Framlagning stjórnarfrumvarpa

Fimmtudaginn 02. nóvember 2000, kl. 11:12:34 (1204)

2000-11-02 11:12:34# 126. lþ. 19.94 fundur 88#B framlagning stjórnarfrumvarpa# (aths. um störf þingsins), PHB
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 126. lþ.

[11:12]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Ég mótmæli þeim orðum hv. þm. Rannveigar Guðmundsdóttur að stjórnarandstaðan haldi uppi starfi þingsins með framlagningu frumvarpa. Á dagskránni í dag var ég að reyna að telja frumvörp frá stjórnarþingmönnum og ég var þegar kominn með 5 eða 6. Ég hugsa að nálægt helmingur af þeim þingmannafrumvörpum sem eru á dagskránni í dag séu frá stjórnarþingmönnum.