[prenta uppsett í dálka] 129. fundur, 126. lþ.
Forseti (Halldór Blöndal):
Það varð að samkomulagi á fundi forseta með þingflokksformönnum í dag að nú færi fram umræða utan dagskrár um veiðar smábáta og hæfist um kl. 9 síðdegis. Málshefjandi er hv. 4. þm. Vestf., Guðjón A. Kristjánsson, en hæstv. sjútvrh., Árni M. Mathiesen, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.