Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 532, 125. löggjafarþing 273. mál: ráðstöfun erfðafjárskatts (greiðslur í ríkissjóð 2000).
Lög nr. 111 28. desember 1999.

Lög um breytingu á lögum nr. 12/1952, um ráðstöfun erfðafjárskatts og erfðafjár ríkissjóðs til vinnuheimila, með síðari breytingum.


1. gr.

     Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. laga nr. 12/1952, um ráðstöfun erfðafjárskatts og erfðafjár ríkissjóðs til vinnuheimila, með síðari breytingum, skulu tekjur af erfðafjárskatti árið 2000 umfram 235 millj. kr. renna í ríkissjóð.

2. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2000.

Samþykkt á Alþingi 21. desember 1999.