Ferill 581. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 883  —  581. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2000.

(Lögð fyrir Alþingi á 125. löggjafarþingi 1999–2000.)



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2000 sem gengið var frá með orðsendingaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 2. og 22. febrúar 2000.

Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.


    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2000 sem gengið var frá með orðsendingaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 2. og 22. febrúar 2000. Samningurinn er prentaður sem fylgiskjal með tillögu þessari.
    Áður en samningur þessi var gerður var á grundvelli samnings landanna frá 1976 um heimildir Færeyinga til veiða í lögsögu Íslands ákveðið að færeyskum skipum væri heimilt að veiða 5.600 lestir af botnfiski við Ísland á árinu 2000.
    Samkvæmt samningi þessum munu aðilar semja fyrir 1. júlí 2000 um veiðiheimildir færeyskra nótaskipa á loðnuvertíðinni sem stendur frá júlí 2000 til apríl 2001. Er eins og í samningi landanna frá 1999 við það miðað að veiðiheimildir færeyskra nótaskipa á þessu tímabili verði um 30 þúsund lestir enda breytist forsendur varðandi leyfðan heildarafla og önnur atriði er máli skipta ekki í verulegum atriðum.
    Gert er ráð fyrir því að heimilt sé að landa aflanum til vinnslu á Íslandi, en að óheimilt sé að vinna eða frysta afla sem veiddur er á tímabilinu janúar til apríl um borð og að utan Íslands sé einungis heimilt að landa þeim afla til bræðslu.
    Í samningnum er kveðið á um það nýmæli að færeyskum skipum er heimilt á loðnuvertíðunum 1999/2000 og 2000/2001 að veiða allt að 10.000 lestir af loðnu á hvorri vertíð innan lögsögu Íslands úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda.
    Samningurinn gerir enn fremur ráð fyrir gagnkvæmri heimild skipa hvors aðila til kolmunnaveiða innan lögsögu hins á árinu 2000.
    Loks er í samningnum staðfest heimild íslenskra skipa til veiða á allt að 1.300 lestum af makríl og 2.000 lestum af síld annarri en norsk-íslenskri innan færeyskrar lögsögu á árinu 2000.
    Samningurinn tók gildi til bráðabirgða 22. febrúar 2000 og mun öðlast endanlegt gildi þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið fullnægt.



Fylgiskjal.


SAMNINGUR
milli Íslands og Færeyja
um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2000.


a. Bréf utanríkisráðherra Íslands til lögmanns Færeyja.


Reykjavík, 2. febrúar 2000

Hr. lögmaður
Anfinn Kallsberg
Föroya Landsstýri
Torshavn

Herra lögmaður.

    Ég leyfi mér að vísa til samtala milli íslenskra og færeyskra stjórnvalda um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2000.
    Mér skilst að samkomulag hafi orðið um eftirfarandi samning:


„Samningur
milli Íslands og Færeyja
um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2000.

1. gr.

    Aðilar munu semja fyrir 1. júlí 2000 um veiðiheimildir færeyskra nótaskipa á loðnuvertíðinni sem stendur frá júlí 2000 til apríl 2001. Er við það miðað að veiðiheimildir færeyskra nótaskipa á þessu tímabili verði um 30 þúsund lestir enda breytist forsendur varðandi leyfðan heildarafla og önnur atriði er máli skipta ekki í verulegum atriðum.
    Heimilt er að landa aflanum til vinnslu á Íslandi. Óheimilt er að vinna eða frysta afla sem veiddur er á tímabilinu janúar til apríl um borð og utan Íslands er einungis heimilt að landa þeim afla til bræðslu.
    Færeyskum skipum er heimilt á loðnuvertíðunum 1999/2000 og 2000/2001 að veiða allt að 10.000 lestir af loðnu á hvorri vertíð innan efnahagslögsögu Íslands úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda.

2. gr.

    Færeyskum skipum eru heimilar veiðar á kolmunna innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2000. Að höfðu samráði við landsstjórn Færeyja geta íslensk stjórnvöld ákveðið að veiðarnar stundi aðeins tiltekinn fjöldi skipa samtímis.

3. gr.

    Íslenskum skipum eru heimilar veiðar á kolmunna innan fiskveiðilögsögu Færeyja á árinu 2000. Að höfðu samráði við íslensk stjórnvöld getur landsstjórn Færeyja ákveðið að veiðarnar stundi aðeins tiltekinn fjöldi skipa samtímis.

4. gr.

    Íslenskum skipum eru heimilar veiðar á allt að 1.300 lestum af makríl innan fiskveiðilögsögu Færeyja á árinu 2000 og veiðar á allt að 2.000 lestum af síld úr síldarstofnum öðrum en þeim norsk-íslenska.

5. gr.

    Færeysk skip, sem stunda veiðar samkvæmt samningi þessum innan íslenskrar lögsögu, skulu hlíta sömu reglum og gilda um veiðar íslenskra skipa, þar á meðal reglum um veiðarfæri og veiðisvæði.
    Íslensk skip, sem stunda veiðar samkvæmt samningi þessum innan færeyskrar lögsögu, skulu hlíta sömu reglum og gilda um veiðar færeyskra skipa, þar á meðal reglum um veiðarfæri og veiðisvæði.
    Skipum við kolmunnaveiðar er óheimilt að hafa um borð veiðarfæri sem nota má til botnfiskveiða.

6. gr.

