Ferill 582. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1080  —  582. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2000.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Tómas H. Heiðar frá utanríkisráðuneyti, Jón B. Jónasson frá sjávarútvegsráðuneyti og Jakob Jakobsson frá Hafrannsóknastofnuninni.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á nokkrum samningum um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2000.
    Hinn 6. maí 1996 var undirrituð í Ósló bókun um verndun, skynsamlega nýtingu og stjórnun veiða á norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi. Aðilar eru strandríkin fjögur, Ísland, Færeyjar, Noregur og Rússland. Þau skuldbinda sig í bókuninni til að starfa saman að verndun síldarstofnsins, skynsamlegri nýtingu hans og stjórn veiða úr honum í því skyni að tryggja sjálfbæra nýtingu stofnsins til langs tíma.
    Á fundi aðila í október á síðasta ári náðist samkomulag um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2000. Heildaraflamarkið var ákveðið 1.240.000 lestir, en það var 1.300.000 lestir árið 1999.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 27. apríl 2000.



Tómas Ingi Olrich,


form., frsm.


Jón Kristjánsson.


Árni R. Árnason.



Einar K. Guðfinnsson.


Jónína Bjartmarz.


Vilhjálmur Egilsson.



Sighvatur Björgvinsson.


Steingrímur J. Sigfússon.