[prenta uppsett í dálka] 129. fundur, 126. lþ.
Guðjón Guðmundsson:
Herra forseti. Þetta mál bar þannig að iðnn. að frv. er til komið að frumkvæði Fjórðungssambands Vestfirðinga haustið 1999 þar sem óskað var eftir viðræðum við íslenska ríkið um kaup á meiri hluta sveitarfélaganna í Orkubúi Vestfjarða. Frv. sjálft er síðan byggt á samkomulagi allra sveitarfélaganna á Vestfjörðum, sveitarstjórnum allra sveitarfélaga á Vestfjörðum og frammi fyrir þessu stóð iðnn. Auk þess er aðeins verið að breyta formi fyrirtækisins í hlutafélag. Það er svo hverju sveitarfélagi í sjálfsvald sett hvort það selur sinn hlut eða ekki. Ríkið er ekki að pína sveitarfélögin í eitt eða neitt. Það er alröng túlkun sem hefur komið fram í þessum umræðum, bæði í gær og í síðustu viku. Það er sveitarfélögunum í sjálfsvald sett hvort þau vilja selja eða ekki.