    Hvor aðili um sig skal tilkynna lista með þeim veiðiskipum sem hyggjast stunda veiðar samkvæmt samningi þessum innan lögsögu hins aðilans. Skip sem eru á listum þessum hafa ein rétt til veiða innan lögsögu þess aðila.
    Áður en veiðar hefjast skal tilkynna viðkomandi yfirvöldum um nafn skips og veita aðrar upplýsingar er máli skipta.
    Veiðiskip skal tilkynna um komu inn í lögsögu og staðarákvörðun og gefa upplýsingar um afla sem veiddur hefur verið fyrir komu inn í lögsöguna og síðan daglega tilkynna um staðarákvörðun og afla. Þegar farið er úr lögsögu skal tilkynna um áætlað aflamagn.“

    Ef þér staðfestið að ofangreint sé skilningur yðar leyfi ég mér að leggja til að samningur þessi taki gildi til bráðabirgða þegar svarbréf yðar þar um er dagsett og endanlega þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið endanlega fullnægt.


                                       Halldór Ásgrímsson
                                       utanríkisráðherra


b. Svarbréf lögmanns Færeyja.

Tórshavn, 22. februar 2000

Uttanríkisráðharri
Halldór Ásgrímsson
Uttanríkisráðuneytið, Ísland

Harra uttanríkisráðharri.

    Eg loyvi mær at vátta bræv tygara dagsett 2. februar 2000, sum ljóðar soleiðis:

    “Eg loyvi mær at vísa til samráðingar millum íslendskar og føroyskar myndugleikar um fiskiveiði í íslendskum og føroyskum sjógvi í 2000.
    Eg havi skilt, at semja er vordin um fylgjandi:


“Semja
millum Ísland og Føroyar
um fiskiveiði í íslendskum og føroyskum sjógvi í 2000.

1. gr.

    Partarnir fara fyri 1. juli 2000 at gera sáttmála um veiðiheimildir hjá føroyskum nótaskipum í lodnutíðini, sum varar frá juli 2000 til apríl 2001. Samráðingarstøðið er, at veiðiheimildir hjá føroyskum nótaskipum í hesum tíðarskeiði verða um 30 túsund tons, treytað av at fyritreytir viðvíkjandi loyvdari heildarveiði og onnur viðurskifti, sum hava týdning, ikki broytast munandi.
    Loyvt er at landa veiðina til framleiðslu í Íslandi. Tað er ikki loyvt at framleiða ella frysta tann partin av veiðini, sum er veiddur í tíðarskeiðnum januar til apríl um borð, og uttan fyri Ísland er bert loyvt at landa sama partin til ídnað.
    Føroyskum skipum er í lodnuvertíðini 1999/2000 og 2000/2001 loyvt at veiða upp til 10.000 tons av lodnu í hvørji vertíð í íslendskum búskaparøki við veiðiheimildum, sum eru fíngnar við samráðingum millum Føroyar og Grønland.

2. gr.

    Føroyskum skipum er loyvt at veiða svartkjaft í íslendskum búskaparøki í 2000. Eftir samráðingar við landsstýrið í Føroyum kunnu íslendskir myndugleikar áseta mest loyvda skipatal, sum kunnu veiða samstundis á leiðini.

3. gr.

    Íslendskum skipum er loyvt at veiða svartkjaft í føroyskum sjógvi í 2000. Eftir samráðingar við íslendskar myndugleikar kann Føroya landsstýri áseta mest loyvda skipatal, sum kunnu veiða samstundis á leiðini.

4. gr.

    Íslendskum skipum er loyvt at veiða upp til 1.300 tons av makreli í føroyskum sjógvi í 2000 og at veiða upp til 2.000 tons av sild úr øðrum sildastovni enn várgýtandi norðurhavssild.

5. gr.

    Føroysk skip, sum veiða sambært hesi avtalu í íslendskum búskaparøki, skulu fylgja somu veiðireglum, sum galda fyri íslendsk skip um reiðskap og fiskileiðir.
    Íslendsk skip, sum veiða sambært hesi avtalu í føroyskum sjógvi, skulu fylgja somu veiðireglum, sum galda fyri føroysk skip um reiðskap og fiskileiðir.
    Skipum, ið veiða eftir svartkjafti, er ikki loyvt at hava reiðskap til botnfiskaveiði um borð.

6. gr.

    Partarnir skulu fráboða ein lista yvir tey fiskifør, sum ætla at veiða á økjunum hjá hvørjum øðrum. Bert tey fiskifør, sum eru á hesum lista, hava loyvi at veiða á økjunum.
    Áðrenn fiskiskapurin byrjar, skulu avvarðandi myndugleikar hava boð um navn á skipi saman við øðrum upplýsingum av týðningi.
    Skipið skal boða frá, tá tað kemur á veiðiøkið, uppgeva knøttstøðu og veiðinøgd, sum er veidd, áðrenn komu á økið, og síðani uppgeva knøttstøðu og veiðu hvønn dag. Tá skip fer av veiðiøkinum skal mett veiða verða givin upp.”

    Um tygum staðfesta, at tað, ið stendur omanfyri, er í samsvar við fatan tygara, loyvi eg mær at skjóta upp, at henda avtala fær gildi fyribils, tá svarbræv tygara hesum viðvíkjandi er dagsett og endaliga, tá boðað er frá, at stýrisskipanarligu krøvini hjá hvørjum landi eru uppfyllt.”

    Eg loyvi mær at staðfesta, at tað ið stendur omanfyri, er í samsvar við fatan Føroya landsstýris, og avtalan fær gildi fyribils í dag og endaliga, tá boðað er frá, at stýrisskipanarligu krøvini hjá hvørjum landi eru uppfylt.


                                       Við hávirðing
                                       Anfinn Kallsberg
                                       løgmaður