.000
Samtals 1.805.000.000 460.000.000 497.000.000 634.500.000 213.500.000


Flugbrautarljós Samtals 2000 2001 2002 2003
Akureyrarflugvöllur
Skilti Nýtt 5.500.000 5.500.000
Samtals 5.500.000 0 5.500.000 0 0
Egilsstaðaflugvöllur
OBS Ljósastaurar, nýtt 1.000.000 1.000.000
Samtals 1.000.000 0 1.000.000 0 0
Vestmannaeyjaflugvöllur
REIL/PAPI Nýtt/endurnýjun 14.000.000 14.000.000
Taxi/hlað/skilti Nýtt 10.000.000 10.000.000
APCH RWY-13, endurn. 20.000.000 7.000.000 13.000.000
Samtals 44.000.000 14.000.000 17.000.000 13.000.000 0
Ísafjarðarflugvöllur
Næturaðflug/lýsing Nýtt 85.000.000 10.000.000 48.000.000 27.000.000
Samtals 85.000.000 0 10.000.000 38.000.000 27.000.000
Þórshafnarflugvöllur
RWYE Reglar 2.000.000 2.000.000
Samtals 2.000.000 0 2.000.000 0 0
Samtals 137.500.000 14.000.000 35.500.000 51.000.000 27.000.000
Rafbúnaður Samtals 2000 2001 2002 2003
Egilsstaðaflugvöllur
Vararafstöð Endurnýjun 5.000.000 5.000.000
Samtals 5.000.000 0 0 5.000.000 0
Hornafjarðarflugvöllur
Vararafstöð Nýtt 6.000.000 2.000.000 4.000.000
Samtals 6.000.000 0 2.000.000 4.000.000 0
Samtals 11.000.000 0 2.000.000 9.000.000 0


Annar búnaður Samtals 2000 2001 2002 2003
Flugstjórnarmiðstöð 44.000.000 5.000.000 5.000.000 15.000.000 19.000.000
Veðurupplýsingakerfi Nýtt 20.000.000 5.000.000 5.000.000 5.000.000 5.000.000
Flugprófanabúnaður Afborganir 21.000.000 5.000.000 6.000.000 10.000.000
GPS/WAAS/NAAN/ADS/aðflugsbúnaður
Nýtt

20.000.000

5.000.000

5.000.000

5.000.000

5.000.000
Rannsóknarverkefni 40.000.000 10.000.000 10.000.000 10.000.000 10.000.000
Ýmis verkefni 40.000.000 10.000.000 10.000.000 10.000.000 10.000.000
Samtals 185.000.000 35.000.000 40.000.000 51.000.000 59.000.000
Annar kostnaður Samtals 2000 2001 2002 2003
Slitlag/olíumöl Endurnýjun 30.000.000 10.000.000 10.000.000 10.000.000
Slitlag/malbik Endurnýjun 75.000.000 20.000.000 20.000.000 35.000.000
Flugbrautarmerkingar Endurnýjun 24.000.000 8.000.000 8.000.000 8.000.000
Flugv. IV, V, VI 32.000.000 8.000.000 8.000.000 8.000.000 8.000.000
Listskreytingar Nýtt 3.000.000 0 1.000.000 1.000.000 1.000.000
Leiðréttingar og brýn verkefni 80.000.000 20.000.000 20.000.000 20.000.000 20.000.000
Stjórnunarkostnaður 60.000.000 15.000.000 15.000.000 15.000.000 15.000.000
Samtals 304.000.000 43.000.000 82.000.000 82.000.000 97.000.000
Samtals 2.549.500.000 558.000.000 692.500.000 846.000.000 443.000.000
Framlag flugmálaáætlunar 558.000.000 692.500.000 846.000.000 443.000.000
Mismunur 0 0 0 0


Tækjasjóður 2000 2001 2002 2003
Samandregið yfirlit 69.000.000 70.500.000 59.000.000 70.000.000
Tekjur Flugmálaáætlunar 654.000.000 687.000.000 721.000.000 757.000.000
Gjöld vegna frestunar framkvæmda 100.000.000 0 0 0
Tekjur vegna frestunar framkvæmda 0 100.000.000 0 0
Lántaka 203.000.000 119.000.000 331.000.000 120.000.000
Afborganir lána vegna endurbyggingar Reykjavíkurflugvallar 0 0 0 214.000.000
Til ráðstöfunar 757.000.000 906.000.000 1.052.000.000 663.000.000
Til reksturs 66.000.000 69.000.000 73.000.000 76.000.000
Til Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar 64.000.000 74.000.000 74.000.000 74.000.000
Til Reykjavíkurflugvallar 319.000.000 423.000.000 545.000.000 0
Aðrir flugvellir 308.000.000 340.000.000 360.000.000 513.000.000
Til ráðstöfunar 757.000.000 906.000.000 1.052.000.000 663.000.000
Framkvæmdir 2000 2001 2002 2003
Nýframkvæmdir 92.500.000 164.500.000 211.500.000 350.500.000
Viðhaldsverkefni 465.500.000 528.000.000 644.500.000 92.500.000
Samtals 558.000.000 692.500.000 856.000.000 443.000.000