Viðvera stjórnarþingmanna

Föstudaginn 27. apríl 2001, kl. 10:51:34 (6960)

2001-04-27 10:51:34# 126. lþ. 114.91 fundur 492#B viðvera stjórnarþingmanna# (aths. um störf þingsins), Forseti GuðjG
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 126. lþ.

[10:51]

Forseti (Guðjón Guðmundsson):

Þar sem mjög hefur fjölgað í salnum frá því að fundur hófst vill forseti endurtaka það sem hann sagði í upphafi. Það er margra mánaða ef ekki ára venja að greiða atkvæði eftir hádegi á þeim dögum sem þingfundir hefjast að morgni. Vilji menn breyta því þá þarf að ræða það í forsætisnefnd og það verður gert á mánudaginn.

Ég vil líka ítreka að þetta var ákveðið í gær. Mér þykir það leitt ef þau skilaboð hafa ekki komist skammlaust til þingmanna. Forseti vill hins vegar taka undir þá gagnrýni sem hér hefur komið fram á mætingar þingmanna. Það á jafnt við um stjórnarsinna sem stjórnarandstæðinga. Ég tek hins vegar ekki undir að það eigi við um alla þingmenn. Ákveðinn kjarni þingmanna mætir afskaplega vel og er til fyrirmyndar í þingstörfunum en það eru allt of margir þingmenn sem ekki mæta hér sem skyldi og beinir forseti því til formanna þingflokka að ræða það í sínum ranni. Það verður einnig rætt á fundi forsætisnefndar á mánudaginn.