Utandagskrárumræða um gengisþróun

Miðvikudaginn 02. maí 2001, kl. 20:07:30 (7204)

2001-05-02 20:07:30# 126. lþ. 116.96 fundur 508#B utandagskrárumræða um gengisþróun# (um fundarstjórn), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur, 126. lþ.

[20:07]

Forseti (Halldór Blöndal):

Það er rétt hjá hv. þm. að fyrir lá beiðni hans um utandagskrárumræðu, en ég leit svo á að ekki væri rétt að hafa utandagskrárumræður á þessum degi þar sem boðað hafði verið til fundarins sérstaklega til að ræða þau frv. sem hér eru á dagskrá og synjaði þess vegna um utandagskrárumræður í dag. Þetta er rétt með farið hjá hv. þm. en ég minni á hinn bóginn á að nokkrar umræður urðu um störf þingsins í upphafi fundar eins og þingsköp gera ráð fyrir.