Rannsóknir í þágu atvinnuveganna

Þriðjudaginn 27. febrúar 2001, kl. 15:38:25 (5019)

2001-02-27 15:38:25# 126. lþ. 77.6 fundur 414. mál: #A rannsóknir í þágu atvinnuveganna# (aðild RALA að hlutafélögum) frv., JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 77. fundur, 126. lþ.

[15:38]

Jón Bjarnason (andsvar):

Herra forseti. Einhvern veginn finnst mér og kynni betur við ef hæstv. ráðherra mundi svara efnislega því sem um er rætt og spurt er um, en drepi ekki málunum á dreif með gaspri og gífuryrðum sem ekki er gefið tilefni til.

Ég verð því, herra forseti, að ítreka það að ég óska eftir að ráðherra gefi það skýrt út hver hinn raunverulegi hugur er og hann getur þá bara gert það skýrt og skilmerkilega, en ekki með neinum slíkum útúrsnúningum eins og hann var hér að reyna. Takist honum ekki að svara þessu með fullnægjandi hætti í andsvari, þá vona ég að hann geri það skýrt og skilmerkilega og heiðarlega í seinni ræðu sinni hér í væntanlegum umræðum.